Roly Poly |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn, buxum, húfu og sokkum úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 18-14 |
||||||||||||||||||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. Eitt hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu lykkju við miðju að framan og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í næstu umferð. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 4, 9, 14 og 19 cm STÆRÐ 6/9 mán: 4, 10, 15 og 21 cm STÆRÐ 12/18 mán: 4, 9, 14, 19 og 24 cm STÆRÐ 2 ára: 4, 10, 16, 22 og 28 cm STÆRÐ 3/4 ára: 5, 12, 18, 25 og 31 cm ATH: Fellið einnig af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsi. ÚRTAKA (á við um buxur): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki að framan og að aftan. Þegar 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki er prjónað þannig: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Fitjið laust upp 131-148-165 (182-199) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 3 umferðir slétt (umferð 1 = rétta). Næsta umferð er prjónuð þannig (frá röngu): 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja sléttprjón, M.1 7-8-9 (10-11) sinnum, 1 lykkja sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til M.1 hefur verið prjónað 3-3-4 (4-5) sinnum á hæðina – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fellt af fyrir hnappagati meðfram hægri kant að framan – sjá HNAPPAGAT að ofan! Prjónið síðan M.2 með 1 lykkju sléttprjón og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar M.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 8-8-9 (9-10) cm. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-22 (25-28) cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 32-36-41 (45-49) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 55-64-71 (80-89) lykkjur (= bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 32-36-41 (45-49) lykkjur (= vinstra framstykki). Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 32-36-41 (45-49) lykkjur. Fækkið lykkjum fyrir handvegi í byrjun á umferð frá hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 4-4-4 (4-5) sinnum = 26-30-35 (39-42) lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 24-26-29 (33-37) cm setjið fyrstu 9-10-13 (14-14) lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir kraga. Fækkið síðan lykkjum við háls í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 10-13-15 (18-21) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-42) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra nema gagnstætt – munið eftir hnappagötum á kanti að framan. BAKSTYKKI: = 55-64-71 (80-89) lykkjur. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 43-52-59 (68-75) lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-41) cm fellið af miðju 19-22-25 (28-29) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hálsi = 10-13-15 (18-21) lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-42) cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón. Fitjið upp 36-38-42 (44-46) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjóni – setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um eina lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 6.-5.-5. (6.-6.) hverri umferð alls 8-10-10 (12-13) sinnum = 52-58-62 (68-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19 (24-27) cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónað er til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið. Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3-3-4 (4-4) sinnum. Fækkið síðan um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-24 (29-32) cm og að lokum eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af. Stykkið mælist ca 22-23-25 (30-33) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum og saumið ermar í. KANTUR Í HÁLSI OG KRAGI: Takið upp ca 65 til 85 lykkjur í kringum háls á stuttan hringprjón 2,5 (meðtaldar lykkjur af þræði frá framstykki). Prjónið garðaprjón fram og til baka frá miðju að framan – JAFNFRAMT eftir 2 umferðir er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin í kanti að framan. Prjónið 2 umferðir til viðbótar, í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út jafnt yfir til 75-80-85 (90-95) lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna garðaprjón. Þegar kraginn mælist 4-4-5 (5-6) cm fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 1 lykkja 3 sinnum og 2 lykkjur 1 sinni. