Ingegerd Söderberg wrote:
När jag virkar ena framstycket går det bra, men när jag försöker virka det andra åt motsatt håll, så blir det ett dera ett varv mindre för att jag ska kunna öka ut i slutet på varvet annars blir det liksom avigt... vad gör jag för fel...?
18.08.2023 - 15:05DROPS Design answered:
Hei Ingegerd Litt vanskelig gå vite hva du gjør feil, men vi skal hjelpe deg så godt vi kan. Hvilken str. hekler du / hvor mange masker har du etter etter 1. rad. mvh DROPS Design
21.08.2023 - 09:01Rachel wrote:
When crocheting the shell pattern down from the double-crochet bodice, the pattern says to start with treble crochet and then change to double crochet lower down, but the picture looks like it should be the other way round. Please confirm which way round it should be.
20.06.2023 - 12:38DROPS Design answered:
Dear Rachel, you are reading the US-pattern correct? This means you work top part with double crochet (US-English terminology), then work the fan pattern over all stitches on body, first with double crochets then with treble crochets instead of double crochets to get the fan higher/longer. Happy crocheting!
20.06.2023 - 15:32Antoinette wrote:
Hoeveel toeren meoet je het achterpand in stokjes haken nadat je de schoyderdelen aaneen hebt gesloten middels de lossenketting?
25.01.2023 - 11:58DROPS Design answered:
Dag Antoinette,
Dit is heel afhankelijk van de maat die je haakt. Na toer 4 haak je verder in de hoogte tot het werk 11-12-13 (14-15) cm meet.
01.02.2023 - 21:06Antoinette wrote:
Ik ben met achterpand bedonnen. Klopt het dat de kant van de opgezette lossenstreng de bovenkant van de schouders is?
25.01.2023 - 11:41DROPS Design answered:
Dag Antoinette,
Ja, inderdaad, dat is de bovenkant van een schouder. Je haakt vanaf de schouder naar beneden.
01.02.2023 - 21:07Esther wrote:
Vraagje. Ik snap echt niet hoe ik de meerdering moet haken bij de armsgaten. De ene kant lukt wel maar als ik de andere kant haak dan meerder ik de toer erboven en niet in dezelfde toer. Ik heb het filmpje bekeken maar daar wordt ook maar een kant getoond
10.06.2020 - 11:49DROPS Design answered:
Dag Esther,
Aan de andere kant meerder je inderdaad in de toer erboven. Er komt dus een verspring in de meerderingen.
11.06.2020 - 13:33Donna wrote:
Hi! When increasing for the arm hole, I understand how to add stitches at the beginning of the row using a chain. When I get to the other end, how do I add stitches? Thanks!
03.03.2020 - 07:13DROPS Design answered:
Dear Donna, the increase on armholes and neck are worked the same way at the end of the rows (both from RS and from WS), ie to increase 1 dc, crochet at the end of the row: 1 ch + 2 ch to turn with, turn and work 1 dc in the 3rd ch from hook, work to the end of the row and repeat the inc. Happy crocheting!
03.03.2020 - 10:04Donna wrote:
This pattern is adorable! Could you please tell me how many yards or meters are needed for each size? Thanks!
01.03.2020 - 22:44DROPS Design answered:
Dear Donna, you will find the required amount of yarn for each size under header - read more here. Happy knitting!
02.03.2020 - 10:57Martine wrote:
Bonjour, au 4ème rang du point d'éventail, 4B+2ml+4B au milieu du groupe de B suiv... Il est écrit dans l'arceau d'1 ml du groupe de B qui est en réalité un arceau de 2 ml, me semble-t-il....? L'éventail étant constitué de 4B,2ml,4B...? Merci d'avance
09.02.2020 - 23:53DROPS Design answered:
Bonjour Martine, il s'agit bien de l'arceau du groupe de brides précédent (= 2 mailles en l'air effectivement, la correction a été faite, merci). Bon crochet!
10.02.2020 - 10:02Karin Andersson wrote:
Det går inte att skriva ut era mönster. Det kommer endast upp en bild på flera garnnystan.
18.01.2020 - 17:29DROPS Design answered:
Hei Karin. Når det kommer opp et bilde av flere garnnøster må du klikke på teksten der det står "Skriv ut mönster →" øverst til høyre. God Fornøyelse!
