DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Baby Squirrel

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki, íkornum og hjörtum ásamt sokkum og buxum með garðaprjóni úr DROPS Alpaca

DROPS Baby 17-18
DROPS Design: Mynstur nr Z-059-by
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mån (2-3/4) år
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Fótlengd: 10-11-12 (14-16) cm
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
PEYSA OG SOKKAR:
150-150-150 (200-200) g nr 3140, ljós bleikur
50 g í allar stærðir nr 0100, natur
50 g í allar stærðir nr 0618, beige
50 g í allar stærðir nr 2921, kirsuberjarauður
BUXUR:
100-100-150 (150-150) g nr 0100, natur

PEYSA OG SOKKAR:
DROPS SOKKARPJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 35 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA nr 523: 5-5-6 (6-6) st.

BUXUR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3 (40 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
----------------------------------------------------------
PEYSA:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Fitjið upp 152-172-188 (208-224) l á hringprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona stroff í 3 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 20-24-26 (30-32) l jafnt yfir = 132-148-162 (178-192) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16-18-21 (24-27) cm prjónið næstu umf þannig: 29-33-37 (41-44) l (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 58-66-72 (80-88) l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 29-33-37 (41-44) l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 40-44-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 3 cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 4-6-8 (10-12) l jafnt yfir = 36-38-40 (42-44) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-5. (6.-6.) hverri umf alls 7-8-9 (10-12) sinnum = 50-54-58 (62-68) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm eru felldar af 8 l mitt undir ermi (= 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 42-46-50 (54-60) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 200-224-246 (270-296) l. Prjónið 1-1-3 (7-10) umf með ljós bleikur – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 6-6-4 (4-6) l jafnt yfir = 194-218-242 (266-290) l. Prjónið síðan og fækkið l samkvæmt M.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – byrjið við ör! Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka eru 82-92-102 (112-122) l á prjóni og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl. Setjið l á þráð.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið fram og til baka á hringprjóna.
Takið upp ca 76-80-88 (100-112) l (deilanlegar með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og haldið síðan áfram þannig (séð frá réttu): 1 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 l garðaprjón. Þegar stroffið mælist 2½ cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur nema eftir 1 cm er fellt af fyrir 4-4-5 (5-5) hnappagöt jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá kanti að ofan og það neðra ca 2 cm frá kanti að neðan. 1 HNAPPAGAT = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l í næstu umf.

HÁLSMÁL:
Takið upp l með ljós bleikur: 6 l yfir hægri kant að framan, síðan eru l prjónaðar af þræði inn í umf JAFNFRAMT er fækkað um 10-16-22 (28-34) l jafnt yfir. Takið síðan upp 6 l yfir vinstri kant að framan = 84-88-92 (96-100) l. Prjónið 4 umf garðaprjón og haldið síðan áfram þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram – JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin á kanti að framan. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 2 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í.
----------------------------------------------------------

SOKKUR

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
----------------------------------------------------------
SOKKUR:

Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með ljós bleikur. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 5-5-6 (6-7) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Haldið síðan eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni (fyrir hæl) og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (ofan á fæti). Prjónið sléttprjón í 3-3½-4 (4-4½) cm yfir hæl-l og setjið síðan eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Takið upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hæl-l og setjið til baka l af þræði á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l ofan á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman og fækkað er um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l á ofan á fæti með því að prjóna 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l. Þegar sokkurinn mælist 6-7-8 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl er prjónað M.2. Setjið síðan prjónamerki í hvora hlið á sokknum (þ.e.a.s. þannig að það verða 18-18-18 (22-22) l ofan á fæti og 18-18-18 (20-20) l undir fæti. Haldið áfram með natur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk alveg eins.
----------------------------------------------------------
BUXUR:

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 l sl þar sem prjónamerki er staðsett fyrir miðju að aftan.
Aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknu l eru prjónaðar í framhaldinu inn í stroff.

ÚRTAKA:
Fækkið l hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan.
Fækkið l á UNDAN prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið l á EFTIR prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-60-64 (68-72) l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið þannig: 1 l sl, * 2 l br/2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l br og 1 l sl.
Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff.
Endurtakið útaukningu í 5.-6.-8. (9.-12.) hverri umf alls 8 sinnum = 72-76-80 (84-88) l.
Þegar skálmin mælist 16-20-23 (25-33) cm skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er áfram fram og til baka – JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið fyrir saum = 74-78-82 (86-90) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (27-35) cm fellið af 5 l í hvorri hlið (= kantlykkja, 1 l sl, 2 l br og 1 l sl) = 64-68-72 (76-80) l. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm alveg eins.

