DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Killian

Sett með prjónaðri domino peysu fyrir börn í garðaprjóni úr DROPS Fabel og buxur í stroffprjóni úr DROPS Alpaca

DROPS Baby 18-25
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-96/104)
Efni:
PEYSA: DROPS FABEL frá Garnstudio
150-150-200 (200-250) g nr 910, þokumistur
BUXUR: DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100-150 (150-150) g nr 0100, natur

PEYSA:
DROPS RUNDST (80 cm) nr 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 511: 3-4-4 (5-5) st

BUXUR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) nr 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

ÚTAUKNING (á við um peysu):
Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki, með því að slá uppá prjóninn. Til þess að koma í veg fyrir göt þá er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri).

ÚTAUKNING (á við um buxur):
Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 l sl hvoru megin við prjónamerki, við miðju að aftan.
Aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknu l eru prjónaðar inn í stroff.

ÚRTAKA (á við um buxur):
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki fyrir miðju að framan.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað frá hlið. Prjónið 2 stykki sem eru saumuð saman á baki. Stykkin eru prjónuð frá ermi og að miðju á peysu.

HÆGRI HELMINGUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 36-38-40 (40-42) l á hringprjóna nr 3 með Fabel. Prjónið sl fram og til baka í öllum umf til loka (= garðaprjón).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-5 (5-6) cm aukið út um 1 l á hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 8. hverri umf alls 6-7-9 (11-13) sinnum = 48-52-58 (62-68) l. Prjónið þar til stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm – passið uppá að prjóna síðustu umf frá röngu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 1 umf sl (= rétta), í lok umf eru fitjaðar upp 41-43-50 (53-58) l (= að bakstykki) = 89-95-108 (115-126) l.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 1 umf til baka, snúið við, setjið eitt prjónamerki í 2. l á prjóni frá réttu (= hægri hlið). Prjónið áfram- JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í annarri hverri umf, alls 38-40-46 (48-50) sinnum – SJÁ ÚTAUKNINGU. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8½-9-10½ (11-12) cm er einungis prjónað yfir síðustu 60-65-74 (79-86) l á vinstri hlið séð frá réttu (= bakstykki), lykkjurnar sem eru eftir eru settar á þráð.

BAKSTYKKI:
Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-16 (17-18) cm (frá umf þar sem l fyrir bakstykki voru auknar út), fellið af.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka l af þræði á prjóninn, en látið 9-10-10 (10-12) l við bakstykki verða eftir á þræði, fyrir hálsmáli. Haldið áfram með útaukningarnar í annarri hverri umf – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við háls (= við l á þræði) í 4. hverri umf alls 6-7-7 (7-7) sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-17 (18-19) cm (frá umf þar sem útaukning á framstykki byrjar og við miðju að framan) fellið af 3-4-4 (5-5) fyrir hnappagötum þannig (frá hálsi, þ.e.a.s. frá röngu): Prjónið 2 l, fellið af 2 l, * prjónið 12-9-11 (9-10) l, fellið af 2 l *, endurtakið *-* alls 2-3-3 (4-4) sinnum, prjónið síðan sl út umf. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir allar l sem l voru felldar af.
Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 90-93-109 (115-121) l á prjóni. Þegar útaukningarnar á hægrir hlið er lokið, fellið af 51-52-62 (66-70) l frá hálsmáli og niður að kanti að framan (fellið af frá röngu) = 39-41-47 (49-51) l eftir á prjóni. Prjónið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir þessar l í ca 1-1-2 (2-3) cm (brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl og passið uppá að framstykki sé jafn langt og bakstykki). Fellið af.

VINSTRI HELMINGUR:
Prjónið eins og hægri helmingur nema án hnappagata – þetta stykki á að ganga frá með rönguna út.

FRÁGANGUR:
Leggið 2 stykkin að hverju öðru og saumið saman við miðju að aftan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Brjótið peysuna saman tvöfalda og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ysta lykkjubogann. Saumið tölurnar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 55 til 75 l (meðtaldar l l af þræði) í kringum háls á hringprjón nr 3 með Fabel.
Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af.
----------------------------------------------------------

BUXUR:

SKÁLM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-60-64 (68-72) l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið þannig: 1 l sl, * 2 l br/2 l sl *, endurtakið frá *-* endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í 1 l, útauknu l eru prjónaðar inn í stroff. Endurtakið útaukningu í 5.-6.-8. (9.-12.) hverri umf, alls 8 sinnum = 72-76-80 (84-88) l.
Þegar skálmin mælist 16-20-23 (25-33) cm er stykkinu skipt upp við prjónamerki og prjónið áfram fram og til baka – JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið fyrir saum = 74-78-82 (86-90) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (27-35) cm fellið af 5 l í hvorri hlið (= 1 kantlykkja, 1 l sl, 2 l br og 1 l sl) = 64-68-72 (76-80) l.
Geymið stykkið og prjónið aðra skálm alveg eins.

