DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 21-30
DROPS Design: Mynstur nr LI-001-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
200-200-200 (250-250) g litur nr 5610, brúnn
50-50-50 (50-50) g litur nr 5310, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

DROPS TRÉTALA LJÓS NR 503: 3 st.
--------------------------------------------------------

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
150-150-150 (200-200) g litur nr 5610, brúnn
50-50-50 (50-50) g litur nr 5310, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.

RÖND-A:
2 umferðir í litnum ljós brúnn
3 umferðir í litnum brúnn
3 umferðir í litnum ljós brúnn
2 umferðir í litnum brúnn
1 umferð í litnum ljós brúnn
3 umferðir í litnum brúnn
4 umferðir í litnum ljós brúnn
1 umferð í litnum brúnn
2 umferðir í litnum ljós brúnn

RÖND-B:
4 umferðir í litnum brúnn
2 umferðir í litnum ljós brúnn
4 umferðir í litnum brúnn
4 umferðir í litnum ljós brúnn
4 umferðir í litnum brúnn
1 umferð í litnum ljós brúnn
1 umferð í litnum brúnn
1 umferð í litnum ljós brúnn
4 umferðir í litnum brúnn
3 umferðir í litnum ljós brúnn
1 umferð í litnum brúnn
1 umferð í litnum ljós brúnn
2 umferðir í litnum brúnn

ÚRTAKA (fyrir berustykki án kants):
Prjónið 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerkin, prjónið síðan þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt.

ÚRTAKA (fyrir berustykki með kanti):
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* við 2 næstu prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur snúnar brugðið saman, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
ATH: Passið uppá að lykkjurnar snúi í rétta átt frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að framan með laskalínu sem er staðsett á ermi – athugið hvort þess þurfi í stærri stærðum. Fellið af þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist:
Stærð 1/3 mán: 2, 5 og 8 cm.
Stærð 6/9 mán: 3, 6 og 9 cm.
Stærð 12/18 mán: 3, 7 og 10 cm.
Stærð 2 ára: 3, 7 og 11 cm.
Stærð 3/4 ára: 4, 8 og 12 cm.

ÚRTAKA (á við um buxur):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 102-114-126 (138-150) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum brúnn Lima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið síðan áfram með STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið eitt prjónamerki í 1. lykkju (= byrjun á umferð), 50-56-62 (68-74) lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki (= mitt í hlið) í næstu lykkju, 50-56-62 (68-74) lykkjur sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 14-15-18 (21-23) cm prjónið RÖND-A – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm fellið af 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handvegi (= lykkja með prjónamerki + 2 lykkjur hvoru megin við hana) = 92-104-116 (128-140) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum brúnn. Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið áfram með stroff í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í 1. lykkju í umferð, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi hvoru megin við prjónamerki með 3-2-3(2,5-2,5) cm millibili alls 4-6-5 (7-9) sinnum = 38-42-46 (50-54) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-17-18 (23-27) cm prjónið nú RÖND-A. Þegar stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm (passið uppá að það verði jafn margar renndur og á fram- og bakstykki) fellið af 5 lykkjur mitt undir ermi = 33-37-41 (45-49) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 158-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma.
Hægt er að prjóna stykkið með eða án ops með tölum – sjá útskýringu að neðan.

BERUSTYKKI MEÐ KANTI:
Prjónið nú fram og til baka frá hægri með laskalínu að framan. Fitjið upp 4 auka lykkjur á framstykkinu (= kantur fyrir tölur) = 162-182-202 (222-242) lykkjur.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í garðaprjóni og röndum ásamt 4 lykkjum GARÐAPRJÓN í byrjun og lok umferðar (fyrir kant með tölum). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA- fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð 1-3-4 (6-7) sinnum. ATH: Fellið einnig af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm setjið miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur að framan á þráð og hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru alls 45-49-53 (53-57) lykkjur á prjóni.

BERUSTYKKI ÁN KANTS:
Prjónið nú í hring. Haldið áfram í sléttprjóni og renndur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA – fækkið lykkjum í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm setjið miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af við hálsmál í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 41-45-49 (49-53) lykkjur á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónað er í hring á berustykki án talna og fram og til baka á berustykki með tölum.
Takið upp ca 23 til 27 lykkjur framan í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði) með litnum brúnn = 68 til 84 lykkjur. Setjið allar lykkjur á sokkaprjón 3,5 – prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt sem lykkjum er fækkað/aukið út jafnt yfir til 64-76 lykkjur. Prjónið 4 cm stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Ef þú hefur prjónað kant fyrir tölur: Leggið kantinn fyrir tölur yfir kant með hnappagötum efst og saumið niður í neðri kanti frá röngu. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá mitti og niður.

