DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Visby Tunic

Settið samanstendur af: Tuniku fyrir börn með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Eyrnabandi með marlitu norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Children 30-11
DROPS Design: Mynstur me-036-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
Í allt settið þarf ca:
250-300-300-350-400-450 g litur 32, dökk bleikur
100-100-100-150-150-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 18, ólífugrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 33, bleikur
-----------------------------------------------------------

TUNIKA:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-300-350-400-450 g litur 32, dökk bleikur
100-100-100-100-150-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 18, ólífugrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 33, bleikur

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.
-----------------------------------------------------------

EYRNABAND:
Stærð: 2/5 - 6/12 ára
Höfuðmál: ca 48/52 - 52/56 cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g í báðar stærðir litur 01, natur
50 g í báðar stærðir litur 32, dökk bleikur

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – fyrir stroff
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Tunika: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.6.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,5.
Í þessu dæmi er aukið út til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum er prjónuð til skiptis ca 8. og 9. hver lykkja og 9. og 10. hver lykkja slétt saman.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með bleikur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-24-24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

LEIÐBEININGAR -2 (á við um berustykki á tuniku):
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina en 10 cm eins og gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili í einingu með einum lit á berustykki.

LEIÐBEININGAR-3:
Hægt er að prjóna tunikuna að óskaðri sídd. Ef hún á að vera síðari þá er haldið áfram með útaukningu í hvorri hlið alveg eins og áður að óskuðu máli.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið þannig: Byrjið 10 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 20 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).
----------------------------------------------------------

TUNIKA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Byrjun umferðar = miðja að aftan.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 76-78-80-82-84-86 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með bleikur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 2 umferðir slétt JAFNFRAMT er aukið út um 8-6-10-8-12-10 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-84-90-90-96-96 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og prjónið UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka eru prjónaðar 0-2-0-2-0-2 sléttar umferðir með bleikur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Prjónið síðan A.1 hringinn (= 14-14-15-15-16-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 í A.1 eru 126-126-135-135-144-144 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 10-16-18-18-20-26 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 136-142-153-153-164-170 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og aukið JAFNFRAMT út 8-14-15-15-16-22 lykkjur í umferð merktri með ör-2 í A.1= 144-156-168-168-180-192 lykkjur. Eftir að A.1 hefur verið prjónað er A.2 prjónað hringinn (= 12-13-14-14-15-16 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og mynsturteikning sýnir. Í umferð merktri með ör-3 (síðasta umferð í A.2) eru 192-208-224-224-240-256 lykkjur í umferð. Prjónið umferð eins og mynsturteikning sýnir og aukið JAFNFRAMT út 14-10-6-10-6-2 lykkjur jafnt yfir þessa umferð (aukið út með grunnlit í mynsturbekk) = 206-218-230-234-246-258 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 16-17-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA:
Prjónið með natur þannig: 29-31 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 45-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 58-62 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 45-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-31 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki).
STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ÁRA:
Prjónið með dökk bleikur þannig: 33-34-36-38 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 66-68-72-76 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 49-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 33-34-36-38 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki).

