DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 162-35
DROPS Design: Mynstur nr w-564
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Mál: 20 x 20 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
150 gr litur nr 17, natur
50 gr litur nr 100, ljós þveginn
50 gr litur nr 103, dökk þveginn

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st og 10,5 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með st byrja á 3 ll og enda á einni kl í 3. ll í umf.
Allar umf með hst byrja á 2 ll og enda á 1 kl í 2. ll í umf.

PICOT:
Heklið 2 ll, 1 fl í 2. ll frá heklunálinni.

LITASKIPTI:
Til þess að fá fallega litaskiptingu við litaskipti er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, sækið þráðinn með nýja litnum, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum l á heklunálinni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Eftir 1. umferð, endurtakið A.1 alls 4 sinnum hringinn. A.2 er endurtekið alls 4 sinnum hringinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

POTTALEPPAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í tveimur hlutum sem heklaðir eru saman í lokin.

BLÓMAFERNINGUR:
Heklið 7 ll með heklunál nr 3,5 með litnum ljós þveginn og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, * 1 fl um hringinn, 13 ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í fyrstu ll = 8 ll-bogar. Klippið frá og festið enda.
Sjá mynsturteikningu A.1. Skiptið yfir í litinn dökk blár.
UMFERÐ 2: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 6 ll, * 1 kl um næsta ll-boga, 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, endið á 1 kl í fyrstu kl = 8 ll-bogar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, * heklið 2 st um næsta ll-boga, 3 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 32 st.
UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, * 1 fl í fyrsta/næsta st, hoppið yfir 1 st, um næsta ll-boga er heklað þannig: 2 st, 2 tbst, 1 PICOT – sjá útskýringu að ofan, 2 tbst, 2 st, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, 1 kl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í fyrstu ll = 8 blöð.
Skiptið yfir í litinn natur – LESIÐ LITASKIPTI.
UMFERÐ 5: Heklið 2 ll, * 8 ll, 1 hst um ll í umf 3 *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í 2. ll = 8 ll-bogar. Borgarnir liggja aftan við blöð í umf 4.
UMFERÐ 6: Heklið 2 ll, * 4 ll, 1 hst um ll-boga, 4 ll, 1 tbst í næsta hst, 4 ll, 1 tbst í sama hst, 4 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 4 ll, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 2. ll.
UMFERÐ 7: Heklið 3 ll, * 4 st um ll-boga, hoppið yfir 1 hst, heklið 5 st um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 tbst, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, hoppið yfir 1 tbst, 5 st um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 4 st um næsta ll-boga, hoppið yfir 2 hst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 88 st.
UMFERÐ 8: Heklið 3 ll, * 1 st í hvern af næstu 11 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 11 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 104 st.
UMFERÐ 9: Skiptið yfir í litinn ljós þveginn. Heklið 3 ll, ** * 1 st í fyrsta/næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 st í næsta st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st í sama ll-boga, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, * 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum **, endurtakið frá **-** alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 72 st.
UMFERÐ 10: Skiptið yfir í litinn natur. Heklið 3 ll, ** heklið 1 st í fyrsta/næsta st, 1 st í næstu ll, * 1 st í næsta st, 1 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 1 st í hvern af 3 næstu st, 2 st í næsta ll-boga (= horn), 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af 3 næstu st, * 1 st í næstu ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 st um næstu ll ** , endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, heklið síðan þannig: Heklið 1 st í næsta st, 1 st um næstu ll, * 1 st í næsta st, 1 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 1 st í hvern 3 næstu st, 2 st um næsta ll-boga (= horn), 8 ll (horn með lykkju / hanka), 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af 3 næstu st, * 1 st um næstu ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 st um næstu ll, endið á 1 kl í 3. ll = 140 st og 4 ll-bogar (= horn).

FERNINGUR (BAKHLIÐ):
Heklið 7 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll – MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 1: Sjá mynsturteikningu A.2. Heklið 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, * 3 st um hringinn, 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 12 st.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 3 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 28 st.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 5 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 44 st.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 7 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 60 st.
UMFERÐ 5: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 9 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 6 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 76 st.
UMFERÐ 6: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 11 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 8 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 92 st.
UMFERÐ 7: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 13 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 10 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 108 st.
UMFERÐ 8: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 15 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 12 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 124 st.
UMFERÐ 9: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 17 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 14 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið síðan þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 17 st, 2 st um ll-boga, 8 ll (horn með lykkju / hanka), 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 14 st = 140 st.

