DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

David

DROPS peysa prjónuð ofan frá og niður úr Karisma eða Merino Extra Fine með norrænu mynstri. Stærð 3 – 12 ára

DROPS Children 22-15
DROPS Design: Mynstur nr U-047-bna
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
250-300-350-400-450 gr litur nr 16, dökk grár
50-100-100-100-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50 gr litur nr 44, ljós grár

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
250-300-350-400-450 gr litur nr 18, eplagrænn
50-100-100-100-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50 gr nr 26, pistasía

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til þess að hringlaga berustykkið verði rétt verður prjónfestan að passa á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3 – fyrir stroff.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4312.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Mynsturteikning M.1 og M.2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3 með dökk grár eða eplagrænn. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3-3-4-4-5 cm (= kantur á hálsmáli). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út til 78-84-90-98-105 l. Prjónið nú upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 48-48-64-64-80 l, snúið við og prjónið 1 umf slétt aftur fram að miðju að aftan. Prjónið nú M.1 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! Skiptið yfir á stærri hringprjóna þegar þörf er á. Þegar M.1 er lokið eru 208-224-240-252-270 l á prjóni. Prjónið 0-0-1-0-1 cm með dökk grár eða eplagrænn. Stykkið mælist nú ca 14-15-16-17-18 cm við miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Stykkið er prjónað til loka með dökk grár eða eplagrænn og sléttprjóni. Fyrst er prjónuð 1 umf jafnframt því sem aukið er út um 4-4-4-12-10 l jafnt yfir = 212-228-244-264-280 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-37-39 l, setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjónað þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 62-66-70-74-78 l (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 á þræði fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 31-33-35-37-39 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-144-152-160-168 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni í 23-26-29-32-35 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf jafnframt því sem aukið er út um 12 l jafnt yfir = 148-156-164-172-180. Prjónið nú stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið l af öðrum þæðinum á sokkaprjóna nr 4, fitjið að auki upp 6 l mitt undir ermi (setjið prjónamerki mitt í þessar l) = 50-54-58-64-68 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með dökk grár eða eplagrænn. Þegar stykkið mælist 2 cm, fellið af 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með 4½-3½-4-3-3½ cm millibili alls 5-7-7-10-10 sinnum = 40-40-44-44-48 l. Þegar ermin mælist 20-24-28-31-35 cm, prjónið M.2, skiptið nú yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm, fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið nú alveg eins yfir l af þræði í hinni hliðinni.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = natur
symbols = dökk grár eða eplagrænn
symbols = ljós grár eða pistasíu
symbols = sláið uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann).
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

David

Martina, Czech Republic

David

Martina, Czech Republic

Ein neuer Tag bei der

Strickdiele, Germany

Wunschstreifenpulli

Lanade, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 22-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Sirpa Santavuori wrote:

Hei! Mallipiirros puuttuu ohjeesta? Terveisin Sirpa

08.02.2024 - 07:33

DROPS Design answered:

Hei! Piirrokset löytyvät ohjeen tekstin alapuolelta.

08.02.2024 - 18:04

country flag Anne Croft wrote:

The first size of this pattern is 3/4 but if you look at the number of stitches for the body, its the same as size 2 in pattern 44-14 so if I make this in this size it will be too small. I have already made the Christmas jumper in size 3/4 and it fits perfect so I am not sure what size to do in this jumper. The pic makes this jumper look oversized but it would be a lot tighter than 44-14.

10.01.2024 - 22:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Croft, measure a garment the kid have and likes the shape to find ou the best matching size, as the shape can be different from a pattern to another; most important is not only the size but also that the measurements are matching the one you'd like. Happy knitting!

11.01.2024 - 08:20

country flag Annelie wrote:

Det jag saknar i mönstret är hur många maskor det ska vara när man har gjort ökningarna/omslagen. Så man får lite koll ifall man räknat fel. Har hänt att maskantalet inte stämmer när man börjar med mönstret.

