DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 20-8
DROPS Design: Mynstur nr ME-044-by + ME-032-by + ME-045-by + ME-028-by
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 - 98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
200-250-250 (300-300) g litur nr 08, ljós beige:

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4,5 - eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 fyrir stroff.

DROPS KÓKOSTALA, NR 516: 4-4-5 (5-5) st.
--------------------------------------------------------

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
150-150-150 (200-200) gr litur nr 7, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 fyrir stroff.
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Höfuðmál í cm: 40/42-42/44-44/46 (48/50-50/52)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-50 (100-100) litur NR 08, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
--------------------------------------------------------

BANGSI:
Mál: ca 30 cm að lengd

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50 g litur nr 07, ljós brúnn
50 g litur nr 19, ljós gráblár
afgangur af lit nr 01, natur
afgangur af lit nr 15, ljós grágrænn
Og notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
afgangur af lit nr 151, guacamole
afgangur af lit nr 400, svartur (fyrir augu)

DROPS HEKLUNÁL NR 4 (fyrir bangsa) – eða þá stærð sem þarf til að 19 fastalykkjur x 10 umferðir verði 10 x 10 cm – ATH: Mælt þegar stykkið liggur flatt. Þegar bangsinn er fylltur með vatti þá koma l til með að spennast út.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 (fyrir hjörtu).

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um buxur):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan.
1 HNAPPAGAT = fellið af fjórðu kantlykkju við miðju að framan. Í næstu umferð er fitjuð upp ný lykkja yfir þá lykkju sem felld var af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 6, 12, 18 og 24 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 8, 14, 20 og 26 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 5, 11, 17, 23 og 29 cm.
STÆRÐ 2 ára: 5, 12, 19, 26 og 33 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 9, 16, 23, 30 og 37 cm.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta fl í byrjun á hverri umf er skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.

FL HEKLAÐAR SAMAN:
2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 151-167-185 (201-219) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið. Þegar stroffið mælist 2-2-2 (3-3) cm er skipt yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið yfir fyrstu 6 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 139-155-173 (189-207) lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 40-44-50 (54-60) lykkjur jafnt yfir, endið með stroffi 1 lykkja brugðið/1 lykkja slétt yfir síðustu 6 lykkjur = 111-123-135 (147-159) lykkjur = 6 lykkjur í hvorri hlið = kantur að framan.
Kantar að framan eru prjónaðir í stroffprjóni til loka. ATH! Munið að fella af fyrir hnappagötum – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan!

Haldið áfram í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15-18 (22-25) cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu) prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður) JAFNFRAMT er aukið út um 28-34-38 (42-48) lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) – LESIÐ ÚTAUKNING! = 139-157-173 (189-207) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki 37-42-46 (50-55) lykkjur inn frá hvorri hlið (bakstykki = 65-73-81 (89-97) lykkjur). Skiptið til baka yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 20-21-24 (28-31) cm fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin – fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið) og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 59-67-75 (83-91) lykkjur. Fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 3-3-2 (2-2) sinnum og 1 lykkja 0-0-1 (1-1) sinnum = 47-55-65 (73-81) lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-30-34 (39-43) cm fellið af miðju 25-29-31 (33-35) lykkjur fyrir hálsmáli (fellið af með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 11-13-17 (20-23) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með stroff eins og áður og 1 lykkja garðaprjón við hálsmál. Fellið af slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar stykkið mælist 30-32-36 (41-45) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 34-39-43 (47-52) lykkjur. Fellið af fyrir handveg eins og á bakstykki = 28-33-38 (42-47) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (35-39) cm fellið af ystu 17-20-21 (22-24) lykkjur við miðju að framan við hálsmál (fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið) = 11-13-17 (20-23) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með stroff eins og áður og 1 lykkju garðaprjón við hálsmál. Fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar stykkið mælist 30-32-36 (41-45) cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 34-39-43 (47-52) lykkjur. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Fitjið upp 42-44-44 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í stroff. Endurtakið útaukningu með 3-2-1½ (2-2) cm millibili alls 4-6-9 (10-12) sinnum = 50-56-62 (68-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (25-29) cm fellið af 6 lykkjur undir ermi fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan stykkið fram og til baka JAFNFRAMT þegar fellt er af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun hverrar umferðar: 2-3-3 (4-4) lykkjur þar til stykkið mælist 21-22-24 (29-33) cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun næstu 2 umferða. Í næstu umferð eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og festið tölur.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá mitti og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BUXUR:
Fitjið upp 110-114-118 (130-134) lykkjur á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Í 8-9-9 (10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið næstu umferð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, sléttprjón yfir næstu 39-41-43 (49-51) lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-6 (8-8) lykkjur jafnt yfir = 33-35-37 (41-43) lykkjur í sléttprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, *, endurtakið alls 7 sinnum, 1 lykkja brugðið, sléttprjón yfir næstu 41-43-45 (51-53) lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-8 (10-10) lykkjur jafnt yfir = 33-35-37 (41-43) lykkjur í sléttprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 1 lykkja brugðið. Nú eru 96-100-104 (112-116) lykkjur á prjóni. Setjið prjónamerki í miðjulykkju að framan og prjónamerki í miðjulykkju að aftan = 47-49-51 (55-57) lykkjur á milli lykkja með prjónamerki. Haldið áfram að prjóna í hring í sléttprjóni og 15 lykkjur í stroffprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-13-14 (16-17) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 miðjulykkjur að framan – aukið út með því að taka upp lykkjur frá fyrri umferð og prjónið þá lykkju slétt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 114-118-122 (132-136) lykkjur.
Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-20-21 (23-24) cm. Í næstu umferð eru felldar af 3 lykkjur að framan og 3 miðjulykkjur að aftan (þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki og 1 lykkju beggja vegna við hana) og hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig.
Setjið 54-56-58 (63-65) lykkjur á þráð og hinar 54-56-58 (63-65) lykkjur fyrir hina skálmina eru settar á sokkaprjóna nr 4,5.

