DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Color of Winter

Heklað pils úr DROPS Karisma með marglitu mynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-30
DROPS Design: Mynstur nr u-791
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100-100-150-150-150 g litur nr 72, ljós perlugrár
150-150-150-150-200-200 g litur nr 21, milligrár
100-100-150-150-150-150 g litur nr 16, dökk grár
100-100-100-100-100-150 g litur nr 40, ljós bleikfjólublár
100-100-100-100-100-100 g í allar stærðir litur nr 13, kirsuber

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 5 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. 1 rúða = 1 st.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Þegar heklað er í hring:
Hver umf með st byrjar með 3 ll (kemur í stað fyrsta st), umf endar með 1 kl í 3. ll.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta st. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir l frá fyrri umf, heklið utan um þráðinn þannig að hann er hulinn og fylgi með hringinn. Passið uppá að þræðirnir sem fylgja með dragi ekki stykkið saman!
Fyrsta st er skipt út fyrir 3 ll, ef síðasta st frá fyrri umf og fyrsti st í umf er með ólíkum litum er síðasti st heklaður þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin. Þegar heklað er í hring endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, heklið síðan 3 ll (= byrjun umf).

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að hekla 2 st í sömu l. Til að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 130 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 13. Þ.e.a.s. í þessu dæmi er aukið út um 1 st í 13. hvern st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka til að mynda op / klauf, síðan er heklað í hring.

PILS:
Heklið 139-153-165-186-207-232 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4 með litnum dökk grár Karisma. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hvern af næstu 2-2-0-0-0-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 118-130-140-158-176-198 st.

Heklið síðan A.1 (= 4 l) – LESIÐ LITAMYNSTUR, fram og til baka JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 10-10-8-10-8-10 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 128-140-148-168-184-208 st (A.1 er endurtekið alls 32-35-37-42-46-52 sinnum á breiddina).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM, AUKIÐ ER JAFNFRAMT ÚT ÞEGAR HEKLAÐ ER Í HRING:
AUKIÐ ÚT ÞANNIG:
Heklið síðan áfram með litnum milligrár. Heklið 1 st í hvern st og aukið út um 14-10-9-8-7-6 st jafnt yfir í annarri hverri umf alls 3-4-4-6-6-6 sinnum, síðan 0-0-10-0-8-8 st jafnt yfir 1 sinni = 170-180-194-216-234-252 st. Þegar heklaðar hafa verið alls 6-8-10-12-14-15 umf með litnum milligrár mælist stykkið ca 13-16-18-20-22-23 cm.
HEKLAÐ Í HRING:
Þegar stykkið mælist 12 cm endar op / klauf í hlið og stykkið er síðan heklað í hring með byrjun umf í hlið.

Heklið síðan A.2 (= 4 st) hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 2-4-2-4-2-4 st jafnt yfir = 172-184-196-220-236-256 st (A.2 er endurtekið alls 43-46-49-55-59-64 sinnum á breiddina).

Í 2. og 6. umf er aukið út um 8-8-8-8-8-16 st jafnt yfir í hverri umf (í hvert skipti sem aukið er út er A.2 endurtekið alls 2-2-2-2-2-4 sinnum fleira á breiddina), í 10. og 12. umf er aukið út um 4-4-4-4-8-8 st jafnt yfir í hverri umf (í hvert skipti sem aukið er út er A.2 endurtekið alls 1-1-1-1-2-2 sinnum fleira á breiddina), í síðustu umf er aukið út um 8 st jafnt yfir = 204-216-228-252-276-312 st. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 29-32-34-36-38-39 cm. Heklið síðan A.3 (= 6 st) alls 34-36-38-42-46-52 sinnum á breiddina. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 42-45-47-49-51-52 cm. Heklið síðan A.4 (= 4 l) hringinn alls 51-54-57-63-69-78 sinnum á breiddina. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 46-49-51-53-55-56 cm. Klippið frá og festið enda.

KANTUR AÐ OFAN:
Heklið kant með st frá fyrstu umf á pilsi með litnum dökk grár. Heklið 1 umf með 1 fl í hvern st = 118-130-140-158-176-198 fl.

