DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 17-14
DROPS design: Mynstur nr Z-063-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Höfuðmál á húfu:
40/42 - 44/46 - 46/48 (48/50 - 50/52) cm
Lengd fótar: 10 – 11 - 12 (14 - 16) cm

Allt settið:
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-200 (250-250) gr nr 0100, natur
50 gr í allar stærðir nr 3720, bleikur
50 gr í allar stærðir nr 3800, fjólublár
50 gr í allar stærðir nr 7815, grænn/turkos

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5.
DROPS PERLUTALA NR 523: 5-5-6 (6-6) st.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3 – Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. M.2 er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um peysu):
Fækkið um 1 lykkju til skiptis vinstra og hægra megin við öll prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti er þetta gert vinstra megin við öll prjónamerki og í næsta skipti er þetta gert hægra megin við öll prjónamerki o.s.frv.

HEKLAÐUR PICOT KANTUR:
Heklið með fjólublár og heklunál 2,5. Heklað er í bleika uppábrotið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu loftlykkju (= 1 picot), hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*.
----------------------------------------------------------

PEYSA:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.
Fitjið upp 132-148-164 (176-192) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með bleikur. Prjónið 1 umferð slétt (umferð 1 = rétta).
Skiptið yfir í natur, prjónið 7 umferðir í sléttprjóni (= umferð 1 = ranga), skiptið yfir í bleikur, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 7 umferðir í sléttprjóni með natur, klippið frá (í næsta skipti þegar prjónað er með natur á að byrja í hinni hliðinni). Bleiki þráðurinn hangir nú á hægri hlið, færið lykkjurnar til baka til hægri á prjóninum og prjónið 2 umferðir slétt með bleikur. Haldið áfram með M.1 og natur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-27) cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu af M.1 – prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 29-33-37 (40-44) lykkjur slétt (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 58-66-74 (80-88) lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 29-33-37 (40-44) lykkjur slétt (= vinstra framstykki). Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-38-40 (42-44) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með bleikur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan þannig: 7 umferðir slétt með natur, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið með bleikur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT – 7 umferðir slétt með natur, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið með bleikur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan M.1 með natur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu í 6.-5.-5. (6.-6.) hverri umferð alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 15-16-18 (22-26) cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu af M.1 – prjónið 1 umferð slétt. Í lok þessara umferðar eru felldar af 8 lykkjur mitt undir ermi = 40-44-50 (54-60) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 196-220-248 (268-296) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með natur – JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-7 (3-7) lykkjur jafnt yfir = 193-217-241 (265-289) lykkjur, prjónið síðan M.2 með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið – JAFNFRAMT á undan síðustu umferð á M.2 eru sett 15 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): Fyrsta eftir 13-18-16 (21-19) lykkjur, síðan á að vera 12-13-15 (16-18) lykkjur á milli hverra prjónamerkja, þá koma til með að vera 12-17-15 (20-18) lykkjur eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð (= síðasta umferð af M.2) er fækkað um 1 lykkju hægra megin við öll prjónamerkin með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt. Prjónið síðan M.3 – JAFNFRAMT er haldið áfram að fækka lykkjum í 4. hverri umferð – sjá ÚRTAKA 6-7-8 (9-10) sinnum til viðbótar = 88-97-106 (115-124) lykkjur. Prjónið M.3 áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl – stillið af eftir 3. umferð í mynstureiningu. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-66 (72-78) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Brjótið uppá kantinn neðst á peysunni og ermar tvöfalt að röngu og saumið niður með bleikur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónað er fram og til baka á hringprjón.
Prjónið upp ca 65-70-80 (90-100) lykkjur meðfram vinstri kanti að framan innan við 1 kantlykkju á hringprjón 2,5 með natur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 6 umferðir sléttprjón með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir í bleikur, prjónið 2 umferðir slétt (= uppábrot), skiptið yfir í natur, prjónið 7 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið (= innanverðu á kanti), fellið af með sléttu frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður með natur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur en eftir 2 umferðir í sléttprjóni með natur er fellt af fyrir 5-5-6 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera 2 lykkjum ofan frá og neðsta ca 3 cm frá neðri kanti.
1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar í næstu umferð. Gerið einnig hnappagöt á sama stað á kanti eftir 3 umferðir slétt.

KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið upp með natur: 5 lykkjur yfir hægri kant að framan, prjónið síðan inn lykkjur frá þræði og prjónið upp 5 lykkjur yfir vinstri kant að framan = ca 64-70-76 (82-88) lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu og 4 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið, skiptið yfir í bleikur, prjónið 2 umferðir slétt (= uppábrot), skiptið yfir í natur og prjónið 5 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið áður en fellt er af með sléttu frá röngu.
Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður með natur. Saumið tölur í.

