DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sway Me More

Prjónað pils úr DROPS Karisma með köðlum og áferð, prjónað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 171-28
DROPS Design: Mynstur nr u-783
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350-350-400-450-500-500 g litur nr 72, ljós perlugrár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni og 23 l x 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
TEYGJA: ca 66-100 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, (t.d. 152 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8 l) = 19. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l á undan 19. hverri l.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 2 l í garðaprjóni í hvorri hlið (= 4 l í umf) þannig:
Aukið út á eftir 2 l garðaprjón og prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út á undan prjónamerki og 2 l garðaprjón þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar l í garðaprjóni.

STUTTAR UMFERÐIR:
Til að einingin í garðaprjóni í hvorri hlið dragist ekki mikið saman á hæðina þá eru prjónaðar stuttar umf í 4. hverri umf þannig:
Prjónið allar l í garðaprjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka yfir allar l í garðaprjóni, snúið við, herðið á þræði, prjónið yfir allar l í garðaprjóni, haldið síðan áfram hringinn. Endurtakið í hinum einingunum í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

PILS:
Fitjið upp 152-166-180-202-226-252 m með Karisma á hringprjón nr 3. Prjónið sléttprjón í 2 cm, prjónið 1 umf br (= strengur). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni í 2 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 8 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 160-174-188-210-234-260 l. Prjónið nú mynstur þannig: A.1 (= 10 l), A.2 (= 10 l), A.3 (= 3 l) 9-10-11-13-16-19 sinnum á breiddina, prjónið 2 fyrstu l í A.3, A.2, A.4 (= 10 l), 1 l sl, 1 l br, 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið eitt prjónamerki hér, 3-7-11-16-19-23 l garðaprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 2 l garðaprjón, 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umf.

Í næstu umf byrjar útaukning og stuttar umf í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 og STUTTAR UMFERÐIR! ATH: Stuttar umferðir í hliðum eru taldar með í fjölda umf sem aukið er út í.
Aukið svona út í annarri hverri umf 0-2-8-10-11-11 sinnum, í 4. hverri umf 2-4-4-4-4-4 sinnum og í 6. hverri umf 16-14-12-11-11-11 sinnum = 240-262-292-318-346-372 l (meðtalin útaukning í A.1 og A.4 = 8 l fleiri).
Þegar mynstur hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynstur yfir sig sjálft á hæðina, en prjónið A.5 yfir A.1 og A.4. Þegar A.5 hefur verið prjónað 4-4-4-5-5-5 sinnum á hæðina, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til fyrstu 16-16-16-14-14-14 umf í A.5 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan sl yfir sl og br yfir br yfir l í A.5 og A.2. Aðrar l í umf halda áfram í mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm aukið út um 4-5-5-4-5-4 l jafnt yfir l í garðaprjóni í hvorri hlið (= alls 8-10-10-8-10-8 l) = 248-272-302-326-356-380 l. Prjónið nú stroff þannig:
* Prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir fyrstu 22 l, prjónið A.6 yfir næstu 27-30-33-39-48-57 l (= 9-10-11-13-16-19 sinnum), prjónið fyrstu 2 l í A.6, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 24 l, prjónið A.7 yfir næstu 45-54-66-72-78-81 l (= 15-18-22-24-26-27 sinnum), prjónið 3 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 268-294-326-354-390-420 l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Brjótið faldinn saman tvöfaldan að röngu og saumið fallega niður. Skiljið eftir smá gat til að þræða teygju í gegn.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = stejið 1 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l br af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 1 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 1 l br, sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Sandrine wrote:

Bonjour Je tricote une taille s, pouvez vous me dire à quel rang on atteint les 240 mailles. Merci

24.02.2019 - 11:59

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, en taille S, on augmente 2 fois tous les 4 rangs/tours et 16 fois tous les 6 rangs/tours, vous aurez ainsi les 240 mailles quand toutes les augmentations auront été faites, soit 104 rangs point mousse (soit 52 côtes mousse sur les côtés). Bon tricot!

25.02.2019 - 10:47

country flag Jocelyne wrote:

Bonjour, je ne comprend pas les augmentations dans augmentation 2 - 4 augmentions c-à-d deux pour chacun des côtés . Merci beaucoup

05.11.2018 - 21:35

DROPS Design answered:

Bonjour Jocelyne, sur les côtés de la jupe vous avez: 2 m point mousse, un marqueur, 3-23 m point mousse en fonction de la taille, un marqueur, 2 m point mousse. Vous allez augmenter après les 2 premières m point mousse = après le marqueur et avant les 2 dernières m point mousse = avant le marqueur ainsi: 2 m point mousse, 1 jeté, continuez au point mousse jusqu'au 2ème marqueur, 1 jeté, 2 m point mousse. Bon tricot!

