DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 24948.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 163-2
DROPS Design: Mynstur nr po-076
Garnflokkur F eða E + E
----------------------------------------------------------

TEPPI:
Mál: ca 80 x 130 cm (án kögurs)

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1500 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 20 – eða þá stærð sem þarf til að 5,5 l og 7 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

PÚÐI:
Mál: ca 45 x 45 cm – púðaverið passar fyrir kodda 50 X 50 cm púðaverið á að strekkjast aðeins svo að það sitjið fallega.

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
600 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 20 – eða þá stærð sem þarf til að 5,5 l og 7 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 24948.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (= teppi) og mynsturteikning A.4 til A.6 (= púði). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu!

SKIPT UM ÞRÁÐ:
Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú sama og áður. Prjónið áfram. Með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna.

TEPPI:
Fitjið upp 52 l á hringprjóna nr 20 með Polaris.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 64 l á prjóni. Prjónið síðan mynstur eftir A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LESIÐ SKIPT UM ÞRÁÐ! Þegar stykkið mælist ca 122 cm – passið uppá að prjónaðar hafa verið 3 eða 5 umf eftir snúningsumferð í stórum kaðli, prjónið mynstur eftir A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 52 l eftir á prjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón og fellið LAUST af með sl frá réttu.

KÖGUR:
Setjið kögur í aðra hverja l meðfram uppfitjunarkanti og affellingarkanti á teppinu þannig: Klippið 2 þræði Polaris ca 40 cm, leggið þá saman tvöfalda og þræðir bogann í gegnum l, dragið síðan þræðina í gegnum bogann.

-------------------------------------------------------

PÚÐI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Púðaverið samanstendur af 1 löngu stykki sem brotið er saman í miðju og saumað saman meðfram þremur hliðum. Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PÚÐI:
Fitjið upp 29 l á hringprjóna nr 20 með Polaris. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. * Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 35 l á prjóni. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar verið mælist ca 36 cm – stillið af að prjónaðar hafa verið 3 eða 5 umf á eftir snúningsumferði i kaðli, prjónið mynstur eftir mynsturrteikningu A.6 = 29 l eftir í umf *. Prjónið 8 umf garðaprjón, setjið 1 prjónamerki (= miðja – hér á að brjóta púðaverið saman) og prjónið 8 umf garðaprjón. Endurtakið síðan frá *-* 1 sinni til viðbótar – ATH: Stillið af að A.5 sé prjónað jafn langt og á fyrri hluta. Prjónið 8 umf garðaprjón og fellið LAUST af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman í miðju við prjónamerki – ranga á móti röngu. Saumið saman 2 hliðar kant í kant yst í lykkjubogann. Setjið kodda í púðaverið og saumið síðan saman meðfram síðustu hliðinni sem er opin.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf svo að ekki myndist gat
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 163-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Yvette wrote:

Goedemiddag, Ik heb nog niet zo veel ervaring in het lezen van telpatronen en mijn vraag gaat dan ook over telpatroon A.2. Van de grote kabels staan 20 rijen afgebeeld, terwijl van de rest van het patroon 12 rijen zijn afgebeeld. Hoe moet ik dat interpreteren? Hoe brei ik de resterende 8 rijen naast de grote kabels die niet zijn afgebeeld? Alvast hartelijk dank voor uw antwoord.

18.08.2019 - 18:12

DROPS Design answered:

Dag Yvette,

De telpatronen herhalen zich in de hoogte, maar over de kabels heb je een andere herhaalfrequentie, dus je begint gewoon weer op de eerste rij over de rest van de steken, terwijl de kabel nog een stukje in de hoogte doorloopt.

01.09.2019 - 13:54

country flag Bente wrote:

Hei, jeg skulle gjerne hatt tips på hvordan jeg kan gjøre det for å lage dette større, ca 120x180?