HNESLA / LYKKJA:
Meðfram annarri hlið á opi / klauf sem staðsett er á framstykki eru heklaðar hneslur / lykkjur með litnum dökk grár þannig (byrjið neðst niðri): Heklið 2 fl (um fyrstu umf), 3 ll, hoppið yfir 1 cm, * heklið 2 fl um næstu st-umf, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið með 2 fl um síðustu st-umf efst uppi, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga. Klippið frá og festið enda.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram hinni hliðinni á opi/ klauf eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka með litnum dökk grár (í 1. umf eru heklaðar 2 fl um hverja st-umf), klippið frá. Saumið tölur í kantinn.

Mynstur

symbols = dökk grár
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = milligrár
symbols = ljós perlugrár
symbols = kirsuber
symbols = útauknings umferð - sjá uppskrift
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Elena wrote:

Bonjour, pour ce modele pour crocheter les rangs avec couleur unique, doit on egalement crocheter autour d'un fil de meme couleur pour garder la meme epaisseur que pour les rangs a deux couleurs? Par avance merci

30.12.2021 - 14:52

DROPS Design answered:

Bonsoir Elena, les rangs avec couleur unique sont crochetes avec une seule couleur (sans crocheter autour d'un fil). Quand on crochète avec 2 couleurs placer la couleur non utilisée au-dessus des m du tour précédent, crocheter autour du fil pour qu'il soit caché et suive le tour. Bon crochet!

30.12.2021 - 19:19

country flag Dolors wrote:

Como se empieza las pasadas de colores de arriba abajo? O abajo arriba?

24.01.2019 - 12:00

DROPS Design answered:

Hola Dolores. La falda se trabaja de arriba abajo.

24.01.2019 - 15:11

country flag Barbara Stowers wrote:

That video showed you how to change colors row by row, not how this pattern is. Like when I change from dark grey to the pink in A.1, I tried carrying the colors and does not look good. I tried bobbins, but that would mean I need to make 40+ bobbins of pink and carry the grey as the main colors. Do you see the frustration with that? HELP!!!!!

31.01.2017 - 20:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Stowers, the video below shows how to change colour on a row. See also this video on how to crochet 2 colours on a row (another pattern). Happy crocheting!

01.02.2017 - 09:03

country flag Barbara Stowers wrote:

How did you change or carry the colors?

31.01.2017 - 18:41

DROPS Design answered:

Hi Barbara! Please see our tutorial video 'How to crochet and change color' HERE. Happy knitting!

31.01.2017 - 18:53

country flag Jennifer wrote:

Jeg skal begynne å hekle rundt og følge skjema A2. hvordan skal jeg lese dette? skal jeg begynne nederst til høyre slik som A1? Og; rad to, skal den leses fra venstre slik at jeg leser sikksakk (slik som A1 da jeg heklet frem og tilbake)? Eller skal diagrammet leses fra høyre mot venstre på alle rekkene?

22.09.2016 - 12:53

DROPS Design answered:

Hej Jenny. Naar du hekler rundt starter hver omg fra höjre mod venstre. Det er kun naar du hekler frem og tilbage du leser "sikksakk"

27.09.2016 - 16:18

country flag Marianne Lute wrote:

I want to order yarn and make the "Color of Winter" skirt but I am having a hard time understanding the pattern (there is nothing wrong with it- I have never read the picture type before). Is the other version available where each row's stitches are written out? Thanks so much.

04.08.2016 - 18:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lutte, there is only diagram to this pattern, read each diagram beg from the bottom corner on the right side towards the left every row from RS (when working back and forth) and every round when working in the round - read diagrams from the left towards the right from WS. Feel free to ask you question here, for any further assistance you are welcome to contact your DROPS store. Happy crocheting!

05.08.2016 - 09:30

country flag Carola Eriksson wrote:

Precis i tiden, kommer älskas av många! namesuggestion: inka

29.06.2016 - 20:50

country flag Lauren McRoberts wrote:

Great use of color! Pretty skirt!

12.06.2016 - 01:33