ALLAR STÆRÐIR:
Klippið frá þráðinn sem prjónað er með. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 128-136-144-152-160-168 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-8-8-8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og lesið allan kaflann um fram- og bakstykki áður en prjónað er áfram!
STÆRÐ 2, 3/4, 5/6 og 7/8 ára:
Prjónið A.3 hringinn (= 16-17-18-19 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með dökk bleikur til loka.
STÆRÐ 9/10 og 11/12 ára:
Prjónið A.4 hringinn (= 20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með dökk bleikur til loka.
ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur færri). Aukið út í 8.-9.-8.-9.-8.-9. umferðir (ca 3. hvern cm) alls 8-8-10-10-12-12 sinnum í hvorri hlið = 160-168-184-192-208-216 lykkjur. ATH: Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar með dökk bleikur, þ.e.a.s. þegar aukið er út þá verða fleiri lykkjur með dökk bleikur á milli ”doppa” í A.4.
Þegar stykkið mælist ca 25-28-31-34-37-40 cm frá skiptingu – lesið LEIÐBEININGAR-3, prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið síðan laust af. Tunikan mælist ca 42-46-50-54-58-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 45-47-49-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Lesið allan kaflann áður en prjónað er áfram!
STÆRÐ 2, 3/4, 5/6 og 7/8 ára:
Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið A.3 hringinn, en athugið að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í einni heilli mynstureiningu mitt undir ermi. Byrjið með 3.-2.-1.-8. hverja lykkju í A.3 og endurtakið A.3 hringinn eins langt og það gengur. Mynstrið verður samhverft mitt undir ermi og lykkja með prjónamerki mitt ofan á ermi á nú að passa við 4. lykkju í A.3. Eftir A.3 er prjónað sléttprjón með dökk bleikur.
STÆRÐ 9/10 og 11/12 ára:
Byrjið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónið sléttprjón með dökk bleikur.

ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-2½-3½-3½-3½ cm millibili alls 7-8-9-8-9-10 sinnum = 37-37-37-41-41-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-19-23-27-31-34 cm frá skiptingu (úrtöku á nú að vera lokið), prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1 lykkju í öllum stærðum = 36-36-36-40-40-40 lykkjur. Prjónið A.5 hringinn (= 9-9-9-10-10-10 mynstureiningar með 4 lykkjum). Á eftir A.5 er skipt yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn með dökk bleikum, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af.
Ermin mælist ca 21-24-28-32-36-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.
----------------------------------------------------------

EYRNABAND:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Fitjið upp 108-124 lykkjur á hringprjón 2,5 með dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan í hring (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 98-112 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn (= 7-8 mynstureiningar með 14 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað með dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út með 10-12 lykkjur jafnt yfir = 108-124 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = bleikur
symbols = natur
symbols = eplagrænn
symbols = dökk bleikur
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturbekk
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Visby Tunic

Shweta, United Arab Emirates

Visby tunic

Kirsty, Norway

Fair Isle Jumper

Susie, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Hélène wrote:

Merci beaucoup pour votre soutien! Il est très apprécié!

29.02.2024 - 12:43

country flag Hélène wrote:

Dans le diagramme A.2 , à la fin de la 5e ligne, il y a une augmentation. Je veux savoir de quelle couleur je la fais. Je doute: naturel ou rose foncé.

28.02.2024 - 23:10

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, faites les jetés dans la couleur principale du tour tricoté, autrement dit, au 5ème tour, faites le jeté en naturel (tout comme les 2 jetés suivants qui devront aussi être faits en naturel). Bon tricot!

29.02.2024 - 08:26

country flag Anja Kristina wrote:

Is het mogelijk om na de pas het lijf vanaf middenachter te breien?

30.09.2023 - 15:01

country flag Maria Isabel Castro wrote:

Buenas tardes, Estoy haciendo la túnica para una niña de 2 años. Tengo una duda. Después de finalizar la elevación comienzo con el A1 teniendo 84 puntos. En el diagrama A1 sólo veo que aparezcan 3 aumentos. Cuando sigo leyendo el patrón, me dice que donde marca la flecha 1 tengo que tener 126 puntos. Es imposible !!. Si en el diagrama A1 sólo dice aumentar 3 Veces!!!! Ayuda pls Thks coop Isabel Castro

22.10.2021 - 13:17

DROPS Design answered:

Hola Maria Isabel, A.1 tiene 3 aumentos, pero tienes que repetir A.1 14 veces en la vuelta(como pone en el paréntesis). Por lo tanto, en total se aumentan 14x3 = 42 puntos, que sumados a 84 puntos son 126 puntos.