BUXUR:
Setjið skálmarnar saman á hringprjóna nr 3 = 128-136-144 (152-160) l. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (bæði prjónamerkin eiga að vera mitt á milli 2 l sl).
Haldið áfram með stroff = 2 l sl/2 l br – JAFNFRAMT er aukið út fyrir aftan og lykkjum fækkað að framan þannig:
ÚTAUKNING AÐ AFTAN: Aukið út 2 l að aftan – SJÁ ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf, alls 4 sinnum.
ÚRTAKA AÐ FRAMAN: Fækkið um 2 l að framan – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 8 sinnum.
Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 120-128-136 (144-152) l á prjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 38-42-47 (52-60) cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman efst á innanverðu á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan op í klofi saman – framstykki að bakstykki.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Killian

Christine, United Kingdom

Babyjasje b18-25

Lineke, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (91)

country flag Paulette wrote:

I am working the sweater. I got to the 108 stitches. And now I am stumped! The 50 cast on stitches are the back of the sweater? Why am I inc. 1 stitch ea side of marker? Where is that on the schematics?

02.09.2023 - 03:02

DROPS Design answered:

Dear Paulette, yes, the 50 stitches cast on are for the back of the sweater. Now you work the back piece and at the same time you work the increases for the shape of the front. That's the 1 stitch at each side of the marker. This would be the part where you have a discontinuous diagonal line on the front piece. Happy knitting!

03.09.2023 - 23:57

country flag Gloria wrote:

Hola. Creo que no explican el aumento de uno de los lados. Solo dice montar 43 puntos (talla 2) para la espalda pero pareciera que solo ese lado de la espalda lleva los puntos nuevos montados, y no la parte del frente, creo que es una omisión porque no encontré los nuevos puntos a montar en el lado del frente. Sin embargo me guié por el dibujo y así lo estoy sacando. Gracias, muy hermoso diseño.

13.07.2023 - 02:02

country flag Monika wrote:

Hallo, was heißt beim Jäckchen "TOTAL .... wiederholen"? Danke.

07.07.2023 - 21:53

DROPS Design answered:

Liebe Monika, die Zunahmen sollen Sie so oft wiederholen, wie für die Grösse geschrieben wird. Viel Spaß beim stricken!

27.07.2023 - 09:26

country flag Ettie wrote:

Hallo hoe brei ik de linkermuisknop en voorpand?

17.03.2023 - 19:06

DROPS Design answered:

Dag Ettie,

Deze kun je precies hetzelfde breien als de rechter helft maar dan zonder knoopsgaten. Je hoeft hem ook niet in spiegelbeeld te breien, want de rechter helft wordt met de verdeerde kant naar buiten aan de linker helft genaaid.

19.03.2023 - 16:45

country flag Ettie wrote:

Ik snap niet aan welke kant ik de meerderingen moet doen nadat ik de mouw heb gebreid? Aan de kant van de nieuw opgezette steken of aan de andere kant?

11.03.2023 - 11:50

DROPS Design answered:

Dag Ettie,

Je breit aan de goede kant en je zet steken op aan het einde van de naald, dus de opgezette steken zijn voor het achterpand. Het meerderen doe je op het voorpand, dus aan de andere kant van de naald, aan iedere kant van de markeerdraad.

12.03.2023 - 11:49

country flag Annie Lafont wrote:

Pourriez vous me dire si les explications de ce modèle existent en francais pour femme merci

17.12.2022 - 10:53

country flag Annie Lafont wrote:

Magnifique, je voudrais savoir si les explications de ce modele existent en francais merci l

17.12.2022 - 10:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lafont, votre vœu est exaucé: cliquez sur le menu déroulant sous la photo pour obtenir les explications en français. Bon tricot!

19.12.2022 - 08:48

country flag Anneke Pettinga wrote:

Hallo. Heb een vraag over dropshot baby 18 _25.Rechterhelft moet ik meerderen na de merkdraad. Moet dat 40 x2( aan bijde kant 1) of totaal 40 dus 20 x 1? Alvast bedankt

12.02.2022 - 21:50

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Je meerdert aan beide kanten van de markeerdraad dus 40 keer in totaal en dit doe je om de naald, dus de ene naald wel en de andere naald niet. Er zijn dan 80 steken bij gekomen; aan elke kant van de markeerdraad 40 steken.

13.02.2022 - 10:12

country flag Antonella wrote:

Quando si aumentano le 2 maglie ai lati della seconda maglia, cosa si intende per lavorare a coste? Grazie

03.01.2022 - 14:24

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, deve incorporare gli aumenti nella lavorazione a coste. Buon lavoro!

03.01.2022 - 20:00

country flag Antonia wrote:

Hola..cuando dice aumento cada 2 hileras. Se hace el aumento y despues se tejen 2 hileras mas y en la 3era hilera se realiza el nuevo aumento o no . Gracias por los patrones son hermosos.

26.08.2021 - 08:03

DROPS Design answered:

Hola Antonia, esto significa que haces una hilera y aumentas en otra (secunda) hilera, etc. Buen trabajo!

27.08.2021 - 08:57