DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 14-8
DROPS design: Mynstur nr z-028-by-a-s
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 ) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-15) cm
Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) gr nr 3720 millibleikur
+ afgangur af nr 7300 lime og 3140 ljós bleikur (fyrir blóm og kant)

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 stuðlar og 13 umferðir með Apaca verði 10 x 10 cm.
DROPS ljós trétala, nr 503: 2 st.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og í lok umferðar er síðasta fastalykkjan hekluð í loftlykkju í byrjun frá fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er 1. stuðul skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er síðasti stuðull heklaður í 3. loftlykkju í byrjun frá fyrri umferð. Heklað er í hverja fastalykkju/stuðul (ekki á milli).

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið úr 1 fastalykkju/stuðli með 1 keðjulykkju.
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi fastalykkja/stuðla sem fækka á og heklið til baka.
--------------------------------------------------------

SKÓR:

VINSTRI SKÓR:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sólanum. Heklið 15-18-20 (25-27) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 og millibleikur.

Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og ein af næstu 13-16-18 (23-25) loftlykkjur = 15-18-20 (25-27) fastalykkjur, snúið stykkinu. Heklið nú 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð jafnframt er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og í lok fyrstu umferðar með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 19-22-24 (29-31) fastalykkjur. Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist 3-4-4 (5-5) cm. Fækkið um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA = 15-18-20 (25-27) fastalykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 3-4-4 (5-5) cm. Klippið frá og festið enda. Setjið eitt prjónamerki í hvert horn = 4 prjónamerki.
Heklið nú stuðla í kringum sólann þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= mitt á annarri skammhliðinni) – heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðul í hvern og einn af næstu 2-3-3 (4-4) stuðlum, 2 stuðlar í hornið, 15-18-20 (25-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið, 5-7-7 (9-9) stuðlar meðfram annarri skammhliðinni (= tá), 2 stuðlar í hornið, 15-18-20 (25-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3 (4-4) stuðlar, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 48-58-62 (76-80) stuðlar.
UMFERÐ 2: Eins og umferð 1 – nema heklið saman 2 stuðla í bæði hornin við tá = 46-56-60 (74-78) stuðlar.
UMFERÐ 3 OG 4: Heklið 2 umferðir með stuðlum án þess að fækka lykkjum. Stykkið mælist nú ca 2 cm á hæðina.

ÖKKLABAND:
Heklið 2 umferðir með stuðlum yfir miðju 5-5-5 (7-7) stuðla mitt að aftan fyrir ökklaband, heklið síðan 33-34-35 (36-37) loftlykkjur í lok síðustu umferðar, snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í 4. Loftlykkju frá heklunál, 1 stuðull í næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul (= hnappagat), heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af 27-28-29 (30-31) loftlykkjum sem eftir eru og 1 stuðul í hvern og einn af 5-5-5 (7-7) síðustu stuðlum. Klippið frá og festið enda.

EFRI HLUTI:
Heklið 1 stuðul í hvern og einn af 7-9-9 (11-11) stuðlum mitt framan á skó. Heklið fram og til baka þar til efri hlutinn mælist 4-4-5 (5-6) cm. Klippið frá og festið enda. Saumið efri hlutann að skó í hvora hlið með smáu spori.
Skiptið yfir í ljós bleikur og heklið krabbahekl meðfram öllu opinu á skónum og í kringum alla ökklaólina (krabbahekl = heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri).

MIÐJU ÓL:
Heklið 5 fastalykkjur yfir miðju lykkjur framan á skónum með ljós bleikur (1. umferð er hekluð frá bakhlið á krabbahekli). Heklið fram og til baka þar til ólin mælist 6 cm. Brjótið uppá ólina tvöfalda að röngu og saumið niður innan verðu á skónum. Saumið tölu mitt aftan á skó ca ca ½ cm ofan frá.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 4 loftlykkjum sem eru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá.
Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 og lime og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, heklið 3 stuðla í fyrstu af 4 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 5 blöð, klippið frá. Festið ljós bleika blómið ofan á blómið úr lime og saumið blómið á efri hlutann á skónum.

HÆGRI SKÓR:
Heklið eins og vinstri skór, nema gagnstætt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Arachniae wrote:

Super à crocheter!! j'attaque le 2ème là!! Moi qui ne connaissait pas le point écrevisse et avait peur de le faire, ben maintenant, je sais le faire!! Et merci pour vos modèles gratuits! Dommage qu'on ne puisse pas vous partager nos réalisations :)

11.10.2020 - 14:11

DROPS Design answered:

Bonjour et merci pour votre message Arachniae. Vous pouvez volontiers partager vos réalisations via notre groupe DROPS >Workshop et/ou notre galerie #dropsfan. Bon crochet!

