DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Winter is Coming

Prjónað vesti / slipover með klauf í hliðum og hringlaga hálsmáli úr 1 þræði DROPS Cloud, 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S – XXXL.

DROPS 173-47
DROPS Design: Mynstur nr co-033
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
450-450-500-550-600-700 g litur nr 03, perlugrár

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-550-600-650-700-800 g litur nr 03, ljós grár

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio
500-500-550-600-650-750 g litur nr 03, perlugrár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 7 fyrir stroff og kant með garðaprjóni í hálsi – eða þá stærð sem þarf til að 12 l x 16 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 540: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umferð, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 75 l), mínus kantlykkjur (t.d. 12) og deilið þessum l með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13 l) = 4,8. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 4. og 5. hver l prjónaðar saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 2 hnappagötum í hvorri hlið á framstykki. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist 16 og 26 cm í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í 2 stykkjum og saumað saman á öxl.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 75-81-87-93-99-105 l (meðtaldar 6 kantlykkjur í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með 1 þræði Cloud, 1 þræði Wish eða 2 þráðum Air. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir á prjóni og endið með 3 l br og 6 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 21 cm. Í næstu umf frá röngu, skiptið yfir í hringprjón 8 og prjónið sléttprjón, jafnframt því er fækkað um 13-15-17-17-17-15 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 62-66-70-76-82-90 í umf.
Haldið áfram sléttprjón með 6 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm setjið síðustu l í byrjun á hverri umf í hvorri hlið á þráð fyrir öxl þannig (ATH: Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, þá eru l prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 7-8-8-9-10-11 l alls 2-3-2-2-3-2 sinnum og 8-0-9-10-0-12 l 1-0-1-1-0-1 sinni á þráð í hvorri hlið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsi. Þegar allar l hafa verið felldar af/settar á þráð eru 22-24-25-28-30-34 l á þræði fyrir öxl og bakstykki mælist ca 67-69-71-73-75-77 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Setjið l af þræði á hringprjóna nr 7. Prjónið 1 umf slétt frá röngu (til að sleppa við göt í skiptingunni þar sem l voru settar á þráð er tengingin sett á prjóninn á milli 2 l sem er síðan prjónuð snúin slétt saman við næstu l á prjóni). Fellið síðan LAUST af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki, nema þegar stroffið mælist 14 cm er l fækkað jafnt yfir eins og á bakstykki (framstykki er nú 7 cm styttra en bakstykki). Prjónið áfram eins og á bakstykki, en þegar stykkið mælist 16 og 26 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 53-55-57-58-60-62 cm. Setjið nú miðju 10-10-12-12-14-14 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið l á þráð fyrir öxl eins og á bakstykki. Þegar allar l hafa verið settar á þráð/felldar af eru 22-24-25-28-30-34 l á þræði fyrir öxl og framstykki mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Setjið l af þræði á hringprjóna nr 7 og prjónið 1 umf slétt frá röngu eins og á bakstykki áður en fellt er af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Leggið kantinn með garðaprjóni með hnappagötum (framstykki) á aðra hliðina á stykki yfir kant með garðaprjóni á bakstykki og saumið tölur í. Endurtakið í hinni hliðinni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 46 til 58 l í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón nr 7 með 1 þræði Cloud, 1 þræði Wish eða 2 þráðum Air. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br áður en fellt er LAUST af með sl.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
Smá leiðrétting eftir stroff á framstykki og bakstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-47

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Sharon Hunt wrote:

Am Even more confused am making the largest size and it says am supposed to have 34 sts for the neck.

05.09.2023 - 12:08

DROPS Design answered:

Dear Mrfs Hunt, oh the largest size will be then worked as follows (sorry numbers below were for L), seen from right side (back piece): (11+11+12 = 34 sts for first shoulder) + (1+22+1 = 24 sts cast off for neck) + (12+11+11 = 34 sts for 2nd shoulder) = 90 sts in total for XXXL. The 34 sts are for each shoulder, not for neck, for neck you will first cast off the middle 20 stitches then cast off 1 stitch at the beginning of next row from neck towards shoulder (from RS on left shoulder/from WS on right shoulder). Happy knitting!

05.09.2023 - 13:54

country flag Sharon Hunt wrote:

Am having som problems with the back. The instructions says to: Slip 7-8-8-9-10-11 sts 2-3-2-2-3-2 times in total and 8-0-9-10-0-12 sts 1-0-1-1-0-1 …. I am making the largest size. I slipped the sts as instructed I think and I have 34 sts on stitch holder for the shoulder but there are 34 sts left to cast off for the nec not 20 as per pattern. 😟. What am I doing wrong here. Thanks for your quick response. Need to finish this vest to wear i 2 weeks. Thanks so much.

04.09.2023 - 19:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, you will slip the stitches for shoulder on a thread and at the same time cast off for neck, so that you should have (seen from right side): (8+8+9 sts =25 sts for shoulder) + (1+18+1 =20 sts cast off for neck) and (9+8+8 = 25 sts for shoulder) = 70 sts in total. Happy knitting!