HEKLAÐUR KANTUR: Heklið PICOT KANTUR neðst á fram- og bakstykki – sjá útskýringu að ofan – í kringum ermar og í kringum hálsmál.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið laust upp 40-40-40 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með natur. Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= innanverðu á kanti), skiptið yfir í bleikur, prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið (= uppábrot), skiptið til baka yfir í natur og prjónið 4 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan M.2 – byrjið efst til hægri í mynsturteikningu og prjónið niður á við (þannig að blómið vísi upp á sokknum). Eftir M.2 er sokkurinn prjónaður til loka með natur, prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 40-44-44 (48-52) lykkjur, prjónið síðan 2 cm stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42-46) lykkjur. Í næstu umferð eru fyrstu 12-14-14 (15-17) lykkjur settar á þráð, haldið eftir næstu 10-10-10 (12-12) lykkjum á prjóni og setjið síðustu 12-14-14 (15-17) lykkjur á þráð. Eftir það er M.3 prjónað fram og til baka yfir lykkjur á prjóni í 3½-4-4½ (6-7) cm (= efra stykki). Takið upp 9-10-12 (15-19) lykkjur hvoru megin við efra stykkið og setjið til baka lykkjur af þráðum á prjóninn = 52-58-62 (72-84) lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka frá miðju að aftan – JAFNFRAMT eftir 1½-2½-3 (3-4) cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið saman 2 lykkjur slétt í byrjun og lok umferðar og hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar, endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af.

Prjónið annan sokk alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir fæti og upp að gataumferð mitt að aftan – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur.
Brjótið uppá kantinn efst á sokknum að röngu og saumið niður með natur. Heklið PICOT KANTUR efst í hring á sokk – sjá útskýringu að ofan!

SNÚRA:
Heklið með heklunál 2,5 með 2 þráðum bleikur loftlykkju snúru ca 50 cm. Þræðið snúruna í gataumferðina á sokknum.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.
Fitjið laust upp 81-89-97 (105-105) lykkjur á hringprjón 2,5 með natur. Prjónið 6 umferðir sléttprjón (umferð 1 = rétta), skiptið yfir í bleikur og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið til baka yfir í natur og prjónið 6 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan M.2 með 1 kantlykkju í hvorri hlið – byrjið efst til hægri í mynsturteikningu og prjónið niður á við – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju mitt í stykki með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt = 80-88-96 (104-104) lykkjur. Haldið áfram með M.1 – byrjið í 5. umferð í mynsturteikningu þannig að það verða einungis 2 umferðir í sléttprjóni með natur á undan 1 umferð brugðið. Þegar stykkið mælist 12-13-14 (15-16) cm fellið af 4-5-6 (4-4) lykkjur í hvorri hlið = 72-78-84 (96-96) lykkjur. Setjið síðan 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta eftir 1 lykkju, næstu 5 með 12-13-14 (16-16) lykkju millibili, þá eru 11-12-13 (15-15) lykkjur eftir síðustu lykkju. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki, endurtakið úrtöku í hverri umferð frá réttu þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið síðan saman lykkjur 2 og 2 og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið að og notið þráðinn til að sauma húfuna saman við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana, það á einnig að sauma í 4-5-6 (4-4) lykkjur sem voru fyrst felldar af.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá kantinn fram að röngu og saumið niður með natur.

FALDUR FYRIR SNÚRU:
Prjónið upp með natur á hringprjón 2,5 ca 66 til 80 lykkjur innan við 1 kantlykkju neðst á húfu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir í bleikur, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot), prjónið síðan 5 umferðir í sléttprjóni með natur, fellið af með sléttu frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður.
Heklið PICOT KANTUR í kringum húfu að framan – sjá útskýringu að ofan.

SNÚRA:
Heklið með heklunál 2,5 með 2 þráðum bleikur loftlykkju snúru ca 70 cm. Þræðið snúruna í faldinn fyrir snúru neðst á húfu

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
BERUSTYKKI:...Prjónið síðan M.3 – JAFNFRAMT er haldið áfram að fækka lykkjum í 4. hverri umferð – sjá ÚRTAKA 6-7-8 (9-10) sinnum til viðbótar = 88-97-106 (115-124) lykkjur.

Mynstur

symbols = natur: slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = bleikur
symbols = grænn/turkos
symbols = fjólblár
symbols = natur: slétt frá röngu, brugðið frá réttu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Catherine wrote:

Ich habe bereits ca 15 cm der Jacke gestrickt, aber der untere Rand rollt sich fest ein. Wird die angehäklte Borde schwer genug sein, um die Arbeit wieder zu glätten oder habe ich etwas falsch gemacht?

26.09.2023 - 13:35

DROPS Design answered:

Liebe Catherine, Sie können am Ende die Jacke mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!

