DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 163-11
DROPS Design: Mynstur nr de-143
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: ca 88 cm x 145 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350 gr litur nr 17, hindberjaterta
350 gr litur nr 18, haustskógur

DROPS HEKLUNÁL 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.1 sýnir ferninga og A.2 sýnir hliðar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er heklað í röndum, skipt er um lit í hverri umf. Ferningurinn er heklaður fyrst, síðan er heklaður kantur meðfram 2 hliðum. Að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið.

FERNINGUR:
Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með litnum hindberjaterta og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan í hring, en til skiptis frá réttu og frá röngu eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1 þannig:

UMFERÐ 1: 3 ll, 2 st um hringinn, 3 ll, * 3 st um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum. Skiptið yfir í litinn haustskógur og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við.
UMFERÐ 2: 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st í sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum. Skiptið yfir í litinn hindberjaterta og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við.
UMFERÐ 3: 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga og 1 ll. Skiptið yfir í litinn haustskógur og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við.
Haldið áfram að skipta um lit fyrir hverja umf og heklið síðan alveg eins – þ.e.a.s. það verða 3 st og 1 ll fleiri á milli horna fyrir hverja umf sem er hekluð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið þar til ferningurinn mælist ca 80 x 80 cm. Endið á 1 kl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

HLIÐAR:
Heklið nú fram og til baka meðfram 2 hliðum gagnstæðar við hvora aðra (ekki hekla þá hlið á ferningi þar sem byrjun umf er). Heklið rendur eins og áður og heklið eftir mynstri A.2, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir), heklið 1 kl í hornið og 3 ll, takið annan litinn frá og heklið síðan með 1 þræði í lit þannig: 2 st um hornið, 1 ll *, hoppið fram að næstu ll (á milli 3 st) og heklið 3 st og 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að horni, heklið 3 st um hornið.
UMFERÐ 2: Snúið ekki stykkinu, heldur byrjið í næstu umf þar sem fyrri umf byrjaði (nú með hinum litnum). Heklið 3 ll, 1 ll, * hoppið fram að næstu ll (á milli 3 st) og heklið 3 st og 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að síðustu 3 st frá fyrri umf, endið á 1 st í síðasta st frá fyrri umf. Nú eru báðir þræðirnir aftur í sömu hlið.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll með báðum litum, takið frá annan þráðinn og heklið 2 st um fyrstu ll, 1 ll, * hoppið fram að næstu ll (milli 3 st) og heklið 3 st og 1 ll *, endurtakið frá *-* fram þar til 1 ll er eftir og 3 ll (= 1. st), heklið 2 st um ll og 1 st í 3. ll frá fyrri umf.
UMFERÐ 4: Heklið eins og umf 2. Endurtakið síðan umf 1-4 þar til kanturinn mælist ca 30 cm frá þeim stað sem ferningurinn endaði.
Heklið á sama hátt gagnstæðri hlið á ferningi.

KANTUR:
Heklið kant í kringum allt teppið. Heklið alveg eins og ferningur. Þ.e.a.s. heklið í umf og röndum, umf eru heklaðar saman í lok umf. Byrjið í einu af hornunum.
UMFERÐ 1: Byrjið með báðum litum, heklið 1 kl í hornið og 3 ll, takið frá annan litinn og heklið síðan með öðrum litnum þannig: 2 st, 3 ll og 3 st um hornið, (*3 st um næstu ll, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að næsta horni. Heklið 3 st, 3 ll og 3 st um hornið). Endurtakið frá (-) 2 sinnum til viðbótar og endurtakið frá *-* fram að byrjum á umf og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Snúið við.
UMFERÐ 2: Byrjið í næstu umf með báðum litum og heklið 3 ll, takið frá annan litinn og heklið á sama hátt og frá fyrri umf. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið eins og umf 2. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = st
symbols = ll
symbols = kl
symbols = heklstefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 163-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Clare wrote:

Hi, are you supposed to cut the yarn after each row or somehow carry it on? Any tips gratefully received as I’m not sure what to do with all these ends at the moment. Thank you

18.04.2021 - 08:35

DROPS Design answered:

Dear Clare, you can do it either was. If you want to carry the yarn, you can try, and use a technique similar that is used in THIS video (excpet, you do not have to turn the piece). If you want to cut, you can "weave in" or catch the yarn ends as you go , by laying them over the upper edge of the previous row, and crochet the forst few stitch around them as well as around the proper stitches. Happy Crafting!

18.04.2021 - 10:54

country flag Cornelia Lehmann wrote:

Können die Ränder auch anders gehaekelt werden?

22.10.2020 - 14:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lehmann, Sie können also einen anderen Rands als die 3 vorgeschlagenen Runden häkeln. Viel spaß beim häkeln!

