DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 16-16
DROPS design: Mynstur nr ee-0115-by
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
200-250-250 (300-350) g nr 01, natur.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 501: 4-4-5 (5-5) st
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum frá réttu á eftir 3 lykkjur garðaprjón þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum frá réttu á undan 3 lykkjur garðaprjón þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. í aftari hluta á lykkju) svo að ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan.
1 hnappagat = fellið af 3. lykkju frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja lykkju yfir þá sem felld var af í næstu umferð.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ: 1/3 mán: 3, 10, 16 og22 cm
STÆRÐ 6/9 mán: 3, 10, 17 og 24 cm
STÆRÐ 12/18 mán: 4, 10, 16, 22 og 28 cm
STÆRÐ 2 ára: 4, 11, 18, 25 og 31 cm
STÆRÐ 3/4 ára: 4, 12, 19, 27 og 34 cm
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð sem eitt stykki – byrjið neðst á framstykki, fitjið upp lykkjur fyrir ermi og fellið af neðst á bakstykki. Til þess að fá pláss fyrir allar lykkjurnar er prjónað fram og til baka á hringprjón.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 18-20-21 (23-25) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 3 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 8 með Snow. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjóni og 3 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 13-14-17 (20-22) cm prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með kanta að framan áfram í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm fitjið upp nýjar lykkjur í hlið fyrir ermi. Fitjið upp í lok umferðar í hlið: 4 lykkjur 1-1-2 (2-3) sinnum, 5 lykkjur 1-1-1 (1-1) sinni og 8-9-8 (12-12) lykkjur 1 sinni = 35-38-42 (48-54) lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni. ATH! Eftir síðustu útaukningu eiga 3 ystu lykkjurnar á ermi að prjónast í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 22-24-28 (31-34) cm prjónið 2 umferðir í garðaprjón yfir 9-10-10 (11-11) lykkjur við miðju að framan (meðtaldar 3 kantlykkjur að framan), aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð frá miðju að framan eru felldar af ystu 6-7-7 (8-8) lykkjurnar fyrir hálsmáli, fellið síðan af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð – sjá ÚRTAKA: 1 lykkja 2 sinnum = 27-29-33 (38-44) lykkjur eftir á öxl/ermi.
Prjónið áfram perluprjón og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm er sett 1 prjónamerki (= mitt á öxl). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Þegar stykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 lykkju við háls í næstu umferð, frá réttu, innan við 3 lykkjur garðaprjón – sjá ÚTAUKNING = 28-30-34 (39-45) lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka þannig að næsta umferð sé frá réttu. Setjið lykkjur á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd. JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT meðfram kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!

BAKSTYKKI:
Prjónið inn lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 8-10-10 (12-12) nýjar lykkjur í hnakka og prjónið inn lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn = alls 64-70-78 (90-102) lykkjur.
Prjónið áfram þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 22-24-28 (33-39) lykkjur perluprjón, 14-16-16 (18-18) lykkjur garðaprjón (= aftan í hnakka), 22-24-28 (33-39) lykkjur perluprjón og 3 lykkjur garðaprjón.
Þegar 6 umferðir í garðaprjóni hafa verið prjónaðar yfir lykkju í hnakka, prjónið perluprjón yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-9 (9-9) cm fellið laust af erma lykkjur í báðum hliðum. Fellið af í byrjun á hverri umferð: 8-9-8 (12-12) lykkjur 1 sinni, 5 lykkjur 1-1-1 (1-1) sinni og 4 lykkjur 1-1-2 (2-3) sinnum = 30-34-36 (40-44) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 14-15-16 (17-18) cm (brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxl og passið uppá að það séu jafn margar umferðir í perluprjóni prjónaðar á bakstykki eins og á framstykki) prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 24-26-30 (34-37) cm (passið uppá að það séu jafn margar umferðir í sléttprjóni á bakstykki og á framstykki) prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Elcla wrote:

Bonjour, Quand vous dîtes « À 8-8-9 (9-9) cm de hauteur, rabattre souplement les mailles des manches. », mesurez vous à partir du marqueur placé pour les épaules ou du rang où les « 8-10-10 (12-12) m pour l'encolure dos » ont été montées ? Merci !

23.12.2023 - 21:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Elcla, mesurez à partir du marqueur placé en haut des épaules à la fin des devants, ces marqueurs servent de repère pour plier l'ouvrage en double, vous mesurez désormais à partir de ces marqueurs. Bon tricot!

02.01.2024 - 08:02

country flag Jane wrote:

Good morning, Thank you for the lovely patterns. I have a question about binding off on the right front (pattern Drops Baby 16-16). If I bind off the same way I bound off the left front, the neck line does not match. Should I use purl stitches rather than knit stitches? Thanks for your help.

09.05.2023 - 18:10

DROPS Design answered:

Dear Jane, correct, the stitches for neckline on right front piece are at the beg of a right side row, so that you can cast off knit wise, but you can purl them if you like.Happy knitting!

