DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5874.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Fruit

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu á börn og húfu úr DROPS Fabel ásamt buxum og sokkum úr DROPS Alpaca.

DROPS Baby 17-23
DROPS design: Mynstur nr FA-003-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-150-150 (150-200) g nr 903, gulur/bleikur.

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál på cm:
40/42-42/44-44/46 (48/50-50/52)
Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 903, gulur/bleikur.

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Efni: DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-200 (200-250) g nr 6347, gráfjólublár.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 100, natur.

PEYSA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 513: 5-5-5 (6-6) st

HÚFA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

BUXUR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
TEYGJA: ca 60 cm.

SOKKAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
-------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5874.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan.
1 HNAPPAGAT = Prjónið saman 2. Og 3. Lykkjur frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 3, 8, 13 og 18 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 3, 9, 14 og 20 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 4, 10, 16 og 22 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 4, 10, 16, 21 og 27 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 5, 11, 17, 23 og 29 cm.
Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsi.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
-------------------------------------------------------

PEYSA:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.
Fitjið upp 130-144-160 (176-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3-3-4 (4-5) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT meðfram hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur (umferð 1 = ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 31-34-38 (41-45) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 52-60-68 (74-82) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 31-34-38 (41-45) lykkjur (= vinstra framstykki).
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 38-40-42 (44-44) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 10.-8.-6. (8.-7.) hverri umferð, alls 4-6-8 (9-12) sinnum = 46-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 16-18-20 (25-29) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru felldar af 8-8-8 (10-10) lykkjur mitt undir ermi (= 4-4-4 (5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerki.) = 38-44-50 (52-58) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 190-216-244 (260-288) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
LASKALÍNA: Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur áður en úrtakan byrjar. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1, frá réttu, er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 9-10-9 (9-9) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 3-4-8 (8-11) sinnum.
HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-27 (32-35) cm eru fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjurnar á prjóni settar á þráð fyrir hálsmáli, síðan er fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjur í byrjun á næstu umferð settar á þráð fyrir hálsmáli í hinni hliðinni. Haldið síðan áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmáli eru 66-72-76 (86-90) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Prjónið upp ca 15 til 20 lykkjur í hvorri hlið fram í háls lykkjur (meðtaldar lykkjur á þráðum) = ca 96 til 130 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 79-79-85 (91-97) lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrir einu hnappagati yfir hin á kanti að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2-2½-2½ (3-3) cm fellið af með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.
-------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og sokkaprjóna.
Fitjið upp 98-105-112 (119-126) lykkjur á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 10-10-10 (12-12) cm. Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-16-17 (19-20) cm er fækkað um 14-15-16 (17-18) lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman = 84-90-96 (102-108) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt, í umferð 4 er úrtakan endurtekin með 1 lykkju færri á milli hverra úrtöku (þ.e.a.s. prjónið 5. og 6. hverja lykkju slétt saman). Haldið áfram að fækka lykkjum svona í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 14-15-16 (17-18) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið uppá neðstu 5-5-5 (6-6) cm tvöfalt að réttu. Húfan mælist nú 14-15-16 (17-18) cm.
-------------------------------------------------------

BUXUR:
Buxurnar eru allar prjónaðar í garðaprjóni fram og til baka í tveimur hlutum.

HÆGRI SKÁLM:
Fitjið upp 52-60-64 (70-74) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 1½-2-2½ (3-4) cm millibili alls 8 sinnum = 68-76-80 (86-90) lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-25-28 (33-38) cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-72-76 (82-86) lykkjur.
Fækkið síðan um 1 lykkju á annarri hlið á stykki (= miðja að framan) – endurtakið úrtöku við miðju að framan í annarri hverri umferð alls 2-6-6 (10-12) sinnum = 62-66-70 (72-74) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 40-46-50 (56-62) cm. Prjónið síðan sléttprjón í 2 cm fyrir saumfald, áður en fellt er af.

VINSTRI SKÁLM:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri skálm, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið saum að innan verðu á skálm innan við 1 kantlykkju – ATH: Þeir 4-5 neðstu cm eru saumaðir með kantinn út á við, svo að saumurinn sjáist ekki þegar brotið er uppá kantinn.
Saumið buxurnar saman alla leið frá miðju að framan að miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. Brjótið uppá saumfald efst tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu spori. Þræðið teygju í gegnum faldinn. Brjótið uppá 4-5 neðstu cm á skálmum.
-------------------------------------------------------

SOKKAR:

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-8-10 (10-10) lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
-------------------------------------------------------