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- BUXUR: Stykkið er prjónað neðan frá og upp í hring á sokkaprjóna og hringprjón. SKÁLM: Fitjið laust upp 51-68-68 (85-85) lykkjur með Alpaca á sokkaprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram með M.1 3-3-4 (4-5) sinnum á hæðina, prjónið síðan M.2. Stykkið mælist nú ca 8-8-9 (9-10) cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar (= innan á skálm), haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð – 4.-4. (6.-.6) hverri umferð alls 12-9-13 (10-14) sinnum = 75-86-94 (105-113) lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm er skálmin prjónuð áfram fram og til baka frá prjónamerki (þetta er gert svo að það verði einfaldara að setja skálmarnar á sama hringprjón). Fitjið upp eina nýja lykkju í hvorri hlið til að sauma í. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (27-34) cm fellið af auka kantlykkju í hvorri hlið og stykkið er lagt til hliðar. Prjónið hina skálmina alveg eins. BUXUR: Setjið inn skálmarnar á sama hringprjón 2,5 = 150-172-188 (210-226) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og eitt prjónamerki við miðju að aftan. Haldið síðan áfram að prjóna sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð: 5-6-6 (7-7) sinnum = 130-148-164 (182-198) lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-39-47 (51-59) cm prjónið upphækkun að aftan þannig – byrjið við prjónamerki við miðju að aftan: Prjónið 10 lykkjur, snúið stykkinu (til að koma í veg fyrir göt er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert er á þræði). Prjónið 20 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram að prjóna 10 lykkjur fleiri í hvert skipti áður en snúið er við, 8-10-12 (14-16) sinnum til viðbótar. Prjónið síðan 1 umferð hringinn yfir allar lykkjur jafnframt er fækkað um 20-22-24 (26-26) lykkjur jafnt yfir = 110-126-140 (156-172) lykkjur. Skiptið nú stykkinu í hliðum. Fram- og bakstykki er nú prjónað til oka fyrir sig. Setjið 55-63-70 (78-86) lykkjur fyrir bakstykki á band. FRAMSTYKKI: = 55-63-70 (78-86) lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið í garðaprjóni mælist 6-7-7 (8-8) cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum þannig: Prjónið 9-11-13 (15-18) lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 33-37-40 (44-46) lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 9-11-13 (15-18) lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Haldið nú áfram að prjóna garðaprjón þar til einingin í garðaprjóni mælist 8-9-9 (10-10) cm (alls mælist stykkið 40-48-56 (61-69) cm, fellið af. BAKSTYKKI: = 55-63-70 (78-86) lykkjur. Prjónið garðaprjón í 8-9-9 (10-10) cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 6-8-10 (12-15) lykkjur, prjónið 8 lykkjur, fellið af 27-31-34 (38-40) lykkjur, prjónið 8 lykkjur og fellið af 6-8-10 (12-15) lykkjur. Prjónið síðan axlabönd yfir 8 lykkjur sem ekki voru felldar af. Axlaböndin eru prjónuð í garðaprjóni þar til þau mælast 22-24-26 (28-30) cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op efst á innan verðu á skálm innan við kantlykkju. Saumið saman einingar með garðaprjóni í hliðum – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölu í hvert axlaband. ------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón! Fitjið laust upp 89-93-106 (108-112) lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-3-1 (2-4) lykkjur sléttprjón, M.1 yfir næstu 85-85-102 (102-102) lykkjur, 1-3-1 (2-4) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til M.1 hefur verið prjónað 5-6-7 (8-9) sinnum á hæðina og prjónið síðan M.2 með 1 kantlykkju og 1-3-1 (2-4) lykkjur sléttprjón í hvorri hlið. Eftir M.2 mælist stykkið ca 10-11-12 (13-14) cm, haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til 88-94-102 (108-114) lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-13-14 (15-16) cm fellið af 5-5-6 (6-6) lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. fellið af í byrjun á 2 næstu umferðum) = 78-84-90 (96-102) lykkjur. Setjið síðan 6 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): Fyrsta eftir 1 lykkju, næstu 5 með 13-14-15 (16-17) lykkja millibili, nú eru 12-13-14 (15-16) lykkjur á eftir síðasta prjónamerki. Haldið áfram í garðaprjóni – JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 lykkjur slétt saman á eftir hverju prjónamerki