SKÁLM:
Prjónið í hring í sléttprjóni og 15 lykkjur í stroffprjóni í ytri hlið á skálm eins og áður – setjið prjónamerki í byrjun umferðar = innan á skálm. Þegar skálmin mælist 2-2-2 (3-3) cm er felld af 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-3-3½ (4-5½) cm millibili alls 5 sinnum = 44-46-48 (53-55) lykkjur. Þegar skálmin mælist 12-16-18 (22-27) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-6 (5-5) lykkjur jafnt yfir. ATH! Aukið ekki út yfir stroffprjóns lykkjur í hlið = 48-50-54 (58-60) lykkjur. Prjónið nú stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið í kringum allar lykkjur (passið að stroffið passi við stroffprjóns lykkjur frá hlið á skálm). Þegar skálmin mælist 18-22-25 (29-35) cm (buxurnar eiga að mælast 36-42-46 (52-59) cm frá mitti) fellið LAUST af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á milli skálma.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

HÚFA:
Fitjið upp 8-10-13 (15-18) lykkjur með litnum ljós beige og skiptið niður 4 sokkaprjóna (skiljið eftir smá bút af uppfitjunarþræði til þess að draga saman húfuna í lokin). Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 7-10-12 (15-17) lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING! = 15-20-25 (30-35) lykkjur. Setjið 5 prjónamerki í stykkið með 3-4-5 (6-7) lykkjur á milli hverra. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 75-80-85 (90-95) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm aukið út um 25-26-29 (30-31) lykkjur jafnt yfir (aukið er út á milli ca 3. og 4. hverrar lykkju) = 100-106-114 (120-126) lykkjur. Skiptið yfir í hringprjóna nr 3,5. Prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af í næstu umferð þannig:
ATH! Umferðin byrjar á 10-10-8 (8-7) lykkju fyrir miðju að aftan. Fellið af 21-21-17 (17-15) lykkjur með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið (= hnakki). Setjið næstu 25-27-33 (35-39) lykkur á þráð fyrir eyrnalepp. Fellið af næstu 29-31-31 (33-33) lykkjur (= enni). Prjónið síðan eyrnalepp fram og til baka yfir síðustu 25-27-33 (35-39) lykkjur þannig: Haldið áfram með stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð alls 9-10-13 (14-16) sinnum í hvorri hlið (fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið) = 7 lykkjur.
Í næstu umferð eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Eyrnaleppurinn mælist ca 5-6-8 (8,5-10) cm.
Prjónið hinn eyrnaleppinn á sama hátt.
Herðið að gatinu efst á húfunni með aðstoð af uppfitjunarbandinu og festið vel.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 75 cm, tvinnið þá saman vel. Þræðið snúruna í gegnum kantinn neðst á öðrum eyrnaleppnum, leggið síðan snúruna saman tvöfalda og látið hana tvinna sig aftur. Gerið hnút á endann.
Endurtakið á sama hátt og á fyrri eyrnalepp.

