DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 21-17
DROPS Design: Mynstur nr BM-033-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) g litur nr 08, kirsuber
50-50-50 (50-50) g litur nr 01, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5 (60 cm í allar stærðir + 40 cm í 2 minnstu stærðunum) – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA LJÓS nr 503 (15 mm): 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 - M.7.

ÚRTAKA 1 (á við um búk):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA 2 (á við um handveg):
Fækkið um 1 lykkju á hvorri hlið þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur í garðaprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-156-172 (188-200) lykkjur með litnum kirsuber á hringprjón 2,5.
Prjónið slétt í ca 2,5 cm, prjónið síðan 1 umferð brugðið = uppábrot, stykkið er nú mælt héðan og er prjónað í sléttprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið að auki 1 umferð slétt og setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= 72-78-86 (94-100) lykkjur á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Prjónið síðan M.1 1 sinni á hæðina.
Haldið áfram með litinn kirsuber í sléttprjóni þar til stykkið mælist 3 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 að ofan = 4 lykkjur færri í umferð. Endurtakið úrtöku með 2-2½-2½(2-2½) cm millibili alls 6-6-7 (8-8) sinnum = 120-132-144 (156-168) lykkjur.
LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM.
Þegar stykkið mælist 15-17-19 (21-23) cm (úrtöku á nú að vera lokið) prjónið M.2, M.3 og síðan M.4 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan umferð 1-3 í M.5 (nú mælist stykkið ca 26-28-30 (32-34) cm). Í næstu umferð (umferð 4 í M.5) eru felldar af 8 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 4 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), nú skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 52-58-64 (70-76) lykkjur. Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni til loka. Næsta umferð (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón (= kantlykkja), fækkið um 1 lykkju – sjá ÚRTAKA-2 að ofan, endið með 4 lykkjur garðaprjón. Endurtakið úrtöku innan við 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið frá réttu alls 2-1-4 (3-2) sinnum = 48-56-56 (64-72) lykkjur.
Eftir að M.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað M.6 og M.3 1 sinni á hæðina (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Næsta umferð er prjónuð brugðið frá röngu og síðan M.7 með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið til loka.
Þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm fellið af miðju 18-20-20 (22-24) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 13-16-16 (19-22) lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-38-41 (44-47) cm fellið af á hægri öxl, vinstri öxl er prjónuð þannig: Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot), prjónið síðan sléttprjón í 2,5 cm til viðbótar. Fellið af allar lykkjur.

FRAMSTYKKI:
= 52-58-64 (70-76) lykkjur. Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni til loka. Prjónið síðan með mynsturteikningu eins og á bakstykki með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og fellið af fyrir handvegi eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 29-32-35 (37-40) cm fellið af miðju 12-12-14 (14-16) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fellið síðan af í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 3-4-3 (4-4) sinnum = 13-16-16 (19-22) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 35-38-41 (44-47) cm fellið af á hægri öxl og prjónað er uppábrot á vinstri öxl eins og á bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hægri axlasaum. Gerið 1 lykkju þannig: Snúið 2 þræði 20 cm með kirsuberjarauður og leggið þá saman tvöfalda þannig að þeir tvinni sig saman. Gerið aðra lykkju alveg eins. Brjótið uppá kantinn við brugðnu umferðina á vinstri öxl að aftan og festið lykkjurnar í ysta liðinn með því að þræða þráðar endana í gegnum uppábrotið, festið endana og saumið kantinn niður á bakhlið. Saumið kantinn með uppábroti á bakhlið á vinstri öxl á framstykki.
Prjónið upp frá réttu ca 60-80 lykkjur meðfram öllum kantinum í hálsmáli (í gegnum bæði lögin á uppábroti í hvorri hlið), prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 66-70-74 (78-82) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina. Fellið laust af allar lykkjur þegar stroffið mælist ca 1 cm.
Saumið tölur í vinstri öxl á framstykki. Brjótið uppá neðsta kantinn á kjól við brugðnu umferðina og saumið niður á bakhlið.

Mynstur

symbols = kirsuber
symbols = hvítur
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Princess Dream

Cindy, Sweden

Princess dress

BirTual, Norway

151. Tunika

Olajda, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Vivian LaColla wrote:

I just answered my own question about binding off......I should NOT have started with a bindoff.....Now I have the 76th stitch in the middle of the bind off.......ug....I have to rip out!!!

27.02.2024 - 21:36

country flag Vivian LaColla wrote:

I absolutely love this pattern. I am at row 4 of M5, I have to bind off 4 stitches on each side of the marker. Do I bind off the first four stitches of the beginning of the round then bind off the last four at the end of the round (also binding off on the other marker) Do I start the round with a bind off? Also, I'm nervous about continuing the beautiful pattern while doing a stockinette stitch. Any advice? Any videos? I knit American not Continental. Thank you!!

