DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17556.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rosendal

Settið samanstendur af: Peysu með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Húfu og vettlingum með marglitu norrænu mynstri. Settið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 181-1
DROPS Design: Mynstur me-111
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca:
700-750-850-900-1000-1050 g litur 32, dökk bleikur
200-200-200-200-250-250 g litur 08, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 07, ljós brúnn

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki B)
600-650-700-800-850-950 g litur 32, dökk bleikur
100-150-150-150-150-200 g litur 08, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 07, ljós brúnn

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 32, dökk bleikur
50-50 g litur 08, ljós beige

VETTLINGAR:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100 g litur 32, dökk bleikur
50 g litur 08, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 eða 80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir stroff.

DROPS TRÉTALA, NR 513: 8-8-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17556.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (á við um peysu):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 16 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 5,86. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 6. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

UPPHÆKKUN (á við um aftan á peysu):
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan).
Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-15 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-42-45-45 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-70-75-75 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður).

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.8.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.9 til A.13.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi á peysu):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um húfu):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 26. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 25. og 26. hver lykkja slétt saman.

HNAPPAGAT (á við um peysu):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 2 lykkjum slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm, fellið síðan af 7-7-7-7-8-8 næstu hnappagöt með ca 7½-8-8-8½-7½-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-107-110-116-119-122 lykkjur (meðtaldar 8 kantlykkjur við miðju að framan á hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 8 kantlykkjur að framan), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkjur slétt og endið með A.2 (= 8 kantlykkjur að framan). Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan - sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 15-15-17-16-18-15 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 119-122-127-132-137-137 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður (uppslættir frá fyrri umferð eru prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat). Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.3A þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-21-22-23-24-24 mynstureiningar 6-5-5-5-5-5 lykkjur), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með A.2 (= 8 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 255-311-325-339-353-401 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-14-14-16-16-18 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er útaukningsumferð (merkt með ör-1 í A.4A) og er prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.4A þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út 28-14-14-28-42-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.4B (= 1 lykkja) og endið með A.2 (= 8 lykkjur) = 283-325-339-367-395-423 lykkjur. Nú er pláss fyrir 19-22-23-25-27-29 mynstureiningar A.4A (14 lykkjur). Haldið áfram með A.4A/A.4B með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður.
Í umferð merktri með ör-2 í A.4A er aukið út um 16-2-20-28-24-16 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 299-327-359-395-419-439 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er síðasta umferðin prjónuð frá réttu og stykkið mælist ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu með litnum dökk bleikur þannig: Haldið áfram með A.2 yfir kant að framan, prjónið 42-46-49-55-61-65 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-91-97-109-121-129 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-46-49-55-61-65 lykkjur brugðið og haldið áfram með A.1 yfir kant að framan (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 199-215-231-255-279-303 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu með litnum dökk bleikur þannig: Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan, prjónið sléttprjón þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út um 10-6-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með A.2 yfir kant að framan = 209-221-233-257-281-305 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Haldið áfram með A.2 yfir kant að framan. Prjónið A.5B (= 1 lykkja), prjónið A.5A þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16-17-18-20-22-24 mynstureiningar 12 lykkjur – ATH: Mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu) og endið með A.1 yfir kant að framan. Haldið svona áfram með mynstur.
Í umferð merktri með ör-3 í A.5A yfir 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 221-233-245-269-293-317 lykkjur.
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan, prjónið A.6A þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni (= 34-36-38-42-46-50 mynstureiningar 6 lykkjur), prjónið A.6B (= 1 lykkja) og haldið áfram með A.2 yfir kant að framan. Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið A.6 þar til stykkið mælist ca 22-23-24-24-24-24 cm frá skiptingu fyrir ermum – stillið af að prjónaðar séu 3 eða 5 umferðir með dökk bleikur á eftir einni umferð með “doppum”.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir kant að framan, prjónið A.7A þar til 9 umferðir eru eftir á prjóni (= 17-18-19-21-23-25 mynstureiningar 12 lykkjur), prjónið A.7B (= 1 lykkja) og endið með A.2 yfir kant að framan. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu með litnum dökk bleikur þar sem auknar eru út 42-48-48-54-60-66 lykkjur jafnt yfir = 263-281-293-323-353-383 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: A.1 yfir kant að framan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með A.2 yfir kant að framan. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-64-74-80-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 8-8-10-10-10-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum dökk bleikur = 66-72-84-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina við prjónamerki og prjónið A.5 hringinn (= 5½-6-7-7½-7½-8 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með A.4 alveg eins, nema passið að doppurnar verði á sama stað yfir A.5 eins og á fram- og bakstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið svona alls 9-12-18-18-18-21 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Í 8. hverri umferð, í L + XL: Í 5. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 48-48-48-54-54-54 lykkjur. Prjónið síðan A.4 þar til stykkið mælist ca 36-36-35-34-32-31 cm frá skiptingu – passið uppá að prjónaðar verði 2-4 umferðir með litnum dökk bleikur á eftir umferð með “doppum”. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 41-41-40-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 104-112 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 100-110 lykkjur. Prjónið A.8 hringinn (= 10-11 mynstureiningar 10 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir útaukningum í A.8 eru 140-154 lykkjur og 10-11 mynstureiningar 14 lykkjur.
Í umferð merktri með ör-1 í A.8 er fækkað um 16-18 lykkjur jafnt yfir = 124-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur.
Í umferð merktri með ör-2 í A.8 er fækkað um 16-16 lykkjur jafnt yfir = 108-120 lykkjur. Haldið áfram með mynstur.
Í umferð merktri með ör-3 í A.8 er fækkað um 24 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum = 84-96 lykkjur. Haldið áfram með mynstur.
Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 17-18 cm. Prjónið síðan sléttprjón með dökk bleikur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.8 er fækkað um 20-28 lykkjur jafnt yfir = 64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-20 cm er prjónað þannig: * Prjónið 1 umferð slétt, í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur og fækkað um 16-17 lykkjur jafnt yfir *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, en í hverri umferð þar sem lykkjum er fækkað, er prjónuð 1 lykkja færri áður en 2 lykkjur eru prjónaðar saman = 16-17 lykkjur eftir.
Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-9 lykkjur eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 21-22 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stoffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir 12. hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) = 52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.9 (= 26 lykkjur), síðan A.10 (= 26 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hefur verið upp að 3 svörtu ferningunum í mynsturteikningu er A.11 prjónað yfir þessar 3 lykkjur fyrir op fyrir þumal, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður í A.9 og A.10.
Þegar A.11 hefur verið prjónað til og með umferð 13 (merkt með þríhyrning í mynsturteikningu) og aukið hefur verið út 5 sinnum hvoru megin við op fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu, eru 13 þumalfingurs lykkjurnar settar á þráð, prjónið út umferðina = 49 lykkjur.
Síðasta umferð í A.9 er prjónuð þannig: Prjónið 19 fyrstu lykkjur í A.9. Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði, prjónið 4 síðustu lykkjur í A.9 og haldið áfram með A.10 yfir þær 26 lykkjur sem eftir eru = 52 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.12 yfir fyrstu 26 lykkjur og haldið áfram með A.10 yfir næstu 26 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir allar úrtökur eru 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26 cm ofan frá og niður.

