DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 169-35
DROPS Design: Mynstur nr bm-022
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
450-550-700 g nr 04, gulur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf byrja á 3 ll og enda á 1 kl í 3. ll.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermi):
Eftir síðasta st í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 st um næstu ll-boga (= fyrsti ll-boginn í næstu umf). ATH: Merkið byrjun á umf með 1 prjónamerki á milli síðustu ll í umf og fyrsta st í næstu umf, látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
ATH: ATHUGIÐ VEL AÐ PRJÓNAMERKIÐ FÆRIST EKKI ÚR STAÐ!

ÚRTAKA:
Heklið 1 st um næsta ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st um næsta ll-boga (ekki eru heklaðar 2 ll á milli st), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju á hring og út.

HRINGUR:
Heklið 8 ll með heklunál nr 3,5 með Baby Merino og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Endurtakið síðan A.1 alls 7 sinnum hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað þannig: * Heklið A.2 yfir sólfjöður í A.1, heklið A.3 yfir st/ll sem eftir eru í A.1 *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 378 st/ll í umf (= 4 st/ll í hverri mynstureiningu af A.2 og 50 st/ll í hverri mynstureiningu af A.3). ATH: Hver sólfjöður samanstendur af 3 st sem eru heklaðir saman (= 1 st), 2 ll og 3 st sem eru heklaðir saman (= 1 st). Endurtakið síðan A.2 og A.3 á hæðina, haldið áfram með mynstur yfir st/ll sem eftir eru eins og áður (þ.e.a.s. sólfjaðrir eru heklaðar yfir sólfjaðrir og 1 st um hvern ll-boga og 2 ll á milli hverra st eins og áður). Setjið 1 prjónamerki á undan hverra A.2 (= 7 prjónamerki í stykki). Fyrsta prjónamerkið merkir byrjun á umf. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.

Heklið þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá miðju (= 36-38-40 cm að þvermáli). Heklið síðan þannig: Heklið mynstur eins og áður að 2. prjónamerki (= 1 mynstureining af mynstri), hoppið yfir 16-17-18 ll-boga (meðtalinn ll-bogi í A.2 og á milli sólfjaðra í A.3, þ.e.a.s. allir ll-bogar), heklið 48-51-54 ll fyrir handveg, heklið mynstur eins og áður þar til 16-17-18 ll-bogar eru á undan 7. prjónamerki (meðtalinn ll-bogi í A.2 og á milli sólfjaðra í A.3, þ.e.a.s. allir ll-bogar), hoppið yfir þessa ll-boga, heklið virka 48-51-54 ll fyrir handveg, heklið eins og áður út umf. Heklið síðan mynstur eins og áður, heklið um ll-umf yfir hvorn handveg. Þegar stykkið mælist ca 39-42-45 cm frá miðju (= 78-84-90 cm að þvermáli) heklið síðan fram og til baka yfir framstykki. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við 2. prjónamerki. Heklið frá réttu: 1 fl í ll-boga á undan A.2, 4 ll, haldið áfram að hekla mynstur eins og áður (þ.e.a.s. A.2 og A.3) að 4. prjónamerki, endið á 1 st um næsta ll-boga, snúið við.

Heklið nú stuttar umf þannig:
Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll (ekki er lengur heklað yfir þessa 2 ll-boga), 1 st um næsta ll-boga, heklið mynstur eins og áður þar til 2 ll-bogar eru eftir (þ.e.a.s. ll-bogarnir á milli st, ekki er lengur heklað yfir þessa 2 ll-boga), snúið við. Haldið svona áfram með mynstur og stuttar umferðir. Þ.e.a.s. haldið áfarm að auka út í A.3. Heklið þar til stykkið mælist 16-17-18 cm frá prjónamerki. Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, nema nú er heklað á milli 5. og 7. prjónamerki.

KANTUR:
Heklið kant í kringum alla peysuna þannig: Byrjið frá 1. prjónamerki.
Heklið * 1 fl um fyrsta/næsta ll-boga, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* í kringum allan hringinn. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Heklið 96-102-108 ll með heklunál nr 3,5 með Baby Merino.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, * 2 ll, hoppið yfir 2 ll, 1 st í næstu ll *, endurtakið frá *-* út ll-umf, heklið 2 ll og 1 st um fyrstu 3 ll = alls 32-34-36 ll-boga – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – sjá útskýringu að ofan.