06.11.2018 - 09:04

country flag Nathalie wrote:

Bonjour , j'aimerais une version de ce modèle un peu plus long , juste en haut du genou , si vous pouvez me conseiller j'aimerais bien, merci

28.04.2017 - 04:18

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Votre magasin DROPS saura vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

28.04.2017 - 09:17

country flag Solveig wrote:

Hei, Jeg har strikket 1. omg med diagram = 174 m, men er usikker på økning videre. Jeg skal få 262 m, altså 88 økt. Hver 2.omg øk 2 i rille(x2), hver 4.omg øk 4 i rille(x2) og hver 6. omg øk 14 i rille(x2). Forkortede pinner hver 4. rilleomg. Hvis man øker ut diagrammet blir det vel altfor mange m? Øker man kun til 12.omg? Mvh, Solveig

11.04.2017 - 21:33

DROPS Design answered:

Hej Solveig, du har 174m øger altid 4 m på øgeomgangen. Først hver 2.omg 2 gange = 8m, så på hver 4.omg 4 gange = 16m, så på hver 6.omg 14 gange = 56m. SAMTIDIG som du øger i A1+A4 (4mx2) = 8 m. Du har nu 174+8+16+56+8 = 262 m. God fornøjelse!

28.04.2017 - 08:12

country flag Christel wrote:

Quand on à tricoter A.5,4 fois en hauteur,on recommence comme avant,c'est à dire: A.1,A.2,A.3,A.4,A.5? Quand on tricote les premiers tours de A.6/A.7 ,comment continuer? On continue essentiellement sur le diagramme et on recommence à chaque fois pour atteindre 44 cm. Merci Beaucoup pour votre réponse

17.03.2017 - 11:23

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, tout à fait, quand A.5 a été tricoté 4 fois en hauteur, continuez les autres diagramme comme avant jusqu'à ce que les 16 premiers tours de A.5 aient été tricotés. Au moment de tricoter A.6 et A.7, tricotez les autres mailles comme elles se présentent (= en m end au-dessus des m end et en m env au-dessus des m env) . Bon tricot!

17.03.2017 - 11:55

country flag Christel wrote:

Bonjour. Merci pour le patron. J'aurais besoin de quelques explications. Faut-il tricoter le diagramme A.3 uniquement sur les deux premières mailles ou faut-il au tour suivant le tricoter sur 3 mailles?Le diagramme A.3 est plus petit(10 rangs)que A.1,A.2,A.4 doit on le tricoter 2 fois en hauteur ?ou doit on rapprocher A.2 de A.4? Quand on les répètes en hauteur doit on tricoter à nouveau A.3,deux fois?

17.03.2017 - 11:13

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, vous devez tricoter ainsi en largeur: *A.1 (= 10 m), A.2 (= 10 m), 9-10-11-13-16-19 fois A.3 (= 3 m) en largeur soit 27-30-33-39-48-57 mailles en A.3, tricoter ensuite les 2 premières m de A.3 seulement, A.2, A.4 (= 10 m), 1 m end, 1 m env, 2 m POINT MOUSSE – voir ci-dessus, placer un marqueur ici, 3-7-11-16-19-23 m point mousse, placer un marqueur ici, 2 m point mousse, 1 m env, 1 m end* - quand les diagrammes sont terminés en hauteur, reprenez-les au 1er rang, et continuez les autres s'ils ne sont pas finis, en largeur, continuez ainsi comme indiqué. Bon tricot!

17.03.2017 - 11:53

country flag FREDERIQUE BARAKAT wrote:

Bonjour je tricoté sur la taille L j'ai 188 mailles avant de commencer les diagrammes. Je tricoté les diagrammes comme expliquer mais le problème c'est que tout tricoter cela fait 172 mailles. Comment dois-je tricoter les16 mailles restantes? De plus ces 16 mailles sont en trop par rapport aux diagrammes. Merci de me aider à comprendre.

25.01.2017 - 16:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barakat, tricotez les 188 m ainsi: *A.1 (= 10 m), A.2 (= 10 m), 11 fois A.3 (= 11x3= 33 m), les 2 premières m de A.3, A.2 (=10 m), A.4 (= 10 m), 1 m end, 1 m env, 2 m point mousse, marqueur, 11 m point mousse, marqueur, 2 m point mousse, 1 m env, 1 m end*, soit: 10 + 10 + 33 + 2+ 10 + 10 + 1 + 1+ 2 + 11 + 2 + 1 + 1 = 94 m, en répétant de *-* encore 1 fois vous avez 2 x 94= 188 m. Bon tricot!

25.01.2017 - 17:07

country flag Tina Borup wrote:

Når man skal gentage diagrammet i højden efter første gang,,,,,, er det så ikke kun a.2 og a .5 man skal bruge. K.H. Tina

03.12.2016 - 12:24

DROPS Design answered:

Hej Tina. Nej, Naar diagrammerne er strikket 1 gang i höjden (A.1/A.4), saa fortsaetter du som der staar i opskriften: gentages diag i højden, men der strikkes A.5 over A.1 og A.4. Når A.5 er strikket 4-4-4-5-5-5 gange i højden, fortsættes der med mønster som før til de første 16-16-16-14-14-14 omg i A.5 er strikket færdig. Fortsæt med r over r og vr over vr over m i A.5 og A.2. De resterende m på omg fortsætter i mønsteret som før.

06.12.2016 - 15:28

country flag Inger wrote:

Hei. Når jeg starter opp med mønsteret får jeg ikke antall masker til å stemme på første omgang. Dette står i oppskriften; strikk de 2 første m i A.3, A.2, A.4 (= 10 m) Oppfatter at dette må bli 6 masker, og ikke 10 Er dette feil, og årsaken til at ikke antall masker stemmer?

01.10.2016 - 16:18

DROPS Design answered:

Hej Inger. Saadan laeser jeg det; Du strikker de to förste m af A.3 og herefter strikker du hele A.2 (10 masker) og hele A.4 (10 m)

04.10.2016 - 15:37