DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Bay Shorts

Stuttbuxur prjónaðar ofan frá og niður með tvöföldu perluprjóni úr DROPS BabyAlpaca Silk eða DROPS Safran. Stærð fyrir börn 0 - 6 ára.

DROPS Children 28-5
DROPS Design: Mynstur nr bs-009-bn
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116)
Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur A)
100-100-100 (150-150-150) g litur 6235, gráblár

Eða notið:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150 (200-200-200) g litur 06, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með tvöföldu perluprjóni (A.1) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNA OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 2,5 – fyrir kant.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

GÖT FYRIR SNÚRU:
Byrjið við miðju að aftan, prjónið 54-58-62 (66-70-74) lykkjur sléttprjón, fellið af 2 lykkjur, prjónið 8 lykkjur sléttprjón (= miðja að framan), fellið af 2 lykkjur og prjónið 54-58-62 (66-70-74) lykkjur sléttprjón. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir bæði götin þar sem lykkjur voru felldar af.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN:
Prjónið A.1 fram og til baka þannig: Byrjið við miðju að aftan og prjónið 5-5-5 (7-7-7) lykkjur mynstur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 10-10-10 (14-14-14) lykkjur mynstur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 18-18-18 (24-24-24) lykkjur mynstur (stillið af mynstrið þannig að það sé rétt hvoru megin við miðju að aftan), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 26-26-26 (34-34-34) lykkjur mynstur. Haldið svona áfram að prjóna yfir 8-8-8 (10-10-10) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við 4 sinnum til viðbótar (= alls 8 stuttar umferðir). Snúið síðan stykkinu og prjónið mynstur frá réttu til baka að miðju að aftan.

ÚTAUKNING:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið áfram með A.1 yfir 2 næstu lykkjur eins og áður (= miðja að framan eða miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat – útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.

ÚRTAKA (á við um innanverðu á skálm):
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Þegar fyrsta lykkjan á að vera slétt: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Þegar fyrsta lykkjan á að vera brugðin: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Þegar síðasta lykkjan á að vera slétt: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Þegar síðasta lykkjan á að vera brugðin: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.
----------------------------------------------------------

BUXUR:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá mitti og niður. Skálmarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 120-128-136 (144-152-160) lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyAlpaca Silk eða Safran. Byrjun á umferð = miðja að aftan.
Prjónið sléttprjón í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið fyrir broti – HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Prjónið sléttprjón í 1½ cm.
Í næstu 2 umferðum eru prjónuð GÖT FYRIR SNÚRU – sjá útskýringu að ofan. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 3 cm frá broti.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið UPPHÆKKUN AÐ AFTAN – sjá útskýring að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er haldið áfram með A.1 hringinn aftur yfir allar lykkjur (stillið af að mynstrið passi yfir upphækkun þegar prjónað er áfram). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-12-14 (15-16-18) cm frá broti í mitti (mælt við miðju að framan) er sett 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki á eftir 60-64-68 (72-76-80) lykkjum (= miðja að framan og miðja að aftan á buxum). Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – ATH: Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 4 sinnum = 136-144-152 (160-168-176) lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 14-16-18 (19-20-22) cm frá mitti (mælt frá broti við miðju að framan).

SKÁLM:
Byrjið við miðju að aftan og prjónið A.1 yfir fyrstu 68-72-76 (80-84-88) lykkjurnar eins og áður. Setjið 68-72-76 (80-84-88) lykkjur sem eftir eru á þræði. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og haldið áfram með A.1 hringinn. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = innan á skálm. Þegar prjónaðir hafa verið 1-1-2 (2-2-2) cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 2.-2.-2.- (3.-4.-4.) hverri umferð alls sinnum í öllum stærðum = 60-64-68 (72-76-80) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 þegar skálmin mælist 3-4-5 (6-7-7) cm (úrtöku á nú að vera lokið). Prjónið 4 umferðir sléttprjón, 1 umferð brugðið fyrir brot og 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og fellið laust af. Skálmin mælist ca 4-5-6 (7-8-8) cm frá skiptingu og niður að broti. Prjónið hina skálmina alveg eins. Stuttbuxurnar mælast ca 18-21-24 (26-28-30) cm frá mitti og niður (mælt frá broti við miðju að framan að broti neðan á skálm).

FRÁGANGUR:
Brjótið inn kantinn efst á buxunum að röngu og saumið niður, en passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.
Gerið alveg eins neðst á báðum skálmum.