Haldið áfram að hekla 2 ll og 1 st um hvern ll-boga. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 ll-boga á undan prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA!
ATH: ATHUGIÐ VEL AÐ PRJÓNAMERKIÐ FÆRIST EKKI ÚR STAÐ!
Endurtakið úrtöku til skiptis hvoru megin við prjónamerkin með 2½-3-3 cm millibili 13-11-11 sinnum til viðbótar = 18-22-24 ll-bogar. Þegar stykkið mælist 42 cm í öllum stærðum, endið umf á 1 kl í síðustu ll mitt undir ermi. Heklið síðan hringinn þannig: Heklið A.4 alls 9-11-12 sinnum hringinn. Endurtakið A.4 alls 2 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.5 yfir A.4. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið A.6 yfir A.5 alls 2 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 53 cm í öllum stærðum.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Heklið saman ermar við hringinn, heklið í gegnum bæði löginn þannig: 1 kl, * 2 ll, 1 kl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*.

Mynstur

symbols = 8 ll, endið á 1 kl í fyrstu ll
symbols = ll
symbols = st um ll-boga
symbols = Sólfjöður: Heklið 3 st saman um ll-bogann þannig: Heklið 1 st um ll-boga, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st um sama ll-boga alveg eins, dragið síðan bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni.
symbols = síðasta umf frá fyrra mynstri, þessi umf hefur verið hekluð
symbols = byrjið hér á að hekla vinstra framstykki (við 2. prjónamerki)
symbols = byrjið hér á að hekla hægra framstykki (við 5. prjónamerki)
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Takako wrote:

Hello, I have question about making armholes. Pattern says “Then work pattern as before, work around ch-row over each armhole.” How EXACTLY work around ch-row over each armhole? If you can add diagram or written pattern to help understanding, that would be great.

27.08.2023 - 06:13

country flag Coral Vorster wrote:

I find it extremely difficult to follow DROPS patterns. Can you not please have a WRITTEN pattern for this beautiful yellow garment

08.07.2022 - 22:34

country flag Amandine wrote:

Bonjour! J’ai fini de crocheter une fois A2 et A3 une fois en hauteur et mon cercle mesure déjà 17 cm depuis le centre. Je ne comprends pas la suite de l’explication: faut-il poursuivre encore une fois de la même façon ? Soit A2 et A3 comme la première fois, ou différemment ? D’autant plus que mon cercle mesure déjà la bonne dimension après une fois. Merci!

26.06.2022 - 16:28

DROPS Design answered:

Bonjour Amandine, avec la hauteur correspondant à l'échantillon, vous devez avoir les 19 rangs de A.1+A.2/A.3 = environ 16 cm. Vous continuez en suivant les motifs précédents de A.2/A.3, autrement dit, vous commencez par A.2 et répétez A.3 comme avant, vous aurez juste plus de brides/mailles en l'air entre les éventails de A.3 à chaque tour, mais toujours le même nombre entre chaque branche du V des éventails de A.3. Bon crochet!

27.06.2022 - 08:49

country flag Caitriona wrote:

Hi Drops, thank you so much for your quick reply! My problem is actually with the second & third line of A3, particularly with the treble fan. Many thanks for your assistance, we have been looking through your very useful you tube channel but can't find a demo for this pattern. Thanks again!

12.05.2021 - 12:03

DROPS Design answered:

Dear Caitriona, on 2nd row work: 2 fans over fans (= A.2), (2 ch, 1 tr) in the next 3 chain-spaces, 2 ch, 1 fan, 2 chains, 1 fan, 2 chains, 1 fan, 2 ch in the next 2-ch-space (in the middle between both previous fans), and finish with (1 tr, 2 ch) in the next 3 chain spaces = A.3. Repeat A.2 and A.3 all the round and continue diagram like this, there will be always 3 tr with 2 chains in between on each side of A.3 and work fans, chain-spaces and trebles as shown in the diagram. Happy crocheting!