BUXUR:
Fitjið upp 108-112-116 (128-132) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum brúnn. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í RÖND-A- sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 8-9-9 (10-10) cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón jafnframt er lykkjum fækkað til 96-100-104 (112-116) lykkjur jafnt yfir í umferð. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju að framan og 1 prjónamerki í miðjulykkju að aftan (= 47-49-51 (55-57) lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í). Haldið áfram í sléttprjóni – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-13-14 (16-17) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 miðjulykkjur að aftan – aukið út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjónið hana slétt. Endurakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 114-118-122 (132-136) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-20-21 (23-24) cm. Í næstu umferð eru 3 miðjulykkjur að framan og 3 miðjulykkjur að aftan felldar af (þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki og 1 lykkja hvoru megin við þær) og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið 54-56-58 (63-65) lykkjur af annarri skálminni á þráð og 54-56-58 (63-65) lykkjur á hinni skálminni á sokkaprjón 4,5.

SKÁLM:
Prjónið sléttprjón í hring – setjið eitt prjónamerki í byrjun = innan á skálm. Þegar skálmin mælist 2-2-2 (3-3) cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-3-3½ (4-5½) cm millibili alls 5 sinnum = 44-46-48 (53-55) lykkjur. Þegar skálmin mælist 28-34-37 (43-49) cm skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út jafnt yfir til 48-48-54 (54-60) lykkjur. Prjónið síðan stroff: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið hringinn yfir allar lykkjur í RÖND-B – sjá útskýringu að ofan. Þegar skálmin mælist 18-22-25 (28-35) cm (buxurnar eiga að mælast 36-42-46 (52-59) cm frá mitti) fellið LAUST af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á milli skálma.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.08.2012
Peysa: STROFF: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
Yfirfarið á vefsvæði: 18.11.2020
Leiðrétting: Útskýring á röndum hefur verið uppfærð.

Mynstur

diagram measurements
diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Maite wrote:

Al leer el patrón aparece en el apartado OJALES : “Rem” para ojales y en el apartado cuerpo: rem 5 pta en cada lado para la sisa. Qué significa Rem?\r\nGracias

21.03.2024 - 11:00

DROPS Design answered:

Hola Maite, rem = rematar o cerrar puntos. Como cuando cierras para terminar la prenda.

24.03.2024 - 22:39

country flag Alana wrote:

I am knitting the jumper and have got stuck in the yoke section (without buttons). Casting off towards the neck, what do you mean by 2st 1 time and 1st 2 times? Some clarification would be great! And for how many rows/ to what length? Just continue until there are 45 st left?

04.12.2022 - 21:18

DROPS Design answered:

Hi Alana, These decreases are for the neck (after placing the mid-front stitches on a thread). You decrease, working back and forth, first 2 stitches on each side of the neck one time, work 1 row without decreasing, then 1 stitch on each side of the neck on each of the next 2 rows. A total of 8 stitches decreased. This leaves you with 45 stitches. Happy knitting!

05.12.2022 - 06:58

country flag Helle Pedersen wrote:

Hej ang. trøjen der mangler indtagning vejledning til den side man syr knappen på

25.04.2022 - 11:00

DROPS Design answered:

Hei Helle. Du feller av i knappestolpen i "raglanlinjen" / der du har lagt opp ekstra masker. Les avsnittet: BÆRESTK MED KNAPP i oppskriften og henvisningene i det avsnittet. mvh DROPS Design

25.04.2022 - 14:27

country flag Rikke wrote:

Ang buksen. Først står det: Når benet måler 28-34-37 (43-49) cm byttes det til settp 3,5…. Videre står det: Når benet måler 18-22-25 (28-35) cm (buksen skal da måle 36-42-46 (52-59) cm fra livet) Det går jo ikke?