22.10.2020 - 15:32

country flag Yvette wrote:

Bonjour ! Comment faire pour que la marque du changement de rang ne soit pas trop visible ? Cette sorte d’échelle n’est pas vraiment jolie et lorsque l’ouvrage est terminé on repaire immédiatement l’endroit du changement de sens de l’ouvrage. Merci d’avance pour vos bons conseils et meilleurs messages.

14.02.2020 - 12:59

DROPS Design answered:

Bonjour Yvette, faites bien en sorte que le changement de fil se fasse sur l'envers de l'ouvrage et que les fils soient toujours du même côté. La seule façon de n'avoir aucun raccord serait de couper le fil à chaque rang, mais il faudrait alors plus de laine. Bon crochet!

14.02.2020 - 14:08

country flag Stefanie Meyer wrote:

Heißt das es ein quadrat gehäkelt Dann links ein Quadrat rechts ein Quadrat und dann drum rum gehäkelt den Rand

11.01.2020 - 15:54

country flag Sus wrote:

Hej igen, og tak for hurtigt svar. Havde ikke set det var multifarvet garn :-) Jeg ville helst lave det i jeres Alpaca, på hæklenål 5,5 og med dobbelt garn. Tror du det er muligt? Mvh. Sus

25.11.2019 - 12:06

DROPS Design answered:

Hei Sus. Oppskriften er skrevet med 1 tråd (gjelder både om du ønsker å hekle den i DROPS Delight eller DROPS Alpaca). Du kan hekle det med dobbelt tråd, men heklefastheten og garnmengden som er oppgitt vil ikke stemme, heller ikke målene. Det kan hende det vil stramme litt i hjørnene, men lag en prøvelapp og test litt ut. Resultatet kan bli et deilig stor teppe. God Fornøyelse!

25.11.2019 - 13:17

country flag Sus wrote:

Hej. Kan I oplyse hvor mange forskellige farver der er brugt til tæppet, der står kun 2 farver angivet? På foto ser det bestemt ud til der er brugt mange flere farver ;-) og iøvrigt nogle rigtig flotte farver, som jeg godt kunne tænke mig at ramme nogenlunde. Håber I kan hjælpe, på forhånd tak, Mvh. Sus

25.11.2019 - 11:47

DROPS Design answered:

Hei Sus. DROPS Delight er et multifarget garn/et nøste innholder mange farger. Da en titt på fargekartet til DROPS Delight, der vil du se hvordan et nøste ser ut og hvordan en liten oppstrikket prøvelapp ser ut. God Fornøyelse!

25.11.2019 - 11:52

country flag Agnes wrote:

Hei! Hvordan er det en skal føre garnet opp ved fargeskifte? Det holder ikke kun å skifte garn i kjedemaske hver omgang. Da får man en tråd på lengde med de 3lm. Kan ikke tenke meg å feste tråder hver omgang. Jeg har andre farger med mer kontrast mellom fargene. Noen forslag til hvordan jeg kan gjøre dette?

10.03.2019 - 10:28

DROPS Design answered:

Hei Agnes. Det er egentlig ikke noe god teknikk for hvordan å trekke tråden som ikke hekles med opp 1 rad uten at den syntes. Den vil bli på høyde med de 3 luftmaskene, dessverre. Alternativet blir som du sier å feste trådeendene på hver omgang. Beklager å ikke kunne være til mer hjelp. God fornøyelse

18.03.2019 - 12:55

country flag Jennifer wrote:

Ich habe mir einen Poncho mit dem Muster gehäkelt, doch leider wird die Spitze, in der ich die Maschen zunehme, schräg. Es dreht sich alles in die Richtung, in die ich häkel. Was mache ich falsch?

16.01.2019 - 20:59

DROPS Design answered:

Liebe Jennifer, dieses Modell kann vielleicht Ihnen helfen, um einen Poncho in so einem Muster zu häkeln. Viel Spaß beim häkeln!

17.01.2019 - 09:23

country flag Yvette wrote:

Bonjour ! Faut-il couper le fil à chaque tour ou le faire suivre....et de quelle façon ? Merci !

19.03.2018 - 08:40

DROPS Design answered:

Bonjour Yvette, on change de couleur tous les rangs, on va donc faire suivre le fil entre chaque changement de couleur, à la fin du tour, crochetez la mc avec la couleur suivante en veillant bien à ne pas trop tirer le fil pour ne pas trop resserrer les rangs à ce niveau. Bon crochet!

19.03.2018 - 11:15

Gabriella Abraham wrote:

Hi. How can I make this design into a rectangle for a queen size bed? Thanks Gabriella

01.03.2018 - 21:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Abraham, you can just continue working the square until the desired measurements, then adjust lenght working each side separately - for any individual assistance your DROPS store will help you, even per mail or telephone. Happy crocheting!

02.03.2018 - 08:31