DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lacey Days Jacket

Hekluð peysa úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 162-28
DROPS Design: Mynstur nr cl-041
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
650-750-800-850-950-1050 gr litur nr 02, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st og 9 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 7-7-8-8-9-9 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Á við um þegar stykkið er heklað fram og til baka.
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í hverri umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll, umf endar á 1 kl í 4. ll.
Í hverri umf með fl er fyrsta fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 kl í fyrstu ll.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 st. Ekki er aukið út yfir kant að framan.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðuðrinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 st.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.12. A.12 sýnir hvernig mynstur byrjar þegar heklað er í hring á ermi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 171-171-181-186-191-201 ll með heklunál nr 4 með Cotton Merino. Heklið næstu umf þannig:
Heklið 1 st í 4. ll (= 2 st), 1 st í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af 4 næstu ll *, endurtakið frá *-* = 136-136-144-148-152-160 st.
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 12 prjónamerki í stykkið þannig: Heklið 21-21-23-24-25-27 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 30-30-34-36-38-42 st JAFNFRAMT er aukið út um 2-10-6-68-4 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 21-21-23-24-25-27 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir = 1140-156-156-160-168-168 st.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf frá réttu er aukið út þannig: Aukið út um 1 st hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 3-3-4-6-7-9 sinnum, síðan er aukið út á undan hverju prjónamerki (= 12 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 4-4-4-2-2-0 sinnum = 260-276-300-328-360-384 st. Stykkið mælist nú ca 17-17-19-19-21-21 cm. Í næstu umf er heklað þannig: 41-44-48-53-59-63 st (framstykki), 8 ll (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 st frá fyrri umf (á að notast síðar fyrir ermi), 70-76-84-94-106-114 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-3-1-1-3 st jafnt yfir (bakstykki), 8 ll (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 st frá fyrri umf (á að notast síðar fyrir ermi) og 41-44-48-53-59-63 st (framstykki) = 169-181-199-217-241-259 st/ll. Heklið síðan þannig: A.4 (= 6 st kantur að framan), A.1, A.2 alls 24-26-29-32-36-39 sinnum á breiddina, A.3, endið um á A.5 (= 6 st framkantur).