í annarri hverri umferð (frá réttu) þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið síðan saman lykkjur 2 og 2 og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og notið þráðinn til að sauma húfuna saman við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana (það á einnig að sauma í 5-5-6 (6-6) sléttar lykkjur sem voru felldar af fyrst). FALDUR FYRIR SNÚRU: Takið upp með Alpaca á hringprjón 2,5 ca 68 til 84 lykkjur (deilanlegt með 4) innan við kantlykkju meðfram kanti neðst á húfu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu, næsta umferð er prjónuð þannig (frá röngu): 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, þær eru prjónaðar slétt. Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. SNÚRA: Klippið þrjá þræði ca 2 metra, tvinnið þá saman vel, leggið snúruna saman tvöfalda þannig að hún tvinni sig aftur saman einu sinni til viðbótar, hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúrunni upp og niður í gataröð í fald fyrir snúru. ------------------------------------------------------- SOKKUR: Fótlengd: 10-11-12 (14-16) cm ------------------------------------------------------- SOKKUR: Sokkurinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna! Fitjið laust upp 51-51-51 (51-68) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferði GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan M.1 3-4-4 (5-5) sinnum á hæð. Stykkið mælist nú ca 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 40-44-48 (52-56) lykkjur. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið í 2 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Í næstu umferð eru settar fyrstu 15-17-18 (20-21) lykkjur á þráð, haldið eftir 10-10-12 (12-14) lykkjur á prjóni og setjið síðustu 15-17-18 (20-21) lykkjur á þráð. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka í 3½-4-5 (6-7) cm (= efra stykki). Takið upp 9-11-13 (15-18) lykkjur í báðum hliðum á efra stykki og setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 58-66-74 (82-92) lykkjur. Prjónið áfram í garðaprjóni fram og til baka frá miðju að aftan. JAFNFRAMT eftir 2-2½-3 (3½-4) cm, fækkið lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman í byrjun og lok umferðar jafnframt hvoru megin við 2 miðju lykkjur, endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til mynstureiningin í garðaprjóni mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af og saumið saman saum undir fæti og upp að gataumferð við miðju að aftan. Saumið yst í ystu lykkju svo að saumurinn verði ekki of þykkur. SNÚRA: Klippið 3 þræði ca 1 metra, tvinnið þá vel saman, leggið snúruna saman tvöfalda svo að þeir tvinni sig aftur saman, hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á sokk. Prjónið annan sokk alveg eins. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (57)
Dorothee Wilms wrote:
Auch eine Frage zu der Erhöhung in der Hose: In Gr. 50/56 soll man die Wende-Geschichte 8x wiederholen. Heißt das, wenn ich 80 M auf der Nadel habe und ja zurück links gestrickt habe, dass ich dann nochmal wende (= 8 Wendungen) um wieder rechts zu stricken und dann eine Runde über alle Maschen stricke? Oder stricke ich die Runde über alle Maschen links?
10.09.2021 - 16:19DROPS Design answered:
Liebe Frau Wilms, die 8. Reihe/Wendung wird eine Rückreihe über 80 Maschen, nach dieser Reihe wenden Sie und stricken Sie bis hinten in der Mitte (Hin-Reihe), und jetzt 1 Runde über alle Maschen und gleichtzeitig nehmen Sie regelmäßig verteilt zu. und dann die Arbeit teilen und jedes Teil separat stricken. Viel Spaß beim stricken!
13.09.2021 - 08:12Angelique wrote:
Hallo, ich verstehe das mit der Erhöhung bei der Hose nicht so ganz. Da steht 10M hin, Arbeit drehen, dann 20M zurück. Dann jedes mal 10M mehr. Heißt das dann als nächstes 20M hin und 30M zurück, dann weiter 30M und 40M zurück. Oder erhöht man immer nur die Hinreihe um 10M und strickt immer nur 20M zurück ?
27.08.2021 - 11:54DROPS Design answered:
Liebe Angelique, bei der 1. Reihe stricken Sie 10 M, wenden und 20 M stricken (= 10 M beidseitig von der Markierung in der Mitte Hinten), wenden und 30 M stricken, wenden und 40 M stricken (= je 20 M beidseitig von der Markierung in der Mitte hinten) und sow weiter stricken mit immer 10 M mehr am Ende jeder Hin- + jeder Rückreihe = 50 M Hin + 50 M Rück = 30 M beidseitig von der Markierung, usw. Kann das Ihnen helfen?