SNÚRA PRJÓNUÐ Í HRING:
Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið þannig: 4 lykkjur slétt, færið lykkjurnar til á byrjun á prjóni, herðið á þræði aftan á stykki og prjónið 4 lykkjur slétt. Haldið svona áfram (ekki á að snúa stykkinu við) þar til snúran mælist ca 100-120 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum 4 lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Byrjið við miðju að framan og þræðið snúruna í gegnum opið í mitti á buxunum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.05.2022
Leiðrétting í UPPHÆKKUN AÐ AFTAN + BUXUR

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Brigitta wrote:

Guten Tag, mein Muster wird bei den Shorts, wenn A1 anfängt, schräg versetzt und nicht unterhalb. Woran liegt es? Zuerst habe ich mit Nadelspiel gestrickt, dann wieder neu angefangen mit Rundnadeln 3mm 60 cm. Beide Male erhalte ich ein schräges Muster, statt untereinander. VG

06.03.2024 - 10:17

DROPS Design answered:

Liebe Brigitta, A.1 wird insgesamt 30-32-34 (36-38-40) Mal in der Breite/in der Runde gestrickt, so sollte es passen. Beim Übergang zwischen Ende/Anfang von den Runden, versuchen Sie das Garn etwas fester zu ziehen, damit die erste und die letzte Masche etwas mehr nebeneinander leigen. Viel Spaß beim Stricken!

06.03.2024 - 11:50

country flag Lignon wrote:

Bonjour je cherche un modèle pour filles de 10 ans pour faire un short ou tricot. Merci d’avance.

06.12.2023 - 17:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lignon, retrouvez ici tous nos modèles de shorts et pantalons/leggins en 9/10 ans. Bon tricot!

07.12.2023 - 08:22

country flag Gabriele wrote:

Bei den Zunahmen vor der Teilung der Beine geht das Muster bei mir nicht auf! Bitte erklären sie mir doch die Strickweise. Dankeschön!!!

17.07.2022 - 23:33

DROPS Design answered:

Liebe Gabriele, bis alle Zunahmen gestrickt sind, wird das Muster nicht mehr passen, da es über 4 M gestrickt wird, aber wenn alle Zunahmen fertig sind, sollte dann das Muster anpassen. Viel Spaß beim stricken!

01.08.2022 - 10:37

country flag Jenni Virtanen wrote:

Tyhmä kysymys, mutta en millään ymmärrä miten saan helmineuleen jatkumaan lisättyjen silmukoiden jälkeen? 2 oikein ja 2 nurin menee väkisin sekaisin. Voisiko tätä vääntää rautalangasta?

22.04.2021 - 20:39

DROPS Design answered:

Hei, kun teet lisäyksen ole aina tarkkana, että neulot esim. 2 oikean silmukan viereen lisätyn silmukan nurin.

05.05.2021 - 16:57

country flag Chana wrote:

Hello, When you are measuring the moss stitch to get 18cm in the 5/6 size do you measure from the turning row or from the end of the stockinette? Is the waist band counted in the 18cm? Thank you.

19.12.2019 - 04:20

DROPS Design answered:

Dear Chana, you measure from the folding row (= the purled round after the first 3 cm stocking st); ie work A.1 when piece measures 3 cm from purled row (= 6 cm from cast on row), etc... Happy knitting!

19.12.2019 - 08:13

country flag Agathe Dufour wrote:

Est-ce que je peux faire ce modèle mais au point jersey?

06.06.2019 - 19:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dufour. Bien sur, bon travail.

06.06.2019 - 20:09

country flag Gabriele wrote:

Hallo, meine Enkelin ist 3Jahre alt und hat einen Bauchumfang von 51 cm,( ist sogar eine Pummelfee). In ihrer Anleitung ist aber schon bei der kleinsten Größe,(1/3 Monate),ein Umfang von 50 cm angegeben. Kann das stimmen ? Liebe Grüße, Gabriele

16.05.2019 - 15:49

DROPS Design answered:

Liebe Gabriele, gerne können Sie eine ähnliche Kleidung messen, diese Maßen vergleichen Sie dann mit den in der Maßskizze um die passende Größe zu finden. Viel Spaß beim stricken!

20.05.2019 - 13:33

country flag Rie Dyrmose wrote:

Kan heller ikke få mønsteret til at passe ved forhøjning bagved, nogen der har løsningen her??

07.05.2019 - 18:09

DROPS Design answered:

Hej Rie, Vi skal prøve at få lavet en video som viser hvordan man kan gøre.

08.05.2019 - 09:33

country flag Jose Suntjens wrote:

Ik kom er niet aan uit hoe dat ik de verhoogde kant moet maken in de gerstekorrel, dan klopt het patroon niet meer kunt u me dat verduidelijken? Dank.

23.02.2019 - 17:16

country flag Liv Gravdal Malmhaug wrote:

Enig med Marianne. Umulig å få mønster til å stemme ved mønster A1 ved forhøyning bak. Her må det rettes i oppskriften. Velger å strikke glattstrikk til forhøyning er ferdig.

20.02.2018 - 14:05