DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Snow

Sett með prjónuðum sokkum fyrir börn og peysu með köðlum án ermasauma úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Baby 16-20
DROPS design: Mynstur nr ME-021-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára)
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Lengd á fæti: 10-11-12 (14-16) cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
PEYSA:
200-200-250 (250-300) g nr 01, natur
SOKKAR:
50-50-100 (100-100) g nr 01, natur

PEYSA:
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA NR 503: 2 st.

SOKKAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

----------------------------------------------------------
PEYSA:
Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er peysan prjónuð fram og til baka á hringprjón eftir stroffið.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 66-74-82 (90-98) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 5-5-9 (9-13) lykkjur jafnt yfir = 61-69-73 (81-85) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: 1 kantlykkja, 12-16-18 (22-24) lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur brugðnar, M.1, 2 lykkjur brugðið, M.2, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið, 12-16-18 (22-24) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja. Haldið áfram með þetta mynstur fram og til baka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermar – fitjið upp í lok hverrar umferðar í báðum hliðum: 4 lykkjur 2-2-1 (1-1) sinnum, 6 m 1-1-1 (2-1) sinnum, 8 lykkjur 0-0-1 (1-2) sinnum og 10-11-11 (14-20) lykkjur 1 sinni = 109-119-131 (157-177) lykkjur – nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið síðan áfram með mynstur og í sléttprjóni eins og áður.
Þegar stykkið mælist ca 22-24-26 (28-31) cm fækkið lykkjum í næstu umferð frá réttu: 5 lykkjur jafnt yfir M.2 og 2 lykkjur jafnt yfir hvert M.1 = 100-110-122 (148-168) lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 10-10-12 (14-16) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig.
VINSTRI ÖXL/ERMI: = 45-50-55 (67-76) lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón yfir lykkjur í M.1 og aðrar lykkjur eins og áður. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í byrjun á hverri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 41-46-51 (63-72) lykkjur á öxl/ermi. Fellið af þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm.
HÆGRI ÖXL/ERMI: = 45-50-55 (67-76) lykkjur. Prjónið og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eins og vinstri öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 24-26-29 (31-34) cm prjónið áfram í garðaprjóni yfir ystu 12-13-14 (15-16) lykkjur að hálsi (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni er fellt af fyrir 2 hnappagötum þannig (frá réttu): 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5-6-7 (8-9) lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Prjónið síðan í sléttprjóni og garðaprjóni yfir fyrstu 12-13-14 (15-16) lykkjur við háls þar til stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 66-74-82 (90-98) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18 (18-22) lykkjur jafnt yfir = 52-60-64 (72-76) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermar eins og á framstykki = 100-110-122 (148-168) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-26-29 (31-34) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónað til loka fyrir sig.
VINSTRI ÖXL/ERMI: = 42-47-52 (64-73) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsi = 41-46-51 (63-72) lykkjur á öxl/ermi. Fellið af þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm.
HÆGRI ÖXL/ERMI: = 42-47-52 (64-73) lykkjur. Prjónið og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eins og vinstri öxl/ermi = 41-46-51 (63-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm fellið af fyrstu 29-33-37 (48-56) lykkjur frá neðst á ermi og upp úr. Prjónið síðan 1½ cm í sléttprjóni og 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið yfir þær 12-13-14 (15-16) lykkjur sem eftir eru (= tölu kantur), prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur, áður en fellt er af með sléttu frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori – á hægri öxl/ermi er einungis saumað fram að tölukanti.