11.12.2023 - 09:48

country flag Kamila Michno wrote:

Hej!Undrar om man måste tänka på nivåskilnader när nan stickar diagramet eller ska man bara sticka som det är i beskrivningen. Hur jag än gör så blir det synligt nivåskillnad i början av varvet...Tack för svaret.Kamila.

10.12.2022 - 00:11

DROPS Design answered:

Hei Kamila. Det vil alltid bli et hakk når man begynner på en ny omgang. For å minske dette hakket kan første maske på neste omgang strikkes slik: Løft opp masken under første maske på venstre pinne (masken løftes opp i bakre ledd), og sett denne masken på venstre pinne. Deretter strikkes denne masken rett sammen med neste maske på venstre pinne. På denne måten blir overgangen mindre synlig. Dette må også tilpasses mønstret du strikker etter. mvh DROPS Design

12.12.2022 - 14:25

country flag Hej wrote:

Hej jag stickar storlek 11/12 på tröjan, jag lägger upp 100 maskor o efter resåren ska man ha 4 markeringstrådar, men jag förstår inte vart jag ska sätta dom

26.09.2021 - 13:43

DROPS Design answered:

Hej. Du ska bara sätta en markör i arbetet efter resåren och den sätter du i början av varvet. Senare ska du sätta 2 markörer i sidorna av arbetet, men det är först när du börjar sticka på ärmarna. Mvh DROPS Design

27.09.2021 - 09:22

country flag Maria wrote:

Jag har problem med vad jag ska sätta min 4 markeringarna, jag stickar med 100 maskor

14.09.2021 - 16:14

country flag Sarangi Ketola wrote:

Hello, I am knitting drops children 22-15. I cast on 100 s as the pattern says for 146/152. I knitted M 1 chart, but my total stitch end of the M 1, 252 s. It should be 270. What mean M1 - 9/10+11/12?

25.06.2021 - 07:42

DROPS Design answered:

Hi Sarangi, M1 has 15 repeats on each round. You increase a total of 11 times during M1 which gives you 165 extra stitches. You started with 105 stitches after the neck, so you should have a total of 270 stitches when M1 is finished. The 9/10 and 11/12 refer to the child's age. Happy knitting!

25.06.2021 - 08:23

country flag Olga Guga wrote:

Como hacer las vueltas con agujas circulares para que el esquema no aparezca con un escalón.\r\nMuchas gracias

09.05.2021 - 10:42

DROPS Design answered:

Hola Olga, es normal que quede un pequeño escalón en el dibujo. En principio no se puede solucionar. Cuando es en el cuerpo se recomienda que quede bajo la manga para que quede menos visible, en este caso lo más apropiado sería que quede en la espalda, donde llama menos la atención.

09.05.2021 - 19:55

country flag Mette Claudi wrote:

Hej, tak for jeres svar. Jeg havde startet med mønsteret oppefra som det er vist i diagrammet, men kan nu se det starter nedefra. Så passer maskeantallet også, havde bare ikke tænkt på at begynde nedefra😯Tak for hjælpen. Mvh. Mette

26.03.2021 - 09:16

DROPS Design answered:

God fornøjelse Mette :)

26.03.2021 - 13:46

country flag Mette Claudi wrote:

Ang. udtagning på M1 str 5/6. Efter første slå om strikkes der så 14 eller 15 m? Antal udtagninger går ikke op alle steder? Slut maskeantal efter udtag = 224? Kan ikke helt regne mig frem til det. Forstår ikke at der er ulige maskeantal, og nogle steder skal der tages F.eks. 13,5 m ud på omg. Håber I kan hjælpe. Mvh. Mette

24.03.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Hej Mette, sæt et mærke imellem hver rapport (=hver gang du starter forfra på et diagram) Du tager ud ifølge diagrammet. På første pind (i str 5/6) strikker du: 1 omslag, 6 ret, 1 omslag, 6 ret osv. Nu har du 7 masker imellem hvert mærke. På 2.omgang strikker du: 7 ret, 1 omslag, 7 ret, 1 omslag, omgangen rundt. Nu har du 8 masker imellem hvert mærke. Fortsæt på denne måde. God fornøjelse!

25.03.2021 - 09:29