26.09.2023 - 13:43

country flag Hanni wrote:

Wann beginnt das Diagramm bei dieser Jacke

03.04.2022 - 16:20

DROPS Design answered:

Liebe Hanni, M.1 stricken Sie am Anfang Rumpfteil und Ärmel, M.2 stricken Sie bei der Passe und M.3 nach M.2. Viel Spaß beim stricken!

04.04.2022 - 10:00

country flag Hélène wrote:

Merci pour vos explications. Bonne fin de semaine

25.02.2022 - 21:05

country flag Hélène wrote:

Bonjour. J’ai encore besoin de votre aide. Je tricoté le gilet taille 6/9. J’arrive à 30 cm de hauteur totale mais il me reste encore beaucoup trop de mailles, (139) j’ai pourtant bien respecté les diminutions indiquées soit , 220 m puis 217 m, puis 1 maille avt les 15 marqueurs et 7 mailles tous les 4 rangs. Merci de votre aide.

19.02.2022 - 17:09

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, vous devez diminuer à chaque fois aux marqueurs, autrement dit, vous avez 15 marqueurs et diminuez encore 7 fois (= 8 fois au total, une correction a été demandée), et avez ainsi: 217 - (15x8)=97 mailles. Bon tricot!

21.02.2022 - 09:33

country flag Hélène wrote:

Merci pour ces précisions et la rapidité de vos réponses. Bon après-midi.

01.02.2022 - 16:16

country flag Hélène wrote:

Je parlais également du premier rang tout de suite après avoir monté les mailles, qui est indiqué envers., contrairement au dos. Merci beaucoup .

01.02.2022 - 12:07

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, tout à fait, mais le dos/devants se tricotent en rangs, on tricote 2 rangs endroit en violet (= 1 côte mousse), pour les manches, on tricote en rond = 1 côte mousse se tricote 1 tour endroit, 1 tour envers. Bonne continuation!

01.02.2022 - 16:42

country flag Hélène wrote:

Plus précisément de commencer par un rang envers violet, puis 7 rangs endroit écru, puis à nouveau 1 rg endroit violet puis 1 rang envers.

01.02.2022 - 11:23

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, ah j'étais plus loin dans les explications, désolée: ce rang sur l'envers sert de rang de cassure pour permettre de bien plier l'ouvrage en 2 - comme dans cette vidéo, sauf que vous avez 2 couleurs ici: 7 tours endroit écru, 1 tour end violet, 1 tour env violet (= rang de cassure), et 7 tours endroit écru. Puis encore 1 tour end + 1 tour env en Violet (donc 2 côtes mousse au total en bas des manches). Bon tricot!

01.02.2022 - 11:52

country flag Hélène wrote:

Bonjour. Je ne comprends pas pourquoi il est indiqué d'exécuter des rangs envers pour les manches alors que le tricot se fait en rond sur l’endroit . Pour obtenir le même résultat que pour le dos et les devants, ne faut-il pas tricoter des rangs endroit . Merci de votre réponse. Cordialement. Hélène

01.02.2022 - 11:15

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, le bas du gilet et les manches se tricotent de la même façon en suivant M.1, autrement dit vous répétez des "rayures" de 5 rangs jersey endroit, 1 rang jersey envers (autrement dit, tous les 6 rangs, vous tricotez à l'endroit sur l'envers pour le dos/les devants, et pour les manches, vous tricoterez à l'envers sur l'endroit pour former le même effet). Bon tricot!

01.02.2022 - 11:48

country flag Emilie wrote:

Bonjour sur l'image les couleurs sur les photos et les numeros associés aux couleurs indiquées dans le patron ne semble pas être les bonnes? Pouvez-vous m'indiquer qu'elles sont les couleurs utilisées?

11.01.2022 - 02:09

DROPS Design answered:

Bonjour Emilie, faites confiance au numéro des couleurs indiquées, les nuanciers évoluent avec le temps et les noms des couleurs sont parfois modifiés, mais les numéros restent les bons. Bon tricot!

11.01.2022 - 09:15

country flag Sigurbjörg Björnsdóttir wrote:

Hvenar á að byrja á M1 munstrinu? stendur haldið áfram að með munstur M1 eftir 7 umfer ðir í peysu en ekki sagt hvenar á að byrja ?

27.08.2021 - 19:18

DROPS Design answered:

Blessuð Sigurbjörg. Eftir uppfit með bleikur er prjónuð 1 umferð slétt síðan er skipt yfir í natur og prjónaðar 7 umferðir í sléttprjóni, síðan er skipt aftur yfir í bleikur og prjónuð 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (uppábrot). Prjónaðar eru 7 umferðir í sléttprjóni með natur (lykkjurnar færðar til eins og segir í uppskrift). Prjónið 2 umferðir slétt með bleikur og síðan á að prjóna mynstur M.1 með natur. Gangi þér vel.

30.08.2021 - 10:51