Del Faye wrote:
Can this pattern be used with DK wool? if so, how would decreases be made?
23.09.2023 - 15:02DROPS Design answered:
Dear Del Faye, yes, you could use a DK yarn, but you would need to work a gauge and calculate the pattern according to the gauge. See here how to calculate a pattern: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19. Happy knitting!
24.09.2023 - 23:11REINE MARIE wrote:
Bonsoir je commence avec plaisir ce beau bonnet mais voilà ,je suis les explications c'est à dire par 17mailles ensuite je fais les 10mailles ;tout le long mais cela ne tombe pas juste alors comment je dois commencer ?Merci de votre rèponse
12.01.2021 - 21:47DROPS Design answered:
Bonjour Reine Marie, pour tricoter le bonnet, vous devez répéter alternativement A.2 et A.3 ainsi: *tricotez les 17 m de A.2, tricotez les 10 mailles de A.3*, répétez ces 27 mailles encore 5 ou 6 fois = 135-162 mailles. Bon tricot
13.01.2021 - 07:03Merja wrote:
Miksi nuo kaavapiirrokset eivät näy vieläkään?? Piirroksien puuttumisesta kirjoitettu teille jo vuosisitten!Tämä ainoa 28silmukkaa/10cm myssy, joka langallani neulottavissa. Piirokset voi lähettää vaikka sähköpostiosoitteeseen.
29.11.2020 - 19:32DROPS Design answered:
Hei, nyt piirrokset avautuvat.
30.11.2020 - 14:16Mariona wrote:
Hola! Para el gorro, talla L, se dice de montar 162p, para hacer el elástico 2/2. 162 encaja muy bien con las repeticiones de 27p, pero no para el canalé. No deberían ser 164 o 160, y luego ajustar a 162? Gracias
11.09.2020 - 23:30DROPS Design answered:
Hola Mariona. Hemos enviado tu pregunta al departamento de diseño. Publicaremos una corrección los más pronto posible.
27.09.2020 - 20:50Sonja wrote:
Jostain syystä tässä suomenkielisessä ohjeessa ei näy piirrokset. Ei näy koneella eikä puhelimella.
03.10.2019 - 19:29Carina Rosshed Renkert wrote:
Jag stickar mössan. I diagramförklaring ska man sticka 2 maskor på flätsticka framför arbetet, sticka 2 maskor, sticka maskorna från flätstickan. Men i själva diagramet så är det ju 6 maskor som ska stickas fläta över. Likadant i A.3 och A.5. Hur går det till?
06.12.2018 - 20:30DROPS Design answered:
Hei Carina. Det har du helt rett i, her mangler det et symbol i symbolforklaringen. Du skal strikke slik: sett 3 masker på flettepinne foran arbeidet, strikk masker rett, strikk 3 masker rett fra flettepinnen. Vi skal få lagt til dette symbolet snarest. Takk for beskjed og god fornøyelse.
07.12.2018 - 08:23Christiane wrote:
Bonjour, je viens de terminer le bonnet avec la laine Fabel "brume de rose" et je suis enchantée. J'ai adoré le tricoter. Merci pour le modèle, pour les explications claires et pour cette laine. Cela me permet d'avoir un bonnet fantaisie qui demande juste un peu d'attention dans les diagrammes avec un très joli rendu.
03.03.2018 - 11:06Ingrid wrote:
"Lägg upp 136-162 maskor på strumpstickor 2,5 med Fabel. Sticka 1 varv rätt, sedan stickas det resår 2 rätmaskor, 2 avigmaskor. När arbetet mäter 4 cm byts det till strumpstickor 3. Sticka 1 varv rätt där det minskas 1-0 maskor jämnt fördelat = 135-162 maskor." ska vara "lägg upp 136-160" ... "där det minskas 1m respektive ökas 2m" alternativt "Lägg upp 136-164" .... " där det minskas 1-2 maskor jämnt fördelat", 162 är inte och blir aldrig jämnt delbart med fyra.
24.03.2017 - 12:26
Sea Spray |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, vettlingum og hálsskjóli með köðlum og öldumynstri úr DROPS Fabel. Stærð S-L
DROPS Extra 0-1369 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá úlnlið að fingurtoppi. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 60-64 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-6 lykkjur jafnt yfir = 51-58 lykkjur. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannnig: 0-2 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 27 lykkjur), 24-29 lykkjur sléttprjón. A.1 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm byrjar útaukning fyrir þumal, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, til að koma í veg fyrir gat er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. Aukið út utan við útaukar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 11-13 þumallykkjur (61-70 lykkjur alls). Þegar stykkið mælist 12-13 cm eru 11-13 þumallykkjur settar á þráð. Í næstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumallykkjur = 51-58 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 þar til stykkið mælist 22-23 cm (3½ -4 cm að loka máli). Setjið nú 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 27-29 lykkjur. Prjónið síðan í hring með mynstur og sléttprjón eins og áður, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur á undan prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum strax eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 7-8 sinnum = 23-26 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 12-13 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 lykkjur af þræði á sokkaprjón 2,5 og prjónið að auki upp 3 lykkjur aftan við þessar lykkjur = 14-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring í ca 5½-6 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 7-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema gagnstætt. Aukið út fyrir þumal hvoru megin við 28. og 32. lykkju í umferð. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. Neðan frá og upp að toppi á húfu. HÚFA: Fitjið upp 136-164 lykkjur á hringprjóna 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-2 lykkjur jafnt yfir = 135-162 lykkjur. Prjónið síðan þannig: * A.2 (= 17 lykkjur), A.3 (= 10 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 5-6 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.2 og A.3 á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 13-15 cm (stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.2/A.3 á hæðina) prjónið síðan þannig: * A.4, A.5 *, prjónið frá *-* alls 5-6 sinnum. Þegar A.4 /A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 65-78 lykkjur í umferð. Prjónið allar lykkjur saman 2 og 2 = 33-39 lykkjur. Prjónið allar lykkjur saman 2 og 2, tvisvar sinnum til viðbótar = 9-10 lykkjur. þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Stykkið mælist ca 23-25 cm. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 168 lykkjur á hringprjón 3 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þegar stykkið mælist 20 cm. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Sabine wrote:
Hallo, wenn ich die Handschuhe nach Anleitung stricke, erhalte ich den linken Handschuh. Das ist oben vertauscht!
18.03.2022 - 14:43