STROFF:
Takið upp 38-42-46 (50-54) lykkjur á prjón 3,5 neðst meðfram annarri erminni. Prjónið 2 umferðir slétt, haldið áfram með stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðin með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Fellið af þegar stroffið mælist 4 cm. Endurtakið á hinni erminni. Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSI.
Prjónið upp frá réttu ca 52 til 68 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur á bandi að framan) á prjón 3,5. Prjónið 5 umferðir slétt, fellið síðan af. Saumið tölur á öxl.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:
Lengd á fæti: 10-11-12 (14-16) cm

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
--------------------------------------------------------

SOKKUR:
Sokkurinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með Merion Extra Fine og prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið í 8-8-9 (9-10) cm. Prjónið nú 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-0-4 (2-0) lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) lykkjur. Prjónið nú 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. Haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) lykkjum á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) lykkjur eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 7-8-9 (9-10) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) lykkjur.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu lykkjur á undan 13-13-15 (15-17) lykkum á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og þær 2 fyrstu lykkjur á eftir 13-13-15 (15-17) lykkjum á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) lykkjur. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½). Setjið nú prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. þannig að það verða 13-13-15 (15-17) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti.
Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerkin – SJÁ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umferð 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 lykkjur eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 lykkja brugðin, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðin af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Karin wrote:

När jag börjar med intagningar på framstycket hur fortsätter jag då med flätorna? Förstår inte hur jag ska räkna då det blir 9 färre maskor. Alla 9 maskor ska tas in på M1 och M2. Så tacksam för svar

29.02.2024 - 18:40

DROPS Design answered:

Hej Karin, du tager først de 9 masker ind, når du ikke skal fortsætte med flätorna, lige før du lukker af :)

05.03.2024 - 11:59

country flag Silvia wrote:

Hallo, Ich habe nun einige Zentimeters des Musters gestrickt, die Zöpfe jeweils in der Hinrunde/ungeraden Zeilen, wie im Muster angegeben. Leider erscheint M1 wie geplant auf der Vorderseite (glatt rechts) aber M2 kommt eher auf der Rückseite zum Vorschein. Kann mir jemand sagen, woran das liegt und wie es richtig gehört? Danke.

09.11.2023 - 21:04

DROPS Design answered:

Liebe Silvia, die 1. Reihe (sowie alle ungerade Reihen) in beiden Diagramme ist eine HinReihe, so werden die Zöpfe in M.2 (1., 3., 5. ...Reihe) sowie in M.1 (5. Reihe) immer bei einer Hin-Reihe gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

10.11.2023 - 09:28

country flag Ruth Kankkonen wrote:

Eikö takapuolen oikeaa hihaa tarvitse pidentää, kun siinähän menee osa päällekäin kun napitetaan?

16.10.2022 - 10:34

country flag Michaela wrote:

Schade, dass Sie keine andere E-Mail-Adresse zur Verfügung stellen - dann müsste man das hier nicht öffentlich "ausfechten". Ich benötige keine Anleitung, wie man Maschen abnimmt! Für mich ist nicht nachvollziehbar, wie die Teile aufeinanderpassen sollen, wenn ich beim Vorderteil nach dem Bündchen 5 Maschen und beim Rückenteil 14 Maschen abketten soll. Aber ich gebe es jetzt auf und suche mir ein anderes Muster.

08.08.2022 - 12:56

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, damit die Bündchen nicht so eng werden, schlägt man mehr Maschen als man für das glatt rechts braucht, deshalb schlagen Sie 66-74 Maschen (1. + 2. Größe) und nach dem Bündchen 14 M abnimmt (nicht abkettet, dies wird korrigiert), so haben Sie 52-60 M = ca 26-30 cm (siehe Maßskizze). Wenn nach dem Rippenmuster-Rand abgenommen wird, kann man damit vermeiden, dass der Rand deutlich enger wird als das restliche Rumpfteil. Beim Vorderteil stricken Sie dann Zöpfte, und für Zöpfe brauchen Sie auch mehr Maschen als fürs glatt rechts, deshalb ist die Maschenanzahl beim Vorder- und Rückenteil unterschiedlich. Viel Spaß beim stricken!

08.08.2022 - 13:54

country flag Michaela wrote:

Vielen Dank für Ihre Antwort. Allerdings passt sie nicht zu meiner Frage. Laut Anleitung soll die Abnahme der 14 Maschen gleich nach dem Bündchen in der ersten Reihe mit dem Nadelwechsel erfolgen - was mir nicht richtig erscheint: 4 cm Bündchen stricken = 1 re. / 1 li. Zu Rundstricknadel Nr. 4,5, wechseln und 1 R. re. auf rechts stricken – GLEICHZEITIG gleichmässig verteilt 14-14-18 (18-22) M. abk. = 52-60-64 (72-76). 1 R. re. von links stricken und danach glatt weiter stricken.

