DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 184-9
DROPS Design: Mynstur li-082
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XXL/XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tiheyrir garnflokki B)
600-650-750 g litur 9018, sægrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar (hekluð sem viðbót við mynsturteikningu A.1- A.5).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 28 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 14. Í þessu dæmi þá er aukið með því að hekla 2 stuðla í 14. hverja lykkju.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 16. Í þessu dæmi þá eru heklaðar ca 15. og 16. hver lykkja saman.
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring og handvegur er hekaður í hringinn. Ermar eru heklaðar í hring og framstykkin eru hekluð fram og til baka. Að lokum er heklaður kantur í kringum allan hringinn og framstykkin. Byrjun á umferð = miðja að aftan/í hnakka.

HRINGUR:
Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 5 með Lima og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið A.1 alls 13 mynstureiningar í umferð – lesið LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
Þegar næst síðasta umferð í mynstri A.1 hefur verið hekluð til loka, haldið síðan áfram eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S/M og L:
Nú eru 182 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 36 cm að þvermáli.
Heklið nú handveg og aukið út lykkjum jafnt yfir þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/um hverja loftlykkju yfir fyrstu 28-28 lykkjur og aukið út um 2-2 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir).
Heklið 32-36 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 32-36 lykkjur. Heklið 1 stuðul/um hverja loftlykkju í næstu 62-54 lykkjur og aukið út um 9-9 stuðla jafnt yfir. Heklið 32-36 lausar loftlykkjur og hoppið yfir 32-36 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/um hverja loftlykkju yfir 28-28 lykkjur sem eftir eru og aukið út um 2-2 stuðla jafnt yfir = 195-195 stuðlar.
Heklið nú A.2 (= 13 mynstureiningar í umferð), EN yfir 32-36 nýjar loftlykkjur er stuðull í 2. umferð í mynsturteikningu A.2 skipt út fyrir 1 fastalykkju um loftlykkjuumferð.
Í umferð eftir að handvegur hefur verið heklaður alls 52-52 loftlykkjubogar í umferð og 9-10 loftlykkjubogar og 8-9 fastalykkjur um 32-36 loftlykkjur fyrir handveg. Þegar allt A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 78 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 63 cm að þvermáli.

STÆRÐ XXL/XXXL
Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu A.1. Heklið síðan A.2 (= 13 mynstureiningar í umferð). Þegar 3 fyrstu umferðirnar hafa verið heklaðar til loka eru 234 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 45 cm. Heklið nú handveg og aukið út lykkjum jafnt yfir þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/um hverja loftlykkju yfir fyrstu 36 lykkjur og aukið út um 2 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir). Heklið 40 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 40 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/um hverja loftlykkju í næstu 82 lykkjur og aukið út um 9 stuðla jafnt yfir. Heklið 40 loftlykkjur og hoppið yfir 40 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/um hverja loftlykkju yfir þær 36 lykkjur sem eftir eru og aukið út um 2 stuðla jafnt yfir = 247 stuðlar. Haldið síðan áfram með A.2, EN yfir 40 nýjar loftlykkjur er stuðull í 5. umferð í mynsturteikningu A.2 skipt út fyrir 1 fastalykkju um loftlykkjuumferð. Í umferð eftir að heklaður heftur verið handvegur eru alls 65 loftlykkjubogar í umferð og 11 loftlykkjubogar og 10 fastalykkjur um 40 loftlykkjuboga fyrir handveg. Þegar allt A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 78 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 63 cm að þvermáli.