29.04.2019 - 09:49

DROPS Design answered:

Hei Bente. Du kan feks gjenta deler av diagrammene i bredden. Hele diagram A.2 måler 80 cm i bredden, og du må legge til 40 cm, for å få 120 cm. Dvs du kan legge til tilsvarende en halv rapport til av A.2. Det blir opp til deg hvilke flettekombinasjoner du vil legge til, men feks kan du strikke dobbelt så mange av de små flettene på midten. Når det gjelder lengden er det bare å fortsette flettemønsteret til ferdige mål. Garnforbuket kan du regne ut ved å finne ut hvor mange gram som går med til hver kvadratcm, og gange opp med det nye arealet. God fornøyelse

29.04.2019 - 13:48

country flag Sharon wrote:

If I use my 15mm needles would it present any problems that I cant Foresee? I dont want my stitches any looser than they look on my 15mm needle test. I have 30 balls, so Its fine if it uses more yarn and Ill need to add more stitches to make it the same size. Thanks in advance for your advice.

14.04.2019 - 21:16

DROPS Design answered:

Dear Sharon, with needes that are smaler than the suggested, your fabric will be denser, less fleaxible, it will have less drape. The piece will need more yarn, and more stitches as well. However it probably will hold up to time somewhat better. Please do a swatch and determine the necessary changes in the stitch count. Happy Knitting!

15.04.2019 - 21:33

country flag Corinne wrote:

Bonjour, j'ai une question concernant la quantité de laine à prévoir pour le coussin. Je pense que la quantité prévue de 600 g est une erreur ? Merci pour votre réponse

10.02.2019 - 03:33

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne! C'est correct. Ce fil appartient au group de fils F, il est donc tres epais. Bon tricot!

11.02.2019 - 07:30

country flag Corinne wrote:

Bonjour, j'ai une question concernant la quantité de laine à prévoir pour le coussin. Je pense que la quantité prévue de 600 g est une erreur ? Merci pour votre réponse

10.02.2019 - 03:26

DROPS Design answered:

Bonjour Corine, il faut bien 600 g DROPS Polaris, soit 6 pelotes de 100 g sur la base de l'échantillon pour réaliser le coussin. Bon tricot!

11.02.2019 - 12:21

country flag Karolina wrote:

Hi :) I just want to make sure, needles nr 20 means needles size 20mm?

05.02.2018 - 12:51

DROPS Design answered:

Dear Karolina, that's correct, you need here needle size 20 mm. Happy knitting!

05.02.2018 - 13:21

country flag Melinda Fülöp wrote:

Hej Nu har jag stickat de 12 första varven. Men hur fortsätter jag sen?? Jag förstår att jag ska börja om igen, men varven till flätmönstret stämmer inte. Det är 3 varv till man ska göra flätan medan det i början av mönstret är 5 varv till flätan

01.08.2017 - 16:02

DROPS Design answered:

Hej! Du ska upprepa de 12 varven i diagrammet, det blir då alltid 5 varv mellan flätvridningarna.

02.08.2017 - 13:38

country flag Melinda Fülöp wrote:

Förlåt mig men verkar trög. Börjar man varv två från början eller 6 maskor in?

12.07.2017 - 19:20

DROPS Design answered:

Hei Melinda. Du begynner fra begynnelsen av diagrammet. De 6 maskene i hver sidene av diagrammet er de maskene du økte på 1.pinne (kastene). På 1.rad av A.1 har du økt med 12 masker (52 + 12), så når du starter på 2.rad har du 64 masker og starter med 5 masker rett fra vrangsiden. God Fornøyelse!

13.07.2017 - 08:23

country flag Melinda Fülöp wrote:

Hej igen. En ny fråga. Hur stickar jag varv 2 på diagram A1?? Visar diagrammet med de ökade maskorna som man gör i första varvet?? Tack på förhand

12.07.2017 - 09:49

DROPS Design answered:

Ja, de ökade maskorna finns med och du stickar räta och aviga maskor precis som diagrammet visar. Kom ihåg att alla varv ses från rätsidan.

12.07.2017 - 17:39

country flag Melinda Fülöp wrote:

Hej Visst är det så att när man har stickat rätsidan att det på avigsidan bara stickas aviga maskor?

09.07.2017 - 20:49

DROPS Design answered:

Diagrammen visar alla varv sett från rätsidan. Dvs. från avigsidan ska du sticka rm över rm och am över am enligt diagrammet.

10.07.2017 - 17:19