FRÁGANGUR:
Leggið blómaferninginn ofan á bakhlið með röngu að röngu. ATH: Passið uppá að horn með lykkju / hanka verði í sama horni á blómaferningi og á bakhlið, heklið þetta saman með litnum natur með byrjun frá fyrsta st eftir horni með lykkju / hanka þannig: Heklið 1 fl í gegnum bæði stykkin fram að næsta horni, * 2 fl um báða ll-bogana, 4 ll, 2 fl um sömu ll-boga, 1 fl í gegnum bæði stykkin fram að næsta horni *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 1 fl í gegnum bæði stykkin fram að horni með lykkju, heklið nú um lykkjuna þannig: 4 fl um báða ll-boga, 3 ll, 4 fl um sama ll-boga = 156 fl. Klippið frá og festið enda.

Heklið annan pottalepp á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.04.2015
BLÓMAFERNINGUR: Undir UMFERÐ 5: Heklið 2 ll, * 8 ll, 1 hst um ll í umf 3 *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í 2. ll = 8 ll-bogar. Borgarnir liggja aftan við blöð í umf 4.... undir UMFERÐ 10: (skipt hefur verið út á nokkrum stöðum Í fyrir UM)

Mynstur

symbols = fl um ll
symbols = ll
symbols = kl
symbols = st í l
symbols = st um ll
symbols = tbst um ll-boga
symbols = tbst í l
symbols = hst um ll og kl
symbols = hst um ll-boga
symbols = hst í l
symbols = picot: 2 ll, 1 fl í 2. ll frá heklunálinni
symbols = fl í l
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Veronika Jansson wrote:

Hej räknas garnåtgång för en komplett grytlapp eller ett set, dvs två stycken lika?

12.10.2021 - 21:03

DROPS Design answered:

Hej Veronika, det har vi desværre ikke en beregning på... men den i natur behöver du säkert dubbelt :)

13.10.2021 - 09:45

Meiling Chong wrote:

Hi, Flower Square I got up to Round 8 - 104tr (UK) Round 9 I only fewer than 72tr Most importantly, Round 10 should be 136tr, and not 140, as 104 +16 + 16 = 136. Hence, The back piece cannot line up as it will be 140tr. Please let me know if this is right (or not). Thanks!

27.08.2016 - 09:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chong, you should have 35 tr in each A.1 (i.e. when working from **to** a total of 4 times (including last repeat of A.1 with loop): 35 tr x 4= 140 tr. see also diagram. Happy crocheting!

29.08.2016 - 11:29

country flag Gisger wrote:

Bonjour, j'ai fini ce modèle, très beau. Mais n'y a t'il pas une erreur pour les explications du dos ? Il y a 9 rangs alors que le côté "fleur" en a 10. Moi j'ai dû crocheter 1 rang de + pour le dos car je n'avais pas le nombre de mailles. Qu'en pensez-vous ?

13.08.2015 - 10:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gisger, pour le dos, on doit bien avoir 9 tours seulement (motif différent du devant), on commence avec 12 B au 1er tour et on augmente de 16 B tous les tours jusqu'au tour 9 où on en a 140, comme à la fin du tour 10 de celui avec la fleur. Bon crochet!

13.08.2015 - 16:54

country flag Heidi wrote:

Freie mich auf die Anleitung

05.01.2015 - 19:12

country flag Ellen Meester wrote:

Leuke pannenlap. Vrolijk voor in de keuken.

03.01.2015 - 00:11

country flag Bertina wrote:

Mooi voor jezelf en leuk om cadeau te doen.

24.12.2014 - 10:03

country flag Wia wrote:

Leuk voor de volgende sint- of kerst kado's

19.12.2014 - 16:21

Lizette Bergstedt wrote:

This would make a great Gift for a friend who already has everything!

17.12.2014 - 13:48

country flag Marit wrote:

Så fine:-) håper oppskriften på denne kommer:-)

15.12.2014 - 18:54

country flag Päivi wrote:

Nice color and model - practical

12.12.2014 - 11:27