-------------------------------------------------------

BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Byrjað er á að hekla á höfði og síðan niður búkinn. Að lokum eru eyrun hekluð, hendur, fætur og hjörtu sem eru saumuð á búkinn í lokin.

HÖFUÐ:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 6-11: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl.
UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman – sjá FL HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl.
UMFERÐ 14: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 15: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.

Fyllið höfuðið með vatti og heklið áfram búkinn í hring án þess að klippa frá.

UMFERÐ 16-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 19: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. Skiptið yfir í litinn natur.
UMFERÐ 20: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár.
UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.
UMFERÐ 22: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár.
UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.
UMFERÐ 24: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. Skiptið yfir í litinn natur.
UMFERÐ 25: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár og heklið afganginn af búk þannig:
UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl.
UMFERÐ 30: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl.
UMFERÐ 31-39: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl.
UMFERÐ 40: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 41-46: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl.
UMFERÐ 47: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl.
UMFERÐ 48: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl.
UMFERÐ 49: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 50: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn 24 fl.
UMFERÐ 51: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl.
UMFERÐ 52: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 53: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl.
UMFERÐ 54: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 55: Heklið saman allar fl 2 og 2 = 6 fl.

Fyllið bangsann með vatti, þræðið þráð upp og niður í gegnum 6 fl, herðið að opinu og festið vel.

FÓTUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið í innri lykkjubogann.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið aftur í gegnum alla fl.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru fyrstu 2 og síðustu 2 fl í umf heklaðar saman = 10 fl.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru 5. og 6. fl heklaðar saman og 7. og 8. fl heklaðar saman = 8 fl.
Heklið hinn fótinn á sama hátt.
Fyllið fæturna með vatti og saumið neðan á búkinn.

HÖND:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl.
UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl.
Fyllið höndina með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 4 fl. Klippið frá og saumið stykkið efst á búkinn – saumið í efstu röndina með litnum ljós grágrænn.

Heklið hina höndina á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið.

EYRA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl.
UMFERÐ 3: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl.
Leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 6 fl, snúið stykkinu og heklið 2 og 2 fl saman = 3 fl.
Klippið frá og saumið eyrað á höfuðið.

Heklið hitt eyrað á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið.

LÍTIÐ HJARTA:
Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu.
Heklið 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 fl í miðju fl, 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf.
Klippið frá og saumið hjartað framan á bangsann.

STÓRT HJARTA:
Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju = 6 lykkjur (meðtaldar loftlykkjur í byrjun á umferð), snúið stykkinu. Heklið 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 fastalykkju mitt á hjarta, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 keðjulykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Klippið þráðinn og saumið hjartað á bangsann.

Heklið annað hjarta á sama hátt og festið á bangsann.

Saumið augu og munn á bangsann með litnum svartur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Sonia wrote:

Dans le patron du pantalon ça dit faire 8cm côtes ensuite j'ai fait mes diminutions et ça dit se poursuivre pour 11 cm est ce que c'est 11 cm avec le 8cm de tour de taille inclus ou c'est en plus ? Un gros merci de votre aide

15.04.2024 - 19:47

DROPS Design answered:

Bonjour Sonia, les 11 cm doivent être mesurés à partir du rang de montage, autrement dit, c'est 3 cm après les diminutions de la taille faites à 8 cm de hauteur totale. Bon tricot!

16.04.2024 - 08:06

country flag Liz M wrote:

I have a problem with the sleeve Pattern says ‘ Cast off for sleeve cap at beg of every row each side: 2-3-3 (4-4) sts until piece measures 21-22-24 (29-33) cm, ’ - does this mean every row for four cm or once then carry on for four cm? Thanks

15.09.2023 - 02:17

DROPS Design answered:

Hi Liz, You cast off the correct number of stitches at the beginning of every row, until the piece measures the length stated. So if it is 4 sts you are casting off each time, then cast off 4sts at the beginning of every row to finished length. Happy knitting!