Heklið fyrstu 7 um með A.z. Í umf 8 í A.z (= st-umf) aukið út um 6 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 175-187-205-223-247-265 st. Haldið áfram að hekla A.z eins og áður, en A.2 er heklað nú 25-27-30-33-37-40 sinnum á breiddina. Þegar A.z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.y heklað yfir A.z alls 1-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.x yfir A.y. Í 2. umf í A.x er aukið út um 12 st jafnt yfir = 187-199-217-235-259-277 st. Haldið áfram að hekla A.x eins og áður, en A.2 er nú heklað 27-29-32-35-39-42 sinnum á breiddina. Í síðustu umf í A.x er aukið út um 6 st jafnt yfir = 1193-205-223-241-265-283 st. Heklið síðan A.z yfir A.x (A.2 er nú heklað 28-30-33-36-40-43 sinnum á breiddina). Í umf 8 í A.z er aukið út um 12 st jafnt yfir = 205-217-235-253-277-295 st. Haldið áfram að hekla A.z eins og áður en A.2 er nú heklað 30-32-35-38-42-45 sinnum á breiddina. Þegar A.z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.y heklað yfir A.z alls 1-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.x yfir A.y. Í 2. umf í A.x er aukið út um 6 st jafnt yfir = 211-223-241-259-283-301 st. Haldið áfram að hekla A.x eins og áður, en A.2 er nú heklað 31-33-36-39-43-46 sinnum á breiddina. Í síðustu umf í A.x er aukið út um 10-14-12-10-18-16 st jafnt yfir = 221-237-253-269-301-317 st. Heklið síðan þannig: A.8 (= 6 st kantur að framan), A.6 (= 16 st) alls 13-14-15-16-18-19 sinnum. A.7 (= 1 st), endið á A.9 (= 6 st kantur að framan). Klippið frá og festið enda þegar A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 65-69-71-75-77-77 cm.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður – sjá mynsturteikningu A.12 yfir hvernig umf byrjar og endar með 1 kl í ll. Byrjið á að hekla fyrir miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll við þær 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið síðan 1 st í hverja og eina af næstu 3 ll. Heklið síðan 1 st í hvern st yfir ermi JAFNFRAMT er fækkað um 1-3-1-5-3-1 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA, áður en heklaður er 1 st í hverja og eina af næstu 4 ll undir ermi = 61-61-67-67-73-79 st. Heklið síðan þannig: A.1, A.2 8-8-9-9-10-11 sinnum á breiddina, endið á A.3. Í umf 8 í A.z (= st-umf) fellið af 6 st jafnt yfir = 55-55-61-61-67-73 st. Haldið áfram að hekla A.z eins og áður, en A.2 er heklað nú 7-7-8-8-9-10 sinnum á breiddina. Þegar A.z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.y heklað yfir A.z. Þegar A.y hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.x heklað yfir A.y. Í síðustu umf í A.x hefur verið fækkað um 6 st jafnt yfir = 49-49-55-55-61-67 st. Heklið síðan A.z yfir A.x. A.2 er heklað nú 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina. Í umf 8 er fækkað um 6 st jafnt yfir = 43-43-49-49-55-61 st. Þegar A.z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina heklið A.y yfir A.z. Heklið nú A.x yfir A.y. Í síðustu umf í A.x fellið af 0-0-0-0-6-6 st jafnt yfir = 43-43-49-49-49-55 st. Heklið síðan fyrstu 5 umf af A.z. A.2 er heklað nú 5-5-6-6-6-7 sinnum á breiddina. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist nú ca 44 cm í öllum stærðum. Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Heklið 1 kant í kringum hálsmál í ll-umf með heklunál nr 4 með Cotton Merino með byrjun við miðju að aftan frá réttu þannig: Heklið upp 119-119-125-125-131-131 st í ll-umf. Heklið síðan A.11 alls 1 sinni, síðan A.10 alls 19-19-20-20-21-21 sinnum á breiddina. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan er 1 cm frá kanti í hálsmáli, hinar tölurnar eru með ca 8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2 stuðla í hægra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.02.2015
undir ERMI (A.12, ekki A.10): Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður - sjá teikningu A.12 til að sjá hvernig umf byrjar og endar á 1 kl í ll. Byrjið að hekla...

Mynstur

symbols = fl í l
symbols = st í l
symbols = ll
symbols = st um ll
symbols = 1 kúla með 4 tbst: Heklið 1 tbst í næsta st - en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst í hvern og einn af næstu 3 st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni
symbols = tbst um l
symbols = fyrsta röð/umf er útskýrð í uppskrift
symbols = 1 fl um ll
symbols = 2 st í sömu l
symbols = heklið 1 st í næsta st - en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 stí hvern af næstu 2 st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni
symbols = 7 st í sömu ll/st
symbols = kl
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Terena Currey wrote:

In the yoke is says to do the increases every row on the RS. I’m new to crochet, so does this mean the increases are done in every 2 nd row or every row please?

23.10.2023 - 21:57

DROPS Design answered:

Hi Terena, The increases are worked every 2nd row, beginning the first increase from the right side. Happy crocheting!

24.10.2023 - 07:20

country flag Kirsten Merrild wrote:

Mangler stadig svar på mine spørgsmål til denne model, som jeg fortsat ikke kan få til at passe med mønster og masketal. Det er vel 5 uger siden, jeg skrev første gang, og arbejdet venter stadig, så jeg vil rigtig nok blive glad for at få et svar

20.10.2023 - 12:36

DROPS Design answered:

Hei Kristen. Se vårt forrige svar til deg. mvh DROPS Design

23.10.2023 - 13:22

country flag Kirsten Merrild wrote:

Hvordan skal mønsteret laves? skal alle rækkerne laves efter hinanden? uanset hvordan jeg vender og drejer det, kan jeg ikke få masketallene til at passe i den største størrelses, og det fremgår ikke klart af forklaringen. Jeg indsendte samme spørgsmål for et par uger siden, men har ikke fået svar, håber at få det nu. ;)

15.10.2023 - 18:44

DROPS Design answered:

