DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 162-3
DROPS Design: Mynstur nr cl-042
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
500-550-650-700-750-850 gr litur nr 08, ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st og 8 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með sl, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.

3 ST SAMAN:
Heklið 3 st í 1 st þannig: * Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 þræðir á heklunálinni) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið síðan næsta st en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 94-101-108-122-129-143 ll með heklunál nr 4,5 með Cotton Light.
Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum, * 1 st í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll*, endurtakið frá *-* þar til 1 ll er eftir, 1 st í síðustu ll = 80-86-92-104-110-122 st. Heklið nú þannig: 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, hoppið yfir 1 st (koma í stað 3 ll), A.1 (= 6 l) alls 13-14-15-17-18-20 sinnum, endið á 1 st í síðasta st. Haldið áfram með þetta mynstur. Gatið í A.1 vísar að 2 l í hverri umf til vinstri (séð frá réttu) þar til gatið mætist einum st í vinstri hlið á stykki.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.z endurtekið til loka. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm. Heklið nú mynstur yfir miðju 68-74-80-80-86-98 l (= 6-6-6-12-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg). Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Heklið st yfir fyrstu 20-23-24-24-24-31 l (= öxl) þannig: Heklið 1 st í hvern st og 2 st um hvern loftlykkjuboga = 20-23-24-24-24-31 st. Heklið 2 umf með 1 st í hvern st. Klippið frá og festið enda.
Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og bakstykki, nema heklað er A.2 í stað A.1, þ.e.a.s. gatið vísar til hægri (séð frá réttu). A.x er endurtekið til loka. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.x er fellt af fyrir hálsmáli (í næstu umf frá röngu) þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 31-34-37-37-40-46 st, heklið 3 ST SAMAN – sjá skýringu að ofan. Snúið við. Endurtakið þessa úrtöku í hverri umf fyrir miðju að framan alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 20-23-24-24-25-31 l eftir á öxl. Heklið nú 1 umf með 1 st í hvern st og 2 st um hvern ll-boga. Heklið 2 umf með 1 st í hvern st. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á hinni öxlinni.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 45-45-49-49-52-52 ll með heklunál nr 4,5 með Cotton Light. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 5-5-7-7-5-5 ll, * 1 st í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 1-1-3-3-1-1 ll, 1 st í síðustu 1-1-3-3-1-1 ll = 38-38-42-42-44-44 st. Heklið 1 st í hvern af fyrstu 1-1-3-3-1-1 st, A.2 þar til eftir eru 1-1-3-3-1-1 st (= 6-6-6-6-7-7 sinnum á breiddina), 1 st í hvern af síðustu 1-1-3-3-1-1 st. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.x endurtekið til loka. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm er aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í fyrsta og síðasta st í umf (= 2 st fleiri). Endurtakið útaukningu með 4½-4-4-3-3-2½ cm millibili 9-10-10-12-12-14 sinnum til viðbótar = 58-60-64-68-70-74 l. Útauknar lykkjur eru heklaðar jafnóðum inn í mynstur. ATH: Það er alltaf 1 st (eða 3 ll = 1 st) á hvorri hlið á stykki. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 52-52-51-51-51-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Heklið saman axlasauma frá röngu í gegnum bæði stykkin þannig: 1 fl í fyrsta st, * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-*. Saumið ermar í. Heklið saman sauma undir ermum og hliðarsauma frá röngu í gegnum bæði stykkin þannig: * 1 fl yst í lykkjubogann, 3 ll, hoppið yfir 1 umf *, endurtakið frá *-* þar til ca 10 cm eru eftir á fram- og bakstykki fyrir klauf á hvorri hlið. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmáli frá miðju að ofan á öxl þannig: 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið og endið á 1 kl í fyrstu fl í umf. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = ll
symbols = st í st
symbols = st um ll-boga
symbols = fyrsta röð er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Just Me top

Beth, United States

Something violet

Michela, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (172)

Rebecca wrote:

Hi, I'm slightly confused about how to joint the underarm seams and side seams. 1sc in outer loops, ch3, skip1 row. Does this mean I am only joining the pieces together with one stich for every other row?