15.09.2023 - 06:40

country flag Marie Simonová wrote:

Ve Vašem popise máte špatně dané počty ok v rozložení na zadní a přední díly ( nepočítá se s odečtem dříve uvedeným! Prosím o odpověď!

07.06.2023 - 15:36

DROPS Design answered:

Dobrý den, paní Simonová, děkujeme za upozornění - v návodu chyběla mj. informace o přidávání, které počet ok opět srovná. Návod nyní prošel kompletní revizí a měl by již být zcela v pořádku (všechny jeho části). Věřím, že vám udělá radost! Hana

17.06.2023 - 09:14

country flag Dana wrote:

2×(37 plus 6 krajovych ok),coz z navodu neni patrne, je 86 ok. Plus 65 pro zadni dil je 151 ok,tj. puvodni pocet ok pred ubiranim 40 ok. Navod je cely spatne, pocitam tedy vse od prvni rady se 151 oky, a je to super! Fakt. Prosim znovu o opravu.

17.08.2022 - 18:46

country flag Dana wrote:

Dobry den, Mate v navodu kabatku spravny pocet ok? Pisete,ze se ma umistit znacku za 37.oko z kazde strany (zatim celkem 37x2=74 ok) a zbyde 65 ok pro zadni dil (74+65=139 ok). Mam ale po ubrani 40 ok pouze 111 ok!!! Udaj 139 ok se v navodu vyskytl jakonpocet ok mezi legy pred ubranim! Pokracuju dal tedy prepicitanim: Znacku za 28. oko z kazdecstrany a zbyde 55 ok pro zadni dil. Doufsm,zecse s navodem dal nejak domluvim. Prosim o opravu.

17.08.2022 - 18:25

DROPS Design answered:

Hi, if you can write your question in English, we can try to help you :)

16.11.2022 - 13:42

country flag Denise Van Dijk wrote:

I am knitting the jacket. Cast on with 3.5mm for ribbing, change to 4.5mm for stockinette stitch then change again to 3.5mm for ribbing (middle part), but it does not tell you to change back to 4.5mm for the remaining stockinette stitch. Is this correct? So the top part of the jacket after the middle ribbing the stockinette stitch is done with 3.5mm or should you change back to 4.5mm? Also is it correct the sleeves are knitted only with 3.5mm so 4.5mm is not used at all for the sleeve

05.07.2022 - 23:23

DROPS Design answered:

Hi Denise, The jacket is finished in rib and the sleeves are worked in rib the whole way up so, yes, you continue to use needles size 3.5 mm on the jacket and for the whole of the sleeves. Happy knitting!

06.07.2022 - 06:53

country flag Ute K wrote:

Bezüglich der Jacke: nach dem Bündchen sollen Maschen abgenommen werden...das habe ich mit unterschiedlichen Methoden ausprobiert. Ergebnis: das Bündchen klappt hoch, sobald das Strickstück etwas länger ist. Ich würde die Extramaschen des Bündchens jetzt weglassen. Ansonsten eine schöne Jacke!

22.02.2021 - 08:40

country flag Lea wrote:

Hallo, Ich bin gerade an der rechten Vorderseite und verstehe nicht so recht was "gegen den Hals abketten" bedeutet. Soll ich einfach die (bei mir) 22 äußeren Maschen abketten? Oder ist das anders gemeint. Vielen Dank für ihre Hilfe LG Lea

19.01.2021 - 21:36

DROPS Design answered:

Liebe Lea, ja genau, beim linken Vorderteil ketten Sie die ersten 22 M am Anfang einer Rückreihe ab und beim rechten Vorderteil werden die ersten 22 M am Anfang einer Hinreihe abgekettet, diese Maschen sind für den Hals. Viel Spaß beim stricken!

20.01.2021 - 07:38

country flag Gry Normann wrote:

Hva menes med å strikke 1 m Rille mot slutten av forstykkene og bakstykkket på jakken?

19.09.2020 - 21:08

DROPS Design answered:

Hei Gry, Det betyr at den siste masken er strikket rett på alle rad (som er definisjonen av rille). God fornøyelse!

21.09.2020 - 07:01

country flag Kathleen wrote:

Answered my own question! Thanks!

25.05.2020 - 03:21