05.08.2022 - 12:43

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, oops ja sorry, ich hatte Ihre Frage misverstanden (war schon bei den Schultern...) - am Anfang vom Rückenteil nehmen Sie 14 Maschen regelmäßig verteilt ab - hier wird es erklärt, wie man so abnimmt. viel Spaß beim stricken!

05.08.2022 - 16:18

country flag Michaela wrote:

Für das Rückenteil soll man gleich nach dem Bündchen 14 M abketten - nahezu das Dreifache zum Vorderteil. Wie soll das funktionieren, ohne dass der Pulli viel zu eng wird und die Teile aufeinander passen?

03.08.2022 - 18:15

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, bei der rechten Schulter/Ärmel Vorderteil haben Sie alle Maschen (Ärmel + Schulter mit Bündchen) gestrickt), bei der rechten Schulter/Ärmel Rückenteil werden zuerst die ersten 37 Maschen für die Ärmel abgekettet, dann über die 14 übrigen Maschen (Knopfleiste) stricken - die passen dann mit den 14 Maschen, die Sie kraus rechts bei der rechten Schulter Vorderteil gestrickt haben. Viel Spaß beim stricken!

04.08.2022 - 08:04

country flag Eugenia K wrote:

Hello, dear Drops team. The pattern is lovely but I cannot understand how the increases for the sleeves are done. The pattern says cast on at the beg of each row on sides. Does that mean RS and WS or at the beg and end of each WS row? Also, there is no tutorial on increasing on purl row (WS). Thank you in advance for your quick reply.

07.08.2021 - 09:35

DROPS Design answered:

Dear Eugenia K, you have to cast on the new stitches at the end of each row, both from RS and from WS to get both sleeves the same. Increase new stitches on each side as in this video, but increase the new stitches at the end of a row from RS and work them purl at the beg of next row and incraese at the beg of a row from WS and work them knit a the beg of next row (= stocking stitch). Happy knitting!

09.08.2021 - 08:50

country flag Fran wrote:

After the k1p1, The pattern says to reduce the number of stitches evenly and then when I go to do the cables, the number of stitches that I need to have far exceeds the stitches that I have left. For example I reduced to 69 stitches but the pattern calls for at least 74+ the pearl stitches between the cables please help

24.06.2021 - 01:51

DROPS Design answered:

Dear Fan, in the 2nd size work as follows: 1 st in garter st, 16 sts in stocking st, P2, M.1(= 6 sts), P2, M.2 (= 15 sts), P2, M.1 (= 6 sts), P2, 16 sts in stocking st and 1 st in garter st = 1+16+2+6+2+15+2+6+2+16+1=69 sts. Happy knitting!

24.06.2021 - 08:37

country flag Annette wrote:

1ribbelst, 12-16-18 (22-24) tricotst, 2 av, M.1, 2 av, M.2, 2 av, M.1, 2 av, 12-16-18 (22-24) tricotst en 1 ribbelst. Brei zo verder heen en weer op de nld in patroon. Dit is de beschrijving van het patroon. De 2 AV steken tussen m1 en m2. Wat moet ik hiervoor een de verkeerde kant breien.

18.11.2020 - 20:00

DROPS Design answered:

Dag Annette,

Deze averechte steken brei je recht op de verkeerde kant.

19.11.2020 - 10:25

country flag Pat Vaughan wrote:

I don't understand the Diagram explanations. What is M.2 & M.1 Directions say 24 Stockinette sts, P 2 M.1,P2, M.2 P2, 24 stockinette But I don't understand the M.2 & M.1 pattern blocks. Please clarify.

10.08.2020 - 22:28

DROPS Design answered:

Hi Pat, You can find patterns M.1 and M.2 at the bottom of the page. M.1 is stocking stitch with a cable, consisting og 6 stitches, M.2 has a textured pattern and cables and consists of 15 stitches. Happy knitting!

11.08.2020 - 07:13