Hei Kirsten. Beklager at du ikke har fått noe svar, men vi kan ikke se at du har sendt inn noen spørsmål tidligere (kun spørsmål fra 15.10.2023 - 18:44 og 20.10.2023 - 12:36). Når du skal starte å hekle etter diagrammene skal du ha 259 staver/luftmasker. Så hekler du videre slik: A.4 (over 6 staver) + A.1 (over 4 masker) + A.2 (over 6 masker x 39 = 234 masker) +A.3 (over 9 masker) + A.5 (over 6 masker). Skrevet med bare tall: 6+4+234+9+6= 259 masker, og det er det maskeantallet du startet med. mvh DROPS Design

23.10.2023 - 13:20

country flag Irene Nohns wrote:

Mache die Größe S von 140 Stb auf 260 ich komme da nicht hin 3 x Arbeit dann 4 x Arbeit ich kann es nicht nachvollziehen

12.03.2021 - 20:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nohns, es wird zuerst 24 Stäbchen x 3 zugenommen, dann nur 12 Stäbchen x 4 = 140 + (24x3) + (12x4)= 260 Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

15.03.2021 - 08:05

country flag Lisa wrote:

Hallo, bin gerade beim Häkeln von A.z in der 4. Reihe, A.3. Müsste da nicht das Zeichen x (ganz rechts) statt dem kleinen T stehen? Also die feste Masche in die Masche und nicht um die Masche? Vielen Dank und schöne Grüße!

28.02.2021 - 11:26

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, diese feste Masche sollte um die Luftmaschenbogen von den vorrigen Runde gehäkelt werden (aber die können Sie auch in die mittlere Luftmasche häkeln, wenn Sie das so lieber haben). Viel Spaß beim häkeln!

01.03.2021 - 09:25

country flag Kay Johnston wrote:

It this pattern available with written instructions rather than working from a chart?

26.06.2020 - 19:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Johnston, this pattern is only avalaible with diagrams - you will learn more about diagrams here. Happy knitting!

29.06.2020 - 07:22

country flag Kay Johnston wrote:

It this pattern available in written instructions rather than working from a chart?

26.06.2020 - 19:44

country flag Yvonne Plath wrote:

Hallo, ich komme leider nicht weiter. Habe die Stäbchenreihen wie angegeben gehäkelt, komme laut Anleitung aber auf nur 11 Reihen. Nach 10 Reihen sollte die Gesamtlänge in L 19 cm betragen. Kommt natürlich nicht hin. Und laut Bild von der Jacke müssten es 19 Reihen Stäbchen sein. Von 19 Reihen finde ich aber in der Anleitung nichts. Vielen Dank für die Hilfe.

14.05.2020 - 11:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Plath, es wird in der Größe L 4 Mal in jede 2. Reihe (24 Stb) dann 4 Mal in jede 2. Reihe (12 Stb) zugenommen = da sind schon 16 Reihen + die vom Anfang und die letzte Rückreihe sollten Sie die ca 19 cm bekommen. Viel Spaß beim häkeln!

14.05.2020 - 12:05

country flag Christel wrote:

Om dit vest in kinderafmetingen te maken voor 10 jaar ,hoe bereken ik dit ? Mvg Christel

23.02.2020 - 13:23

DROPS Design answered:

Dag Christel,

Dit patroon is er alleen voor volwassenen. Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen naar persoonlijke wensen aan te passen. Wellicht kun je een geschikt patroon vinden tussen de patronen voor kinderen.

23.02.2020 - 13:39

country flag Patrizia wrote:

CIAO NON RIESCO A VEDERE IL PARTICOLARE DALLA DOMANDA ANCHE SE MAGARI POTREI CAPIRE DALLE ISTRUZIONI E TROVARE LA SOLUZIONE AL MIO DUBBIO.........LE MANICHE SONO SENZA CUCITURA CIOE' PARTONO DALLO SPRONE ROTONDO?CHIEDO SCUSA E SPERO DI ESSERMI SPIEGATA STO CERCANDO UN MODELLO CHE ABBIA LA MANICA ATTACCATA MI POTETE AIUTARE ?GRAZIE IN ANTICIPO BUONA GIORNATA E BUON LAVORO

08.10.2019 - 11:31

DROPS Design answered:

Buongiorno Patrizia. Sì, le maniche vengono lavorate dallo sprone verso il basso. Il cardigan è lavorato dall'alto verso il basso (quindi si parte dal collo). Buon lavoro!

08.10.2019 - 12:55