05.09.2023 - 12:02

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi, am up to the shoulders where I have divided with 11 + 11 +12 on both sides. Instruction says to slip these stitches to a size 7 needles knit one row from wrong side. Am I supposed to cut the yarn, re-attach so the front is facing me and knit one row even or re-attach the yarn so the wrong side is facing and knit one row? Will be doing a 3 needle bind off for the shoulder. Assuming That’s ok.

03.09.2023 - 01:26

DROPS Design answered:

Dear Sharon, you don't need to cut the yarn. When slipping the stitches of the shoulder to the circular needle the next row should be from the wrong side, so the thread is already prepared. You need to add a new thread to work the other shoulder. And yes, you can cast off as you indicated. Happy knitting!

03.09.2023 - 23:37

country flag Sharon Hunt wrote:

Thanks for the response. Starting all over again but That’s ok. It appears there is a ridge after the knit 3 purl 3 ribbing. The instruction says yo decrease on the right side and the start stockinett sts. I did not have a ridge on my ripped out project ☹️. Since am starting over I want to get it right this time. Should I knit the wrong side after the decreases. Did not see that in this part of the pattern. Thanks 🙏 so much.

28.08.2023 - 01:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, you mean at the beginnning of the pattern at the transition between ribbing edge and stocking stitch? Then decrease from RS as explained and knit 1 row from wrong side before starting stocking stitch to get this rib (as on the picture, but you are right, missing in the pattern). Happy knitting!

28.08.2023 - 14:27

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi , I have a last question.😔. Slip sts from stitch holder on circular needle size 7 mm. K 1 row from WS (to avoid holes in transitions where sts were … Since am knitting from the wrong side am assuming I would purl not knit. Is this correct? Thanks. Sharon

25.08.2023 - 21:03

DROPS Design answered:

Dear Sharon, no, it's a knit row, so you knit the stitches. This is to make a ridge in garter stitch, so you knit all rows. Happy knitting!

28.08.2023 - 00:20

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi! AT THE SAME TIME when piece measures 65-67-69-71-73-75 cm, cast off the middle 16-16-18-18-20-20 sts for neck and finish each shoulder separately. Cast off 1 st on next row from neck. When all sts have been dec/put on a stitch holder, there are 22-24-25-28-30-34 sts on stitch. Do I decrease the 2 extra stitches with one stitch from the shoulder sts on each side. 🙏 Sharon

25.08.2023 - 12:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, the 2 extra stitches for neck are cast off at the beginning of next row from neck (1 st on each side), this means on left shoulder back piece at the beg of a row from wrong side and for right shoulder back at the beg of a row from right side (= towards neck, this means on the opposite side of the stitches of the thread for diagonal shoulder). Happy knitting!

25.08.2023 - 13:53

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi am not understanding or should I say am nog sure I do: Slip 7-8-8-9-10-11 sts 2-3-2-2-3-2 times in total and 8-0-9-10-0-12 sts 1-0-1-1-0-1 time on stitch holder in each side. Am making the second size give which had 66 after the decreases. Sm I supposed to have 24 stitches on stitch holder for each sleeve?

25.08.2023 - 01:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, yes, in 2nd size you will have a total of 24 sts for each shoulder: slip 8 sts at the beg of each row from armhole a total of 3 times, and at the same time, cast off the middle 16 sts + 1 st at the beg of next row from neck so that you have: 8 sts 3 times on a thread, 18 sts for neck (1+16+1) and 8 sts 3 times on a thread = 66 sts. Happy knitting!

25.08.2023 - 08:29

country flag Augusta Jensen wrote:

Hej, på opskriften står der "RETSTRIK (strikkes frem og tilbage): Strik ret på hver p." - Der tror jeg at retstrik er strik ret hver anden pind. M.v.h. Augusta

15.05.2023 - 10:00

country flag Stevie Shreve wrote:

This is the first garment I am trying to knit, the instructions for the top neck portion are a little confusing for me.

25.11.2022 - 14:16

DROPS Design answered:

Dear Mr Shreve, maybe you can tell me which section is confusing you? are you working on back piece or front piece? Which size are you working. Thanks for all these informations.

25.11.2022 - 15:25

country flag Jane wrote:

Rib: skal hver pind starte med vrang (efter d 6 kantmasker)? Eller skal det kun være hver anden gang? Så jeg starter og slutter med retmasker på hver anden pind?

16.10.2022 - 19:33

DROPS Design answered:

Hei Jane. Etter de 6 kantmaskene strikker du 3 vrang og 3 rett fra retten, dette strikker du til det gjenstår 9 masker. Strikk 3 masker vrang og deretter 6 kantmasker. På neste pinne strikkes det 6 kantmasker, deretter 3 rett og 3 vrang fra vrangen og dette strikkes til det gjenstår 9 masker. Strikk 3 masker rett og så 6 kantmasker. Strikk slik til arbeidet måler 21 cm. Du har da en vrangbord med 3 vrang/3rett og med 6 kantmasker i hver siden. mvh DROPS Design

24.10.2022 - 13:42