27.08.2021 - 12:00Ilona Autio wrote:
Jag tror det är ett fel i beskrivningen för hättan: "Lägg löst upp 89-93-106 (108-112) m på rundst nr 2,5 med Alpaca. Sticka 4 v rätst. Nästa v stickas så här från avigsidan. Det skall nog vara 3 v rätst istället för 4v, om det skall vara likadant som koftan, samt att man inte hamnar på fel sida med alla följande varv.
07.06.2020 - 11:32Janne wrote:
Vedr. Kysen Stadig i tvivl hvordan den skal sys sammen bagpå. Har I en video , der viser det? I skriver i opskriften, at sluttråden skal bruges til at sy midt bagpå, men jeg har jo 2 sider, der skal syes til noget?
12.09.2019 - 15:30DROPS Design answered:
Hej Janne, det er de 2 sider midt bagpå som skal syes sammen. Vi har desværre ingen video på denne kyse :)
12.09.2019 - 15:42Janne wrote:
Strikket kyse til denne opskrift, men svært med at sy den sammen bagtil. Indtagning ved de 6 mærker: er det på hver retpind eller hver anden? Hvordan skal sammensyningen være ?
12.09.2019 - 08:13DROPS Design answered:
Hej Janne, indtagningen ved mærkerne sker på hver pind fra retsiden og altså på hver 2.pind. God fornøjelse!
12.09.2019 - 13:28Beate Hüttig wrote:
Hallo, Wie werden die 12 Rest-Maschen der Mütze zusammengestrickt? 2x.seht da? "x je 6 Maschen? aber wie wird es gemacht?
22.07.2019 - 17:12DROPS Design answered:
Liebe Frau Hüttig, die restlichen Maschen stricken Sie paarweise rechts zusammen, d.h. stets 2 Maschen rechts zusammenstricken, sodass noch 6 Maschen übrig bleiben. Die entsprechende Stelle wurde nun in der Anleitung etwas eindeutiger formuliert. :-)
22.07.2019 - 23:03Beate Hüttig wrote:
Ich verstehe die Anleitung der Mütze ab Ende M2 nicht. Können Sie es bitte genauer erklären? Die Maschen sind auf Rundstricknadel. Es wird ja abgenommen? Dazu wäre ein Video hilfreich.
22.07.2019 - 14:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Hüttig, die Anleitung wurde etwas umformuliert, hoffentlich ist es nun deutlicher. Gutes Gelingen weiterhin!
22.07.2019 - 23:09Beate Hüttig wrote:
Ich verstehe den Tunnel an der Mütze nicht.Was heisst 1 M re auf links und 1 M re auf rechts stricken?
21.07.2019 - 23:15DROPS Design answered:
Liebe Frau Hüttig, die Anleitung wurde an dieser Stelle sprachlich überarbeitet. Es bedeutet: 1 Rück-Reihe rechts und 1 Hin-Reihe rechts. Viel Spaß beim Weiterarbeiten!
22.07.2019 - 07:41Beate Hüttig wrote:
Wie kann ich Die Anleitung verkleinern? Nach Probe wird sie viel zu gross. Ich habe nun mit weniger Maschen gestrickt -34 m weniger. Wie muss ich die Abnahmen An Arm und Ärmel anpassen? MfG Beate
13.07.2019 - 10:44DROPS Design answered:
Liebe Frau Hüttig, hier lesen Sie mehr über Maschenprobe, am besten die Nadelgröße anpassen, damit die Maschenprobe stimmt, so bekommen Sie auch die richtigen Massen wie in der Skizze. Viel Spaß beim stricken!
15.07.2019 - 11:52Beate Hüttig wrote:
Ich komme mit den Noppen nicht klar. im Video wird es anders gezeigt wie in der Anleitung. Muss gewendet werden,nachdem man die 4 M rausgestrickt hat? MfG Beate
13.07.2019 - 10:34DROPS Design answered:
Liebe Frau Hüttig, die Nope stricken Sie wie in der Anleitung erklärt, das Video zeigt nur wie man so eine Noppe strickt, aber die Maschen- sowie Reiheanzahl und Abnahmen am ende der Noppe stricken Sie wie in der Anleitung beschrieben. Viel Spaß beim stricken!
15.07.2019 - 11:51