Santa's Buddy |
|
|
|
Heklaður jólasveinn fyrir börn úr DROPS Fabel. Stykkið er heklað með röndum. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1198 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umf byrjar á 1 ll, umf endar á 1 kl í fyrstu ll. 2 FL SAMAN: Stingið heklunálinni í fyrstu fl, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu fl, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASVEINN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Jólasveinninn er heklaður í eitt ofan frá á húfu og niður að hálsi. Síðan er búkurinn heklaður neðan frá og upp. Fætur (með skóm) og hendur eru heklaðar hvorar fyrir sig og saumað á í lokin. HÚFA: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Heklið 3 ll með heklunál nr 3,5 með litnum rauður og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 6 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf út = 9 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6-7: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 8: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 9-10: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 11: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15 fl. UMFERÐ 12-13: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 14: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 15-16: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 17: * 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 21 fl. UMFERÐ 18-19: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 20: * 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 21-22: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 23: * 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 28 fl. UMFERÐ 24 (Laus kantur á húfu byrjar hér): Snúið við og heklið að gagnstæðri átt þannig: Heklið 1 fl í aftari lykkjubogann á hverri fl. UMFERÐ 25-26: Heklið 1 fl í hverja fl. Klippið frá og festið enda. Nú er höfuðið heklað áfram frá umf 23 (heklað er í hinn lykkjubogann í sömu átt og í umf 23). HÖFUÐ: UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn natur (stykkinu er snúið í rétta átt miðað við umf 23). Heklið * 1 fl í aftari lykkjubogann í hverj af næstu 5 fl, heklið 2 FL SAMAN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 2-10: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 11: Heklið * 1 fl í hverja af næstu 4 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Klippið frá og festið enda. Fyllið höfuðið með smá vatti, en ekki fylla húfuna. EYRA: Það eru hekluð eyru hvoru megin á höfði, með byrjun í fyrstu umf á höfði og í lóðréttri línu niður meðfram hálfu höfði með litnum natur. Heklið 1 eyra þannig: Heklið * 1 fl í fyrstu/næstu umf, 2 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 fl í næstu umf, snúið við með 1 ll, heklið * 1 fl + 2 hst um fyrsta/næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 1 kl í fl í byrjun umf 1. Heklið annað eyra til viðbótar í gagnstæða hlið á höfði. Heklið nú búkinn. BÚKUR: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Heklið 3 ll með heklunál nr 3,5 með litnum grár og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 7-10: (Búkurinn byrjar hér): Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 11: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 12-16: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 17: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 18-21: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 22: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu 8 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 27 fl. UMFERÐ 23-26: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 27: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 28-32: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 33: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Klippið frá og festið enda. FÓTUR: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með litnum rauður og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl = 14 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl = 16 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 1 fl í hverja af næstu 5 fl = 20 fl. UMFERÐ 8: Hekli 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 4 fl = 18 fl. UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 4 fl = 16 fl. UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 4 fl = 14 fl. UMFERÐ 11: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl saman, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 4 fl = 12 fl. UMFERÐ 12: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 13-18: Skiptið í litinn natur, heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 19: Skiptið yfir í litinn rauður, heklið 1 fl í hverja fl. Endurtakið umf 13-19 2 sinnum til viðbótar. Endurtakið síðan umf 13-18 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda. Heklið annan fót á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti og saumið einn fót í hvora hlið á botni á búk. HANDLEGGUR: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með litnum rauður og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 8-13: Skiptið yfir í litinn natur, heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 14: Skiptið yfir í litinn rauður, heklið 1 fl í hverja fl. Endurtakið umf 8-14 tvisvar sinnum til viðbótar. Endurtakið síðan umf 8-13 einu sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda. Heklið annan handlegg á sama hátt. Fyllið með vatti og saumið handleggina niður hvoru megin við háls á búk (leggið hvorn handlegg kant í kant við síðustu umf á búk). FRÁGANGUR: Gerið einn dúsk ca 2 cm að þvermáli með litnum natur og saumið niður á toppinn á húfunni. Togið húfuna niður út á hlið og festið með smá spori. Saumið augu með lykkjuspori með litnum grár. Saumið 1 spor um sömu l með smá afgang af litnum brúnn, saumið munn með nokkrum sporum af sama lit. Saumið nef með litnum natur, saumið 3 spor ofan á hvort annað. Saumið 2 tölur staðsettar ca 2 og 5 cm niður frá hálsi. Fyllið búkinn með vatti og saumið höfuðið niður á búkinn með smáum fínum sporum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Klub wrote:
Franchement il y a mieux
06.12.2018 - 16:09Margareta wrote:
Jak należy prać/czyścić lalki robione na szydełku z akrylu i bawełny, żeby ich nie zdeformować?
20.11.2018 - 21:46Sylvie Papineau wrote:
Bonjour, je m'apprête à faire le Santa's Buddy mais il y a quelque chose que je comprend pas. Au bonnet, on dit après les tours 25-26 de crocheter à partir du tour 23 dans le brin restant, mais c'est indiqué au tour 24 et non 23 de crocheter dans un seul brin ! Merci de me répondre ;)
06.08.2017 - 14:41DROPS Design answered:
Bonjour Mme Papineau, au tour 24, on a crocheté dans le brin arrière des ms du tour 23, c'est dans le brin resté libre du tour 23 que l'on va continuer. La vidéo ci-dessous montre comment réaliser cette partie. Bon crochet!
07.08.2017 - 12:05Mary wrote:
I am one of those people that do not read a pattern but go by the diagram. Does this pattern provide a diagram?
31.07.2017 - 10:56DROPS Design answered:
Dear Mary, this pattern is only written, but there is a video showing from round 24 how to work from round 24 the hat, head and ears. Happy crocheting!
31.07.2017 - 11:24Adele wrote:
Are these instructions complete? I don't get the pattern. where are the body instructions? where are the hat instructions? it seems like it begins in the head. please help!
24.12.2015 - 14:14DROPS Design answered:
Dear Adele, the santa is worked from top of hat down to neck (start on top of hat, then work head top down) - then work body from bottom up. Happy crocheting!
02.01.2016 - 13:35