ÞUMALL:
Setjið til baka 13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 9 lykkjur aftan við þumal (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjunum sem fitjaðar voru upp og 3 lykkjur hvoru megin við þær) = 22 lykkjur. Haldið áfram með A.11 hringinn og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir allar úrtöku eru 8 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið alveg eins og vinstri vettlingur þar til stroffið hefur verið prjónað til loka og auknar hafa verið út 52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.10 (= 26 lykkjur), síðan A.13 (= 26 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónað hefur verið upp að 3 svörtu ferningunum í mynsturteikninu er prjónað A.11 yfir þessar 3 lykkjur fyrir op fyrir þumal, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður í A.10 og A.13.
Þegar A.11 hefur verið prjónað til og með umferð 13 (merkt með þríhyrning í mynsturteikningu) og aukið hefur verið út 5 sinnum hvoru megin við op fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu, setjið 13 lykkjur fyrir op fyrir þumal á þráð, prjónið út umferðina = 49 lykkjur.
Síðasta umferð í A.13 er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.10 yfir fyrstu 26 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.13, fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði og prjónið 19 lykkjur sem eftir eru í A.13 = 52 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.10 yfir fyrstu 26 lykkjur og prjónið A.12 yfir næstu 26 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir allar úrtökur eru 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26 cm ofan frá og niður.
Prjónið þumal alveg eins og á vinstri vettlingi.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með dökk bleikum
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu með dökk bleikum
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með ljós beige
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með ljós brúnum
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með dökk bleikum, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = auka/fellið af hér
symbols = lykkja fyrir op fyrir þumal - prjónið A.11 yfir þessar lykkjur
symbols = 2 lykkjur slétt saman með ljós beige
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman með ljós beige
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman með ljós beige, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = Op fyrir þumal endar hér
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