20.01.2020 - 15:00
Sweet Buttercup Vest |
|
|
|
Heklað vesti fyrir börn í sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-7 |
|
VESTI: HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. ÚTAUKNING-1 (á við um handveg og hálsmál): Ef auka á út um fleiri en 1 stuðul eru heklaðar jafn margar loftlykkjur og fjöldi stuðla sem á að auka + 2 loftlykkjur auka í lok á umferð, snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (nú hafa verið heklaðir 2 stuðlar), heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af þeim loftlykkjum sem eftir eru. Haldið síðan áfram að hekla eins og áður. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = skiptið út þriðja stuðli frá miðju að framan með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um þessa loftlykkju. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá öxl og niður, fyrsta hnappagatið á að vera 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli): STÆRÐ 1/3 MÁN: 8, 11 og 14 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 9, 12 og 15 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 9, 13 og 17 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 10, 14 og 18 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 11, 15 og 19 cm. -------------------------------------------------------- VESTI: Bakstykki og bæði framstykkin eru hekluð hvort fyrir sig ofan frá og niður að skiptingu við handveg. Stykkin eru síðan saumuð saman og fram- og bakstykki er síðan heklað til áfram fram og til baka frá miðju að framan í sólfjaðramynstri til loka. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN: Heklið 10-12-14 (16-18) LAUSAR loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 8-10-12 (14-16) stuðlar í umferð. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 2 stuðla við hnakka – sjá ÚTAUKNING-1 = 10-12-14 (16-18) stuðlar. Snúið stykkinu. Geymið stykkið og heklið vinstri öxl að aftan alveg eins. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á vinstri öxl að aftan. Heklið síðan 10-12-14 (16-18) loftlykkjur (= miðja aftan í hnakka), heklið 1 stuðul í hvern stuðul á hægri öxl að aftan. Snúið stykki. UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju aftan í hnakka = 30-36-42 (48-54) stuðlar í umferð. Haldið áfram með stuðla á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-9) cm er aukið út í lok hverrar umferðar fyrir handveg í hvorri hlið þannig – sjá ÚTAUKNING-1: 1 stuðull 1 sinni, 2 stuðlar 1 sinni og 4 stuðlar 1 sinni = 44-50-56 (62-68) stuðlar í umferð. Þegar bakstykki mælist 11-12-13 (14-15) cm (á að hafa verið heklaður 1 cm eftir síðustu útaukningu) geymið stykkið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 10-12-14 (16-18) LAUSAR loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 8-10-12 (14-16) stuðlar. Snúið stykkinu. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 2-3-2 (3-3) cm aukið út um 1 stuðul við miðju að framan fyrir hálsmál – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu í hverri umferð alls 5-5-6 (6-7) sinnum, síðan er aukið út um 6-7-7 (8-8) stuðla 1 sinni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-9) cm er aukið út fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki – munið eftir HNAPPAGAT á kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Eftir allar útaukningar eru 26-29-32 (35-38) stuðlar í umferð. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm – passið uppá að framstykkið sé jafn langt og bakstykki. Geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. ATH! Ekki hekla hnappagöt á vinstra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant með smáu spori. Saumið hliðarsauma kant í kant – nú eru 96-108-120 (132-144) stuðlar í umferð. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Haldið síðan áfram að hekla fram og til baka frá miðju að framan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt er aukið út um 8 stuðla jafnt yfir (ekki er aukið út yfir ystu 4 stuðlana í hvorri hlið við miðju að framan = kantar að framan) = 104-116-128 (140-152) stuðlar í umferð. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum (= kantur að framan), * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* þannig að það verða 30-34-38 (42-46) loftlykkjubogar og eftir eru 6 eða 7 stuðlar, heklið 2 loftlykkjur og endið með 1 stuðuli í hvern og einn af 4 síðustu stuðlum (= kantur að framan). Snúið stykkinu. Nú eru 31-35-39 (43-47) loftlykkjubogar með 4 stuðlum í hvorri hlið fyrir kant að framan. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, hoppið yfir fyrsta loftlykkjubogann, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull í næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 2 loftlykkjubogar eru eftir, heklið 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar í næsta loftlykkjubogar, hoppið yfir síðasta loftlykkjuboga og endið með 1 stuðli í hvern og einn af 4 stuðlum í kanti að framan = 15-17-19 (21-23) sólfjaðrir með 4 stuðlum í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga í stuðlahóp), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar til 1 stuðlahópur er eftir, 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í þessum stuðlahóp og endið með 1 stuðul í hvern og einn af 4 stuðlum í kanti að framan. Snúið stykkinu. Endurtakið umferð 4 þar til stykkið mælist ca 18-20-23 (23-25) cm frá öxl og niðu. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar til 1 stuðlahópur er eftir, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í þennan stuðlahóp og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í hvern og einn af þeim 4 stuðlum á kanti að framan, snúið við. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist ca 23-25-28 (30-32) cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í lokin meðfram vinstra opi með heklunál 3,5 með Baby Merino þannig: Byrjið neðst á hægra framstykki og heklið upp meðfram kanti að framan og hálsmáli að framan: * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* upp að axlasaumi, * hoppið yfir ca 2 cm, 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar í næstu lykkju, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* meðfram hnakka og fram að næsta axlasaum, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* meðfram hálsmáli að framan og meðfram kanti að framan. HANDVEGUR: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * hoppið yfir ca 2 cm, 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar í næstu lykkju, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* í kringum allan handveginn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í byrjun á umferð. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Antoinette Sluijter wrote:
Ik ben een paar x opnieuw begonnen en heb nu alle panden aan elkaar gemaakt en met de meerderingen nu 116 stokjes. Nu moet ik met de lossenbogen beginnen. Maar ik kom met geen mogelijkheid aan 34 bogen als ik doe wat in het patroon staat. Aleen maar meer. Kloppen de aantallen steken wel?
29.01.2023 - 16:59