10.05.2023 - 08:07

country flag Paulina wrote:

Odpowiadam na pytanie dotyczące miejsca, którym jestem: lewy przód, zamykanie oczek na dekolt. Oczka są zamykane na końcu rzędu na prawej stronie. Trzeba zamknąć 8 pierwszych (teoretycznie, bo przy lewym przodzie one są na końcu rzędu) oczek na dekolt i nie wiem jak to zrobić, aby było dobrze...

12.09.2022 - 11:00

DROPS Design answered:

Witaj ponownie Paulino, tam jest napisane 'W nast. rzędzie zamknąć na dekolt 6-7-7 (8-8) pierwszych o.', tzn. że będziesz zamykać te oczka na dekolt na lewej stronie robótki. W ten sposób nie trzeba będzie odcinać nitki. Mam nadzieję, że pomogłam. Pozdrawiamy!

12.09.2022 - 11:41

country flag Paulina wrote:

Witam, we wzorze jest napisane, aby zamykać oczka 2 razem na prawo przed 3 oczkiem brzegowym - razem 8 oczek. Robiąc to na prawej stronie kończymy nitkę, podczas gdy robotke trzeba dalej przerabiać. . Czy wzór jest dobrze napisany?

11.09.2022 - 23:51

DROPS Design answered:

Witaj Paulino, w jakim miejscu we wzorze teraz jesteś?

12.09.2022 - 08:31

country flag Ine wrote:

Ik ben bezig aan het vestje in maat 86/92. Nu begrijp ik niet dat ik bij het achterpand maar 12 steken moet meerderen. Volgens mijn berekening wordt het achterpand 15 steken smaller dan de voorpanden. Klopt dat?

24.02.2022 - 19:37

DROPS Design answered:

Dag Ine,

Je kant midden voor eerst de eerste 8 steken af en daarna kant je nog 2 x 1 steek af, in totaal dus 10 steken aan elke kant. Bij elkaar opgeteld zijn dat 20 steken, maar vanwege de bies kun je 17 steken rekenen. Je zet achter 12 steken op en dit is een verschil van 5 steken omdat je de steken aan de voorkant in een ronding afgekant zijn. Vaak wordt er bij een babypatroon aan de voorkant iets meer ruimte gehouden bij de hals.

26.02.2022 - 15:02

country flag Lovise wrote:

"Når det er strikket 3 riller over m bak i nakken, fortsettes det med perlestrikk over disse m. " Jeg får ikke perlemønsterer til å gå opp på antallet masker? Strikker i minste størrelsen og har 58 masker + 3 i hver ende av armene.

24.06.2021 - 12:50

DROPS Design answered:

Hei Lovise, I minste størrelsen har du 3 masker rille i hver ende, 14 rille i nakken og 22 x 2 masker perlestrikk. Dette er 64 masker totalt og 58 masker i perlestrikk. Siden antall masker er partall, skal perlestrikket gå opp over maskene. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

25.06.2021 - 08:32

country flag Monika wrote:

Hallo, ich verstehe nicht ,wie ich die Zunahmen für die Ärmel stricken muß. Gibt es dazu ein Video ? Ich habe keins gefunden. Würde mich für einen Hinweis freuen.

10.05.2021 - 23:01

DROPS Design answered:

Liebe Monika, sicher: dieses Video zeigt, wie man neue Maschen am Ende einer Reihe zunimmt/anschlagen soll. Beim linken Vorderteil werden Sie die neuen Maschen für die Ärmel am Ende einer Rückreihe anschlagen: bei dem rechten Vorderteil werden Sie diese Maschen am Ende einer Hinreihe anschlagen. Viel Spaß beim stricken!

11.05.2021 - 07:35

country flag Carola Norberg wrote:

Hej Har en fråga om stickfasthet. Har gått upp ett steg från 8-9 på stickorna får då en lapp på 9x9 cm. Kan man gå upp en storlek på plagget? Har tyvärr inte större stickor hemma och vill gärna börja =) Mvh C

25.07.2020 - 08:13

DROPS Design answered:

Hej Carola, ja det får du gärna göra, men du får kanske inte helt rätt mått enligt mönstret, så det kan vara bra att räkna ut hur många maskor du behöver för att få måttet i den storleken du behöver. Eller så försöker du sticka lite lösare, så du får 10 cm ;) Lycka till :)

27.07.2020 - 15:31

country flag Katrina wrote:

Hi - can I substitute 2 strands of knitting worsted ( #4) for your yarn in this sweater pattern?

20.07.2020 - 17:51

DROPS Design answered:

Dear Katrina, you can use either 1 yarn group E (= Eskimo) or 2 strands yarn group C - use our yarn converter to see alternatives. Happy knitting!

29.07.2020 - 08:15

country flag Maria Flora wrote:

Salve! Bellissimo modello, sono quasi alla fine del davanti sinistro. Mi sono accorta però che nelle diminuzioni dello scollo in cui si deve chiudere una sola maglia, io anziché passarla senza lavorarla...l\'ho lavorata e poi passata sulla seguente anche questa lavorata. Sapevo che si facesse così. Posso lasciare così o è meglio che la disfi e la lavori come vostro suggerimento? Grazie!

26.06.2020 - 23:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Flora. Se preferisce, può lasciare la maglia come la ha lavorata. Buon lavoro!

03.07.2020 - 08:36