24.10.2021 - 12:16

country flag Guinevere wrote:

Hi there! I'm knitting size 11/12. In diagram A.2, there is an arrow- 3, for which the instructions say : " Work round as shown in diagram and increase AT THE SAME TIME 14-10-6-10-6-2 stitches evenly on this round (increasing base color in pattern stripe)". I'm having some difficulty understanding how to increase without spoiling the pattern . Maybe you can explain a bit more what is meant by "increasing base color in pattern stripe"? Thank you!

23.02.2021 - 11:16

DROPS Design answered:

Dear Guinevere, you will increase evenly with dark rose and make sure that there is 1 stitch worked with offwhite over the 3 stitches off-white from previous round. Happy knitting!

23.02.2021 - 12:36

country flag Marimar wrote:

Merci pour votre explication . Une autre question si vous permettez : comment éviter que le point mousse ne roule lors de la bordure de la tunique ? Merci

01.12.2020 - 16:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marimar, le meilleur moyen est de bloquer la robe quand elle est terminée: lavez-la (en suivant bien les instructions de l'étiquette + quelques généralités ici) et faites la sécher bien à plat, avec des épingles si besoin. Bonne continuation!

01.12.2020 - 17:20

country flag Marimar wrote:

Bonjour, Je suis arrivée aux manches en taille 2 ans de ce modèle. Or je ne comprend pas par où je dois commencer en haut ou en bas de la Manche ? Je ne comprend pas la partie que vous détaillez pour les tailles 2,3/4, 5/6, et 7/8 ans " En commençant au fil marqueur. .........et la maille avec le fil marqueur au milieu du dessus de la Manche doit être la 4eme maille de A3." Merci de bien vouloir m'eclairer.

01.12.2020 - 00:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marimar, la manche se tricote de haut en bas, à partir des mailles mises en attente que l'on reprend + on va relever 1 m dans chacune des 6 mailles montées lors de la division = 51 m en taille 2 ans. Mettez un marqueur au milieu des 6 nouvelle mailles = c'est maintenant le début des tours, vous tricotez en commençant par la maille juste après le marqueur (= 3 des nouvelles mailles) et tricotez A.3 en commençant par la 3ème m du diagramme (= 6 m) et répétez ensuite A.3 (5 x 8 m) + les 5 premières m du diagramme. Bon tricot!

01.12.2020 - 09:30

country flag Marimar wrote:

Bonjour, Je tricote cette tunique en taille 2 ans. Je suis arrivée au niveau de l'empiècement où je dois augmenter 14 m au dernier rang de la grille A2. Je ne comprends pas comment je dois augmenter en respectant le motif de la grille . Merci de m'éclairer. .

25.11.2020 - 00:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marimar, cette leçon explique comment augmenter à intervalles réguliers - ajustez pour que vos jetés soient faits dans les sections 3 mailles de la couleur du fond pour que le triangle soit bien terminé à chaque fois, autrement dit, vous devez avoir parfois 4 mailles avec la couleur du fond au lieu de 3 mailles et ceci 14 fois au total. Bon tricot!

25.11.2020 - 08:08

country flag Cesarina Pacher wrote:

Non ho capito come fate gli ai.enti della tunica dopo lo sprone. Vanno fatti sotto i buchi per le maniche e solo ai lati? Grazie mille per la risposta

23.11.2020 - 06:48

DROPS Design answered:

Buonasera Cesarina, se fa riferimento agli aumenti sul davanti/dietro si aumenta ai lati a livello dei segnapunti. Buon lavoro!

23.11.2020 - 21:56

country flag Johanna wrote:

In welcher Farbe wird die Erhöhung gestrickt? In der deutschen Anleitung steht dunkelrosa. In der Englischen nur rosa. Was ist mit "Faden anziehen" gemeint? Sollen verkürzte Reihen gestrickt werden? Danke!

30.05.2019 - 22:59

DROPS Design answered:

Liebe Johanna, die Erhöhung wird mit rosa gestrickt - deutsche Anleitung wird angepasst - dieses Video zeigt wie man eine Erhöhung strickt, und wie man den Faden etwas anziehen wird. Viel Spaß beim stricken!

31.05.2019 - 09:50