SOKKUR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 44-44-48 (48-52) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið í 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44 (44-48) lykkjur. Haldið eftir fyrstu 18-18-20 (20-22) lykkjur á prjóni fyrir hæl (hinar 22-22-24 (24-26) lykkjur eru settar á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan!
Nú eru teknar upp 8-9-10 (11-12) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 46-48-54 (56-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við lykkjur sem voru á þræði. Haldið áfram með sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 22-22-24 (24-26) lykkjur ofan á fæti – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 7-6-9 (8-8) sinnum = 32-36-36 (40-44) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 7-8-9 (10½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 3-3-3 (3½-3½) cm). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki, þ.e.a.s. það verða 16-18-18 (20-22) lykkjur bæði á ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í hverri umferð 2-3-3 (4-5) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

diagram measurements
diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, erstmal danke für hilfe. Habe die Jacke für 6-9 Monate fertig. Ist schön geworden. Wie vergrössere ich nun für 6 Jahre ? Habe 210 Ma augenommen. Habe es auf ein passendes Teil gelegt. Könnte klappen. Nun aber wieviel Ma für Ärmel und vor allem wieviel Zunahme und Abnahme beim Raglan. Habe schon im Internet gesucht. Können sie mir bitte helfen? Danke und liebe Grüße Annelies

27.03.2023 - 13:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, super zu hörten, daß alles gut verlaufen ist - hier finden Sie eine ähnliche Jacke, die für 6 Jahre erhältlich ist - diese ist mit Delight gestrickt, dh selbe Garngruppe wie Fabel hier. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

27.03.2023 - 13:36

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, sie werden mich nicht los. Habe ich richtig verstanden, nach den 2x2 MA und 2x1MA Abnahme das ich alle maschen abketten muß auch jeweils 5 MA von den stillgelegten. Es bleibt dann nur noch die knopflochpasse. Dan nehme ich wieder die komplett abgeketteten MA wieder auf und stricke dann weiter wie angegeben. Oder? Ist das nun richtig verstanden? Tut mir leid das ich soviel Umstände mache. Es ist nicht besonders gut erklärt. Danke vorab, LG. Annelies

23.03.2023 - 13:39

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, wenn alle Abnahmen für Raglan gestrickt sind und wenn alle Abketten für Halsausschnitt gemacht sind, sind es nur noch 76 Maschen auf der Nadel, die legen Sie still. Faden abschneiden und jetzt die 10 stillgelegten Maschen vom rechten Vorderteil stricken, einige Maschen auffassen (zwischen den 10 stillgelegten Maschen und die erste von den 76 Maschen), die 76 Maschen stricken dieselbe Maschenanzahl auffassen und die 10 stillgelegten Maschen vom linken Vorderteil stricken, eine Rückreihe rechts stricken und die Maschenanzahl auf 85 M anpassen. Viel Spaß beim stricken!

23.03.2023 - 14:51

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallo nochmal, wenn ich die MA abkette wird doch ein Loch zwischen den abgeketteten MA und den stillgelegten Ma. ODER müssen die MA zusammen gestrickt werden? Das ergibt Sinn Wann stricke ich die stillgelegten MA. Ich hoffe die letzte Frage LG. Annelies Rennert

23.03.2023 - 10:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, oh ja natürlich, sorry daran hatte ich nicht gedacht: wenn alle Abnahmen und Abketten (Raglan + Hals) gemacht sind, wird man die Maschen rund den Hals auffassen, dh die stillgelegten Maschen stricken, neue Maschen auffassen, die übrigen Maschen nach Passe stricken, neue Maschen auffassen und stillgelegten Maschen stricken - siehe ZUSAMMENNÄHEN, wo die Halskante erklärt ist. Viel Spaß beim stricken!

23.03.2023 - 12:34

country flag Annelies Rennert wrote:

Bin an Halsbänder. 2x 10 ma stillegen, dann noch 2x2 u. 2x1 ma abketten. Dann wieder 15-20 ma zunehmen. Gleichzeitig 79ma gleichmäßig verteilt anpassen, was ist mut den 2x10 ma? Müssen doch mit gestrickt werden. Durch das abketten entsteht doch ein Loch. Entweder ist das alles nicht richtig übersetzt oder? Bitte nochmals um Erläuterung, möchte fertig stellen. Danke Annelies Rennert

22.03.2023 - 13:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, stricken Sie die ersten 10 M am Anfang der Hin-R, und legen Sie sie still, bis zur Ende der R wie zuvor stricken, wenden, die 10 nächsten M stricken und stilllegen, wie zuvor bis Ende der R stricken. Dann stricken Sie mit Raglanabn weiter und gleichzeitig ketten Sie 2 M am Anfang der nächsten 4 R dann 1 M am Anfang der nächsten 4 R (2 M 2 Mal + 1 M 2 M beidseitig) = 244-136 (Raglan) - 20 (stillgelegt) - 12 (abgekettet) = 76 Maschen übrig. Viel Spaß beim stricken!