12.05.2021 - 14:06

country flag Caitriona wrote:

I'm struggling to follow the diagram transition from A1 to A3. Although there are 7 trebles in the first line of A3, there are only 6 trebles in the second line of A3 plus 3 fans. When I'm working the second line I get 4 trebles with 3 fans. Can you explain where I'm going wrong please?! Thank you!!

11.05.2021 - 13:46

DROPS Design answered:

Dear Caitriona, the bottom row (with a star) in A.2 and A.3 shows the last row in A.1, ie 7 ch-spaces on last row in A.1 worked as shown in the first rowof A.3, ie 2 ch, 1 tr in each of the first 3 ch-space, 2 ch, 1 fan in next ch-space, 2 ch, 1 tr in next of the 3 ch-spaces, 2 ch (= A.3) and 1 fan in the next fan (= next A.2). Hope it can help. Happy crocheting!

12.05.2021 - 06:54

country flag Odette Fox wrote:

Danke. Da ich nicht wende, weiß ich jetzt nicht, wo der erste Fächer hinkommt, da die 3 Luftmaschen direkt über dem letzten Fächer sind und nicht über dem Luftmaschenraum. Ich habe jetzt die Anfrage auf Facebook gestellt, vielleicht kann mir jemand anhand meines Fotos zeigen, wie es funktioniert. Danke für die Hilfe hier.

16.12.2019 - 13:13

country flag Odette Fox wrote:

Meine Frage wurde leider nicht beantwortet. Arbeit wenden oder nicht wenden? Ich weiß, dass ich in Runden ( Anfang 3 Steigluftmaschen und Ende mit 1 Kettmasche) arbeite und nicht in fortlaufenden Spiralrunden.

16.12.2019 - 11:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fox, ja genau, so wird die Arbeit gehäkelt = in der Runde, dh immer von der Hinreihen = nicht wenden am Ende jeder Runde (nur wenn Sie dann in Hin und Rückreihen später häkeln). Viel Spaß beim häkeln!

16.12.2019 - 12:25

country flag Odette Fox wrote:

Guten Morgen Ich scheitere in der deutschen Anleitung bereits nach der ersten Runde. A1 zeigt, dass die Fächer um die Luftmaschen gearbeitet werden sollen. Muss ich die Arbeit nach jeder Runde wenden? Es ist leider nirgendwo angegeben. Es soll meine erste Jacke von Drops werden, allerdings verstehe ich die Anleitung bisher gar nicht (bin kein Anfänger). Danke für die Hilfe.

16.12.2019 - 07:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fox, A.1 wird in der Runde gehäkelt - so lesen Sie A.1 in jeder Runde von rechts nach links - jede Rd beginnen Sie mit 3 Lm - siehe HÄKELINFO. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim häkeln!

16.12.2019 - 09:13

country flag Judy wrote:

Some of the most beautiful patterns I've ever seen are on your site. However, most of them have only diagrams and partial diagrams at that. I don't work from diagrams, only written patterns. I certainly can't be the person who works this way. Won't you please add written instructions to your patterns so we can join in making your beautiful garments. PLEASE!!!!!

04.04.2019 - 18:59

DROPS Design answered:

Dear Judy, thank you very much, to help you crocheting from diagrams, you will find some explanations here. Happy crocheting!

05.04.2019 - 09:18

country flag Wendy Stephens wrote:

I am having difficulty understanding this pattern for some reason? I\\\'m not really used to following diagrams, only patterns in written form, so when it gives instructions it refers us to see the diagram. Is there a written pattern available (no diagram) or possibly a tutorial, or even close up\\\'s of the finished jacket to go by? I am also confused as to how you select your size? \\r\\nAny help would be greatly appreciated! Thank you!

29.06.2018 - 17:14

DROPS Design answered:

Dear Wendy, we are sorry, but we do not have a written out pattern for the diagramsm but you will find teh explanations for eaxg symbol just above the charts. There are also a some videos to help you along, you can find the links just below the pictures. However, if you still having problems, you can always ask for help in the store you bought your DROPS yarn from, Happy Crafting!

01.07.2018 - 03:35