181-1 c Rosendal Mittens

@struppine, Swaziland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Mari wrote:

Denne er nydelig! Dessverre enda en ovenfra g ned- oppskrift. Jeg vet det skal gå an å snu det, men det er mye styr med det.

25.08.2023 - 15:25

country flag Tove Gjerde wrote:

Er målene på skissen inkludert bevegelsesvidde?

23.03.2023 - 09:10

DROPS Design answered:

Hei Tove, Ved å bruke målene i skissen får du snittet som er vist i bildet. God fornøyelse!

24.03.2023 - 06:51

country flag Tove Gjerde wrote:

Jeg synes det er vanskelig å finne målene til de forskjellige størrelsene i oppskriftene. Hun som skal ha jakken er 89 cm rundt brystet og 91 cm rundt hoften. Hvilken Str tilsvarer det og hvordan ser jeg det.? Jeg har strikket siden jeg var 5 år og har normalt ikke problemer med oppskriftene. Hvorfor ikke sette målene sammen med Str ? Mvh Tove Gjerde

22.03.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Hei Tove, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle målene til de forskjellige størrelser. God fornøyelse!

23.03.2023 - 08:31

country flag Martine wrote:

Volgens het patroon moet je voor het boord onderaan het vest steken meerderen. Dan wordt het boord bij mij veel te los, dan gaat het golven. Moet je niet minderen?

14.05.2021 - 10:02

country flag Marion Van Der Form wrote:

Staat op het telpatroon alleen de heengaande naald vermeld of ook de teruggaande naald? Kan het nl nergens vinden

21.10.2020 - 18:00

DROPS Design answered:

Dag Marion,

In de telpatronen staan alle naalden aangegeven, dus zowel de heengaande als de teruggaande naalden.

22.10.2020 - 08:07

country flag TALLEMANT wrote:

Les dimensions ne collent pas avec les explications. La 1e partie de l'empiėcement (3A) en taille M qui fait 56 rangs devrait mesurer 20 cm et non 14 comme indiqué. De plus, quand le 2e dessin (A4) (62rgs) est fini, l'ouvrage est trop long de16 cm. Merci de me venir en aide. J'ai malheureusement déjà bien avancé.

13.05.2018 - 22:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tallemant, avez-vous la bonne tension en hauteur? soit 30 rangs = 10 cm. A.3A en taille M ne fait que 27 rangs pas 56 (tous les rangs figurent dans le diagramme, ceux sur l'endroit et ceux sur l'envers). Bon tricot!

14.05.2018 - 11:17

country flag Veronika Drotleff wrote:

Hallo...kann da leider nicht mehr weiter,es geht um die Aufteilung von Maschen vom Rumpfteil und Ärmel.....

07.04.2018 - 15:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Drotleff, welche Größe stricken Sie? Haben Sie die richtige Maschenanzahl für Ihre Größe?

09.04.2018 - 09:43

country flag Marie wrote:

Or to decrease at the beginning of the row?

25.10.2017 - 22:29

Marie wrote:

If the buttonhole is to be on the right band, should the instructions say to decease while on the wrong side row, not from the right side?

25.10.2017 - 21:24

DROPS Design answered:

Dear Marie, buttonholes are on the right front band, you are working the jacket top down, ie from RS start with left front piece and finish with right front piece, buttonholes will be worked at the end of a RS row. Happy knitting!

26.10.2017 - 09:51

country flag Luella wrote:

Tremendous things here. I'm very satisfied to peer your post. Thanks so much and I'm taking a look forward to touch you. Will you kindly drop me a e-mail?

02.08.2017 - 02:01