27.02.2024 - 21:00

DROPS Design answered:

Hi Vivian, You bind off 8 stitches for each armhole (4 stitches on each side of both markers). Start the round by binding off 4 stitches, bind off 8 stitches on each side of the second marker and bind off the last 4 stitches on the round. Happy knitting!

28.02.2024 - 06:58

country flag Pascale wrote:

Bonjour. Ce modèle est très beau, merci pour les explications. Cependant je ne comprends pas le système de fermeture de l’épaule gauche… et votre explication en anglais à Juddy ne m’a pas éclairée… s’agit-il d’un système de brides ? Avez-vous une photo pour plus de clarté ? D’avance merci. Pascale

24.01.2024 - 21:22

DROPS Design answered:

Bonjour Pascale, les 2 cordelières sont les brides de boutonnage, faites une boucle et enfilez cette boucle dans le rang de cassure de l'ourlet de l'épaule gauche, fixez ces cordelières avec quelques points puis pliez l'ourlet en double et cousez-le sur l'envers. Il suffit maintenant juste de coudre le boutons sur l'autre épaule, et de les attacher à l'aide des cordelières. Bon assemblage!

25.01.2024 - 09:17

country flag Anjo wrote:

Meer een vraag,. Hoe zet ik dit om naar maat 128- 132? Qua steken? Dank.

18.12.2022 - 00:36

country flag Judy Canning wrote:

Is there a video showing the strap finish to the left shoulder? I do not understand how it is done. Thanks

16.11.2022 - 17:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Canning, the strap on the left shoulder is worked with a folded hem on both front and back pieces; the both twisted cords are the straps for the buttons, insert them through the folded edge (evenly distributed) and tied them together from WS, sew the folded edge on back piece and sew the buttons on front piece matching the straps. Happy finishing!

17.11.2022 - 09:57

country flag Ruth Savard wrote:

Bonsoir Au 4e tour de M5 j’ai 168 mailles. Si je rabats 8 mailles de chaque côté des marqueurs, il me reste (168 - 16 )= 152 mailles. Comme ce n’est pas un multiple de 12 je n’arrive plus dans ma grille . Que faire? Merci

03.08.2022 - 02:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Savard, notez bien où vous terminez /commencez le diagramme pour chaque pièce et continuez le diagramme comme avant, autrement dit, vous ne tricoterez plus le premier motif ni le dernier motif en entier, mais le diagramme doit continuer pour ne pas être décalé. Bon tricot!

03.08.2022 - 10:21

country flag Ruth Savard wrote:

Merci infiniment de répondre si rapidement . C’est gentil de votre part. Amicalement

14.07.2022 - 12:43

country flag Ruth Savard wrote:

Bonjour J’ai 168 mailles je dois tricoter M2 M3 et M4. J’utilise 20 mailles au total En les répétant 8 fois j’utilise 160 mailles. Il reste 8 mailles non incluses dans une grille au premier rang. Comme je prendrai 16 rangs pour tricoter en hauteur toutes les grilles j’aurai une bande sans motif entre les grilles. Quel conseil me donnez-vous? Merci

13.07.2022 - 02:49

DROPS Design answered:

Bonjour Ruth , vous tricotez 1 fois M2 en hauteur (14 fois tout le tour), ensuite M3 1 fois en hauteur (42 fois tout le tour) et enfin 1 fois M4 en hauteur (42 fois tout le tour). Bon tricot!

14.07.2022 - 08:55

country flag Manon Tessier wrote:

Bonjour , je suis rendu a faire le diagrame M5 il me reste 56 mailles après diminution . Le diagrams m5 est divisible par douze alors je commence ou pour que les dessins soit bon . Merci

17.12.2020 - 16:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tessier, vous tricotez M.5 sur toutes les mailles = 120-132-144 (156-168) m autrement dit vous le répétez 10-11-12 (13-14) fois en rond, puis, lorsque vous divisez l'ouvrage et que vous diminuez, vous terminez le diagramme = les rangs 4 et 5 en alignant les mailles les unes au-dessus des autres, autrement dit, veillez à bien juste continuer les diagrammes en hauteur en ajustant le début/la fin du rang en fonction des motifs. Bon tricot!

17.12.2020 - 17:19

country flag Ria Edam-Dekker wrote:

Ik maak maat 12-18 maanden maar kom niet op het aangegeven aantal van 16 steken bij het voorpand. Begint met 64 st, - 14 afkanten = 50 dus 25 aan iedere kant. Minder 1x2 en 3x1 = 20 st. Dus 4 meer dan 16. Wat gaat hier niet goed?

08.11.2020 - 18:57

DROPS Design answered:

Dag Ria,

Vermoedelijk zijn de 4 ribbelsteken hier niet bij gerekend. Dan kom je wel op 16 steken.

18.11.2020 - 13:15