04.04.2017 - 11:52

DROPS Design answered:

Dear Rebecca, you crochet 3 ch between 2 sc, and skip 1 row, the 3 ch will have the same height as 1 row, and the sc have to be crocheted in the first/last st on each row, with 3 ch between each sc. Happy crocheting!

04.04.2017 - 13:36

country flag Catherine wrote:

Thank you for the clear explanation. Kind regards, Catherine

27.03.2017 - 18:46

country flag Cath wrote:

Thank you. Do you also chain 3 immediately before the 3TR TOG on turning or just 3TR TOG without initial 3 chain. Thanks.

27.03.2017 - 15:55

DROPS Design answered:

Dear Cat, you need the 3 ch to turn with and to replace 1st tr, but the 3 ch will count as the first of the 3 tr to work tog. Happy crocheting!

27.03.2017 - 17:48

country flag Cath wrote:

I'm doing front neck shaping decreases XXL size. Do I do the 2nd row 3TR TOG immediately after turning work without a 3 chain start? Also does this part of the pattern comprise 10 rows in total to get to the 25 stitches remaining for the shoulder or are the decreases to be done on alternate WS rows? Thank you.

26.03.2017 - 13:23

DROPS Design answered:

Dear Cath, at the beg of row, replace 1st tr with 3 ch as before, dec for neck are done every row ie both from RS and from WS. Happy crocheting!

27.03.2017 - 09:24

country flag Mc wrote:

Merci

21.03.2017 - 10:26

country flag Mc wrote:

Merci pour la rapidité de votre réponse. Oui, je vais refaire un échantillon avec un crochet plus petit. Ceci dit, pourquoi monter autant de mailles au départ, pour les diminuer le rang suivant ? Cela ne risque t il pas de faire gondoler la bordure ?

21.03.2017 - 09:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mc, souvent la chaînette de base est trop serrée, et pour conserver la bonne largeur sans que la base ne soit trop serrée, on monte plus de mailles en l'air que l'on a besoin de mailles, puis au 1er rang, on saute régulièrement des ml pour avoir le bon nombre de mailles = la largeur souhaitée en conservant l'élasticité voulue. Bon crochet!

21.03.2017 - 09:46

country flag Mc wrote:

Bonjour, J'ai fait mon échantillon, petit probléme, il fait 10cm sur la hauteur , mais 13cm sur la largeur ! En général je tricote un modéle taille Xl , j'ai l'impression qu'il faut que je réalise un modele de la taille L Qu'en pensez vous ?

20.03.2017 - 21:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mc, essayez un nouvel échantillon avec un crochet plus petit, et essayez de tirer un peu plus vos brides en hauteur pour bien conserver la bonne hauteur si vous avez la bonne largeur mais pas encore la bonne hauteur. Bon crochet!

21.03.2017 - 09:02

country flag Mc wrote:

Merci beaucoup

17.03.2017 - 13:13

country flag Mc wrote:

Je regarde les vidéos sur lesquelles sont expliquées la réalisation de A1 et A2, pouvez vous me dire le nombre de brides faites au premier tour, car lorsque je fais le point sur 16 brides (échantillon de 10 cmx10cm), je n'arrive pas à terminer le point comme sur la vidéo Merci

17.03.2017 - 11:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mc, le nombre de mailles de A.1 doit être multiple de 6 + 1 B (= 3 ml) + 1 B à la fin. Pour votre échantillon, il vous faudra au moins 3 motifs x 6 m = 18 + 2 B = 20 B. Bon crochet!

17.03.2017 - 11:48

country flag Charo wrote:

Hola! ¿Podrían indicarme, por favor, si en las disminuciones del escote, después de girar la labor, se comienza la siguiente fila, en la línea del escote, con tres puntos de cadeneta? Muchas gracias.

20.10.2016 - 19:42

DROPS Design answered:

Hola Charo. En la fila con p.a. siempre comenzamos con 3 p.de cad. sustituyendo el 1er p.a. En este modelo, las dism se trabajan con 3 p.a. juntos y el primer p.a. trabajamos como 3 p.de cad.

30.10.2016 - 12:16