22.03.2023 - 13:43

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallo, bin beim stricken bis zur Rundpasse gekommenen. Jetzt geht es bei der Rundpasse weiter. Bin komplett planlos. Bitte um Erklärung der kompletten halsabnahme. Verstehe diese Abnahmen nicht. Desweiteren nochmal das zusammennähen erklären. Bitte nochmal erklären damit ich diese Jacke fertig stellen kann. Habe noch eine zu stricken für 6 Jahre altes Mädchen. Hoffe sie beschreiben es mir so das ich es verstehe. Vielen Dank Annelies Rennert

21.03.2023 - 23:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, hier gibt es keine Rundpasse sondern Raglanabnahmen. Setzen Sie 1 Markierung in jedem Übergang (4 Markierungen) und nehmen Sie jeweils 8 Maschen ab wie unter TIPP ZUM ABNEHMEN (gilt für die Raglanpasse): erklärt - gleichzeitig soll man auch Halsausschnitt stricken: nach 23-35 cm die 8-13 ersten Maschen am Anfang der 2. nächsten Reihe stilllegen dann am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) für den Hals abketten. Viel Spaß beim stricken!

22.03.2023 - 08:55

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, was verstehe ich unter zusammen nähen wenn gestrickt wird. Warum vorn maschen aufnehmen,? Die Leiste mit den knopflöchern ist doch da. Bitte erklären Sie mir es genau, möchte nicht das ich die Wolle für 2 jacken für um sonst gekauft habe. Finde ihre Anleitungen sind manchmal schlecht erklärt. Mfg. Annelies Rennert

31.01.2023 - 11:03

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, unter ZUSAMMENNÄHEN wird es erklärt, wie man die Halskante strickt, dh die stillgelegten Maschen vom rechten Vorderteil stricken + Maschen rund den Hals auffassen + die stillgelegten Maschen vom linken Vorderteil stricken - dann weiter im Bündchen mit 5 Blendemaschen kraus rechts stricken. Viel Spaß beim stricken

31.01.2023 - 17:18

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, möchte obige Jacke stricken. Liest sich sehr kompliziert. Verstehe ich h richtig das die Jacke von unten nach oben gestrickt wird . Wie soll das mit dem Raglan gehen? Sie schreiben auch das die ärmeln extra gestrickt werden. Unter zusammennähen steht wie man stricken soll. Sehr verwirrend. Bitte nochmals um genaue Informationen, habe die Wolle schon gekauft. Mfg. Annelies Rennert

29.01.2023 - 22:16

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, Rumpfteil wird von unten nach oben in einem Stück bis zum Armloch gestrickt, dann strickt man beide Ärmel und endlich strickt man die Passe (die Ärmel strickt man zusammen mit der Passe) und es wird dann für den Raglan abgenommen - siehe hier. Viel Spaß beim stricken!

30.01.2023 - 09:40

country flag Voirol Gaëtane wrote:

Bonjour, Je fais le modèle 1-3 mois. Je suis arrivée à la fin des diminutions. J'ai 66 mailles mais mon ouvrage mesure 25 cm et pas 27cm. Est-ce que je dois continuer à tricoter encore 2 cm pour obtenir 27 cm ou je dois m'arrêter là et faire l'assemblage? Merci de votre réponse

18.02.2022 - 12:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Voirol, posez votre ouvrage bien à plat, il doit mesurer 27 cm de hauteur totale, y compris les 2 cm de l'épaule, autrement dit, 25 cm à partir du rang de montage jusqu'aux mailles sur l'aiguille en mesurant le long du devant - cf schéma. Il est donc possible que vous ayez atteint la bonne mesure. Bon tricot!

18.02.2022 - 14:25

country flag Voirol Gaëtane wrote:

Bonjour, Pour tricoter la veste taille 1-3mois: Je ne comprend pas si je dois tricoter 130 mailles au départ ou 140 (130 + 5 mailles de chaque côté). Et quand je tricote les 5 mailles du bords, est-ce que la mailles lisière compte comme une des mailles? Merci pour vos réponses.

29.01.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Voirol, les mailles de bordure des devants sont comprises dans le nombre de mailles à monter, autrement dit, montez 130 mailles et tricotez ensuite ainsi: 5 m point mousse, 120 m jersey, 5 m point mousse. On n'a pas de mailles lisières ici. Bon tricot!

31.01.2022 - 09:21

country flag Madalena Martins wrote:

Olá! Por favor, gostaria de saber o número dessa lã do casaquinho colorido. Obrigada.

14.05.2021 - 14:23