ALLAR STÆRÐIR:
Byrjið á 3. Umferð í mynsturteikningu og heklið mynstur þannig: Heklið * A.3, A.4 *, heklið frá *-* alls 13 sinnum í umferð. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 4 síðustu umferðir í mynsturteikningu til loka.
Þegar umferð merkt með stjörnu í mynsturteikningu A.3 hefur verið hekluð til loka er stærð S/M og L lokið. Í stærð XXL/XXXL er haldið áfram þar til öll mynsturteikning A.3 hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú eru 117-117-130 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 91-91-101 cm að þvermáli.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring.
Byrjið mitt undir ermi og heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 64-72-80 stuðla jafnt yfir í stuðul/um loftlykkjuboga í kringum allan handveg (= 32-36-40 stuðlar meðfram hvorri hlið á handveg). Heklið nú frá 2. umferð í mynsturteikningu A.5 (alls 16-18-20 mynstureiningu í umferð), JAFNFRAMT í umferð með svörtum punkt í mynsturteikningu er fækkað um 4 stuðla jafnt yfir í umferð. Endurtakið 4 síðustu umferðir í mynsturteikningu og fækkið lykkjum í umferð með svörtum punkt alls 7-8-10 sinnum á hæðina = 36-40-40 stuðlar í umferð. Heklið síðan 3-3-1 mynstureiningar til og með A.5 á hæðina án þess að fækka stuðlum. Ermin mælist ca 51-56-56 cm. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÆGRA HLIÐARSTYKKI:
Heklið stuttar umferðir fram og til baka á hægra framstykki. Byrjið á fyrsta stuðli á eftir 16.-16.-18. loftlykkjuboga frá byrjun á umferð og heklið frá réttu. ATH: Í mynsturteikningu A.6, A.7 og A.8 er heklað frá umferð með ör og í mynsturteikningu A.3 er heklað frá umferð með svörtum ferning!
Heklið A.6 yfir fyrstu 10 loftlykkjuboga, heklið A.3 yfir 3 loftlykkjuboga, heklið A.7 yfir næstu 2-2-4 loftlykkjuboga (= 2-2-4 mynstureiningar), heklið A.3 yfir næstu 3 loftlykkjuboga, heklið A.8 yfir næstu 10 loftlykkjuboga. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.7 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 4 síðustu umferðir í mynsturteikningu á hæðina. Þegar A.6 og A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina og umferð með stjörnu í mynsturteikningu A.3 hefur verið hekluð til loka, klippið frá og festið enda.

VINSTRA HLIÐARSTYKKI:
Hoppið yfir 29-29-34 lykkjuboga meðfram neðri kanti á peysu og festið enda með 1 fastalykkju í næsta stuðul. Heklið síðan vinstra framstykki alveg eins og hægra framstykki. Það eiga að vera 29-29-34 loftlykkjubogar á milli framstykkja meðfram neðri kanti og 32-32-36 loftlykkjubogar á milli framstykkja í hnakka (= 16-16-18 loftlykkjubogar í hvorri hlið í byrjun umferðar).

KANTUR:
Heklið nú kant í kringum allan hringinn þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við byrjun á umferð (= aftan í hnakka), heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 loftlykkjur, 1 stuðull í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* hringinn alla umferðina en meðfram kanti í mynsturteikningu A.6 og A.8 er hoppað yfir ca 2 cm.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) * heklið 4 stuðla um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* hringinn alla umferðina. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 6 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = byrjið í þessari umferð!
symbols = þegar þessi umferð hefur verið hekluð er hringur í stærð S/M og L lokið - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = í þessari umferð eru stuðlar felldir af jafnt yfir - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = heklið 3 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 2 stuðla alveg eins til viðbótar, en þegar draga á bandið í gegnum síðasta stuðul, dragið bandið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
symbols = stór ferningur, sjá útskýringu í uppskrift
symbols = 1 hálfur stuðull í lykkju
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Conny wrote:

Hallo zusammen, ich steh grad auf dem Schlauch. Ich kann aus der Häkelschrift und der Anleitung nicht rauslesen wie viele Stäbchen in den Maschenring gehäkelt werden. Kann mir da bitte jemand helfen? 🤗 Vielen Dank

21.04.2024 - 13:47

DROPS Design answered:

Liebe Conny, A.1 soll 13 Mal in der Runde gehäkelt werden (siehe schriftliche Anleitung), bei der 1. Runde in A.1 wird man 1 Stäbchen um den Luftmaschenring x 13 häkeln = so sind es 13 Stäbchen am Ende der 1. Runde. Viel Spaß beim Häkeln!