10.02.2022 - 18:56

DROPS Design answered:

Hei Rikke. Her burde det stå:.....Når buksen måler 28-34-37 (43-49) cm byttes det til settp 3,5.... og ikke benet. Da stemmer det også med målskissen til oppskriften. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design

14.02.2022 - 10:38

country flag Ranveig Gruner wrote:

Står helt fast,har kommet der hals er ferdig felt der det var 13 masker tatt av,men jeg skjønner ikke hvor jeg skal ta opp di 27 masker,er det på begge sider der di 13 maskene er tatt av?og skal det virkelig være bare 49 masker igjen når man begynner og strikke halsen?har problemer der på grunn av at jeg har over 100 nå når jeg er ferdig felt hals og bare 3felling på armene?

04.05.2021 - 09:59

DROPS Design answered:

Hei Ranveig. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men hvilken størrelse strikker du? Og strikker du halskant med eller uten knapp? mvh DROPS design

10.05.2021 - 08:30

country flag Francine wrote:

Bonjour,j’essaie de comprendre les diminutions raglan sans boutonnage.C’est écrit 2 mailles ensemble que je fais au début du tour,puis je fais 2 diminutions par marqueur et une dernière à 4 mailles de la fin du tour?Ça fait 6 diminutions,est-ce que j’ai bien compris? Merci 🙏

30.03.2021 - 03:01

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, vous diminuez 2 mailles pour chaque de 4 raglans (8 mailles diminuees par tour). Rappelez-vous que le debut du tour (la ou vous commencez les DIMINUTIONS RAGLAN SANS BORDURE DE BOUTONNAGE) se trouve une maille apres le premier marqueur. Bon tricot!

30.03.2021 - 12:09

country flag Gaylene Newton wrote:

Re pants pattern, at point to insert marker in middle st front & back of pants denotes placing them at 47sts between...with 96 sts should this not be 48? Should there then be extra sts at beginning of round? Mathematically this doesn’t add up...where exactly do you start counting sts to find a 47st divide? Thanks

01.02.2021 - 20:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Newton, you should insert the marker in the middle stitch of mid front + mid back, so that you will have: 47 sts, 1 st with marker, 47 sts, 1 st with marker = 96 sts. Happy knitting!

02.02.2021 - 09:59

country flag Nicole wrote:

Jag förstår inte från steget där man ska lägga upp mittersta 13 maskorna. Jag. har jämt antal i mellan minskningar till ranglan. Gör det något att den är lite förskjuten. Verkar bli rätt antal när jag räknar ändå. Sen undrar jag om det inte blir en liten öppning när man bara minskar på "bakstycket" och varför minskar man när man sen ska plocka upp maskor. Förstår inte slutet.

19.11.2020 - 20:38

DROPS Design answered:

Hej Nicole. Nej det kommer inte att synas att halsen blir lite förskjuten. Du avmaskar vid halsen för att skapa en rund halsringning (eftersom du gör det på vartannat varv och inte allt på en gång), det är därför du maskar av för att sedan plocka upp maskor igen. Mvh DROPS Design

20.11.2020 - 11:02

country flag Nicole wrote:

Det står att man ska sätta de mittersta 13 på en tråd, men jag har totalt 18 mellan minskningarna. Gör det något att det är ojämnt? med 2 på ena. sidan och 3 på andra? Sen undrar jag också om det inte bli några hål eftersom man stickar några maskor 3 varv mer än dom man har satt på tråd. Varför minskar man om man ändå ska plocka upp sen? Får inte alls ihop de sista stegen från att man ska börja sätta 13 maskor på en tråd.

17.11.2020 - 18:02

DROPS Design answered:

Hej Nicole. Nej det ska inte bli några hål, om du stickar utan knapp så börjar du att att sticka arbetet fram och tillbaka istället för runt efter att du satt de 13 maskorna på 1 tråd. Efter det så avmaskar du vid halsen för att skapa en rundare halsringning. Efter det plockar du upp maskor för att sticka halskanten som senare viks dubbel. Mvh DROPS Design

20.11.2020 - 10:58

country flag Naja wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment rajouter sur mes aiguilles circulaires les manches qui sont aussi tricotées en rond, : "Reprendre les manches sur la même aiguille circulaire que le dos et le devant, au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures = 158-178-198 (218-238) m. Placer un marqueur à chaque transition entre le dos/devant et les manches. " et aussi quelle rayure je dois utiliser pour le pull sans boutons la A ou la C? Merci

28.08.2020 - 16:06

DROPS Design answered:

Bonjour Naja, cette vidéo montre comment placer les mailles des manches pour tricoter l'empiècement. On tricote les rayures-A à la fin du dos/devant et à la fin des manches et on les continue sur l'empiècement (mention manquante ajoutée, merci). Bon tricot!

31.08.2020 - 08:39