BUXUR:
Setjið skálmar á sama hringprjóna nr 3 = 128-136-144 (152-160) l. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og eitt prjónamerki við miðju að aftan (bæði prjónamerki eiga að sitja mitt á milli 2 l sl). Haldið áfram með stroff = 2 l sl/2 l br – JAFNFRAMT er aukið út að aftan og l fækkað að framan þannig:
ÚTAUKNING AÐ AFTAN: Aukið út um 2 l við miðju að aftan – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf alls 4 sinnum.
ÚRTAKA AÐ FRAMAN: Fækkið um 2 l að framan – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 8 sinnum.
Eftir allar útaukningar og úrtöku eru 120-128-136 (144-152) l á prjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 38-42-47 (52-60) cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman efst að innanvörðu á hvorri skálm innan við kantlykkju. Saumið síðan saman op í klofi – framstykki að bakstykki.

Mynstur

symbols = ljós bleikur
symbols = beige
symbols = kirsuberjarauður
symbols = natur
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

b17-18 Baby Squirrel

Insa, United States

Squirrel Cardigan

Eleonore, Sweden

Little squirrels

Ieva, Lithuania

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Sabine Chennault wrote:

Die Farbe 2921 Himbeer gibt es nicht mehr für Alpaca. Es wäre schön wenn die Anleitungen durch ein update gehen damit man die richtige Wolle bestellen kann.

13.03.2024 - 19:31

country flag Kern Brigitte wrote:

Gilt die angegebene Maschen- bzw. Reihenzahl für eine gewaschene oder ungewaschene Maschenprobe?

15.12.2023 - 09:56

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, die Maschenprobe sollte gleich vor/nach Waschen sein, sollten Sie einen Unterschied haben, dann Nadelgröße so anpassen. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2023 - 15:30

country flag Warner Driggers wrote:

Hi!

27.10.2022 - 23:27

country flag Milena wrote:

Buongiorno, non credo che le foto e i modelli corrispondano: per la giacca il disegno rosso è proprio diverso dal modello e per le calze quello del marrone/beige. C'é un'errata corrige?

05.11.2021 - 09:58

DROPS Design answered:

Buonasera Milena, non ci sono correzioni: il motivo con gli scoiattoli nella foto è quello riportato nel diagramma. Buon lavoro!

10.11.2021 - 22:56

country flag Stauffer wrote:

Ich habe gerade die Maschen für die linke Blende aufgefasst und 66 Ma. statt 88 Ma. erreicht durch Auffassen eines Randmaschengliedes. Woher nehme ich die fehlenden 22 Ma.? Ansonsten ist die Anleitung top! Vielen Dank für Ihre Antwort im Voraus. Freundliche Grüße

03.11.2021 - 11:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stauffer, haben Sie genügend Maschen aufgeffasst? In der Regel wird es ca 3 Maschen auf 4 Reihen aufgefasst (siehe Video), dh bei der 3. Größe haben Sie ca 34 cm = ca 119 Reihen am Vorderteil, so bekommt man die 88 M. Wenn Sie diese Anzahl nicht bekommen, können Sie Maschen öfter auffassen, damit die Blende die Jacke in der Höhe nicht verengt. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2021 - 13:22

country flag Cile wrote:

Onder het kopje Hals staat een foutje. Er staat: Tegelijkertijd 0-16-22 ....... Dat moet zijn: Tegelijkertijd 10-16-22 ......

16.09.2020 - 21:44

country flag Elisabeth wrote:

Hallo, sind bei dem Muster nur die Hinreihen dargestellt und die Rückriehen, wie es dann erscheint?

18.02.2019 - 09:37

DROPS Design answered:

Liebe Elisabeth, die Diagramme zeigen alle Reihen, dh die Hin sowie die Rückreihen. Lesen Sie die Hinreihen rechts nach links (vom unteren Ecke an der rechten Seite) und die Rückreihe links nach rechts. Viel Spaß beim stricken!

18.02.2019 - 10:52

country flag Anneli wrote:

Hei Lurer bare på m1-når jeg skal strikke siste del av mønsteret- beige og rosa- skal jeg da på rad1strikke 2beige og 4 rosa? Når jeg ser på mønsteret skal jeg «regne med begge kolonnene»når jeg skal strikke mønsteret?altså to beige-4rosa-2beige-4rosa osv

23.11.2018 - 06:26

DROPS Design answered:

Hei Anneli. Ja det stemmer, du strikker 1 beige, 4 rosa, 2 beige, 4 rosa, 2 beige, 4 rosa osv. og avslutter med 1 beige. God fornøyelse

23.11.2018 - 08:22

country flag Signe Råheim wrote:

Hvor mange cm skal man strikke før man begynner på mønsteret på jakka, det pleier å stå i oppskrifta, nen mangler i denne.

12.08.2018 - 18:43

DROPS Design answered:

Hei Signe. Du begynner å strikke mønster på bærestykke, etter at ermer og bol er satt sammen på pinnen - da måler arbeidet ca 16-18-21 (24-27) cm. Du strikker 1-1-3 (7-10) p med lys rosa – SAMTIDIG på 1.p felles det 6-6-4 (4-6) m jevnt fordelt. Så strikkes og felles det etter mønster M.1. God fornøyelse.

17.08.2018 - 11:00

country flag Signe Råheim wrote:

Hvor mange cm skal man strikke før man begynner på mønsteret. Det står ingenting om det i den norske oppskrifta.

12.08.2018 - 18:40