22.04.2024 - 08:42

country flag Lidia wrote:

Ho capito! ho fatto un campione a cerchio, anziché quadrato e confrontato con le misure che il cerchio avrà quando sarà circa 10 cm di diametro (schema A1 alla quarta riga, facendo proporzione con dimensione delle maglie del vostro campione) suggerisco la modalità "campione a cerchio", per questo tipo di modelli grazie mille per la gentilezza e disponibilità buon lavoro

22.02.2024 - 10:59

country flag Lidia wrote:

Grazie per la risposta Come avevo scritto, anche cambiando l’uncintetto di solo mezza misura, ho le righe corrette ma Poche maglie (10 cm=14 maglie e non 16) e quindi non riesco mai ad avere il campione corretto. Quale uncinetto va meglio? Come si fa ad aumentare la lunghezza e non la larghezza se è lavorato in cerchio? Grazie ancora

21.02.2024 - 09:37

country flag Lidia wrote:

Vorrei fare questo cardigan (gilet, in francese), ho un problema con il campione. il mio campione con 16 maglie alte, misura 10 cm di larghezza= 16 maglie alte; e 10 cm di altezza con 10 giri (anziché gli 8 richiesti dal campione). se uso uncinetto più grande, ho numero righe corretto (8), ma in 10 cm meno maglie (circa 14) come fare? usare uncinetto più piccolo e poi, nel cerchio principale (cioé nel dietro), dovrò fare due giri in più? grazie per la vs risposta

20.02.2024 - 15:17

DROPS Design answered:

Buongiorno Lidia, deve trovare la misura di uncinetto che le permette di ottenere il campione indicato, altrimenti deve adattare la sua lavorazione, ad esempio mantenendo il numero di maglie in larghezza e adattando poi la lunghezza. Buon lavoro!

21.02.2024 - 08:50

country flag Carolyn wrote:

Thank you for your very prompt response to my question. It was very helpful. Carolyn

17.06.2022 - 11:10

country flag Carolyn wrote:

Thank you very much for your prompt reply. Just confirming the 5th row as you have written - skip 2/3, chain 3, 1 dc in next stitch. I read that as skip 2 at the beginning of the round, and then skip 3 for the remainder of the round. Is that correct? Thank you again for your help. Carolyn

16.06.2022 - 22:06

DROPS Design answered:

Dear Carolyn, not exactly, you have to repeat A.2 as for other round, this means you will crochet as follows: *3 ch, skip 2 dc, 1 dc in next dc, (3 ch, skip 3 dc, 1 dc in next dc) x 4* and repeat from *-* (= 5 ch-spaces in each A.2 and repeat A.2 in the round as before). Happy crocheting!

17.06.2022 - 07:49

country flag Carolyn wrote:

I am working on the armholes and have done the increasing and the 40 chains for the underarm. I have exactly 247 stitches - this includes the 40 chain on either armhole. The pattern then says to continue with A.2. Is this at Row 5? And do I work a single crochet in each of the 40 chain? This is the second time I have done this, but I am always 2 chain spaces short. I look forward to hearing from you. Thank you, Carolyn

16.06.2022 - 09:08

DROPS Design answered:

Dear Carolyn, correct, you will now work the 5th row of A.2 = (skip 2/3, chain 3, 1 dc in next st), repeat from (to) around, but when working in the 40-ch-spaces, work 1 sc instead of the dc. Happy crocheting!

16.06.2022 - 09:59

country flag JoAnnah wrote:

Aan het eind van A.1 heb ik 210 steken en niet 182 steken, zoals in de omschrijving staat. Hoe kan dit? Ik heb 14x het telpatroon: ik ben begonnen met 1 stokje te haken en dit 13x herhaald.

12.01.2022 - 15:31

DROPS Design answered:

Dag JoAnnah,

In de vertaling naar het Nederlands is een foutje geslopen. Het moet zijn 'Wanneer u de een na laatste toer in telpatroon A.1 heeft gehaakt. Het is nu aangepast.

11.02.2022 - 17:51

country flag Saba ASGHAR-KHAN wrote:

Hello. Is the chain 3 worked at the beginning of the round (not shown) counted as a dc? How do I start round 3 for example - do I slip stitch into the chain 1 space and chain 3 to count as the first double crochet?

04.10.2021 - 00:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Asghar-Khan, the first 3 chains do not count as first stitch but are worked extra - see CROCHET INFORMATION. Happy crocheting!

04.10.2021 - 08:50

country flag BillyRhymn wrote:

яндекс.ру

31.12.2020 - 14:16