12.10.2020 - 09:11

country flag Linda Martin wrote:

Je ne comprends ou sont les indications pour le dessus du pied. Comment on le tricotte

05.04.2020 - 23:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, on commence les chaussons par la semelle puis on va crocheter le dessus du pied/les côtés = R 1 à 4 fin de la 1ère partie. On fait ensuite la bride de la cheville et on termine par la partie du haut = celle que l'on va crocheter en longueur puis plier en double pour y passer la bride. Bon crochet!

09.04.2020 - 14:02

country flag Elisabteth Vallin wrote:

Hej! Jag virkar babyskor ur mönster 14-8. Jag har virkat fram till nu börjar sulan. Får inget begrepp om hur det ska bli rätt.Jag började på hälften av den kortaste del av "trekanten", fortsatte på långkanten,men sen tog det stopp. Menas det att jag ska ta av garnet å börja mitt bak igen. Har nog fattat allt fel. Finns det nån vänlig själ som kan mönster eller ändå hjälpa mig?????? Jätte tacksam om någon svarar. Hälsningar Elisabeth

06.03.2018 - 14:35

DROPS Design answered:

Hej, du ska börja mitt på den ena kortsidan, virka stolpar längs denna, sedan virkas det 2 stolpar i hörnet, fortsätt längs långsidan med stolpar, virka 2 stolpar i följande hörn, virka stolpar längs den andra kortsidan och 2 stolpar i följande hörn, sedan virkar du stolpar längs den andra långsidan, 2 stolpar i hörnet och stolpar fram till mitt på den första kortsidan, avsluta med 1 smygmaska i den tredje luftmaskan i början på varvet. Du virkar alltså runt utan att klippa tråden.

22.03.2018 - 14:26

Fauzan wrote:

I left the unfinished shoes because no one is helping me in making the second round of the sole.would u help me?

27.11.2017 - 02:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fauzan, you will find the answer to your previous question below. Happy crocheting!

27.11.2017 - 10:51

Fauzan wrote:

When we bind off each corner in round around the sole there should be 54 tr crochet instead of 56.because there are 58 tr crochet in the first round .what u say

25.11.2017 - 16:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fauzan, at the end of row 1 there are 58 tr. On row 2 you dec 2 sts = 58-2 = 56 tr. Happy crocheting!

27.11.2017 - 09:30

Fauzan wrote:

How to make sole of the shoe there is no joining stitch to complete one round

17.11.2017 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fauzan, sole is worked back and forth, then you work in the round around the sole. Happy crocheting!

17.11.2017 - 16:38

country flag Aline Soulard wrote:

Quand ont à fini les 4 rangs du chausson avant de commencer le lien cheville, est-ce qu'on coupe la laine ce n'est pas indiqué, si non comment on fait. Merci

11.09.2017 - 03:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Soulard, tout à fait, ainsi, vous allez bien crocheter les 5-7 m du milieu dos comme indiqué pour le lien cheville. Bon crochet!

11.09.2017 - 09:07

country flag Martineb wrote:

Bonjour, je ne comprends pas cette phrase : en même temps, augmenter 1 m au début et à la fin de chaque rang ainsi : faire 3 ms dans la 1ère et dans la dernière ms du rang = 19-22-24 (29-31) ms. Merci pour votre réponse Martine

12.11.2013 - 18:52

DROPS Design answered:

Chère Martineb, on va en fait augmenter 2 m (et non 1 seule, correction faite), au début et à la fin du rang en crochetant 3 ms dans la 1ère et 3 ms dans la dernière m du rang. Bon crochet!

13.11.2013 - 08:55

country flag Martineb wrote:

Bonjour, je ne comprends pas cette phrase . en même temps, augmenter 1 m au début et à la fin de chaque rang ainsi : faire 3 ms dans la 1ère et dans la dernière ms du rang = 19-22-24 (29-31) ms. Merci pour votre réponse Martine

12.11.2013 - 18:50

country flag Agnes wrote:

Voor de zool moet ik 15 l. haken. Dit is incl de keerlosse. In de 2e toer moet ik dan 15 st. hebben. Ik kom uit op 14 st. Moet ik nu in de 1e toer al een keerlosse erbij haken, ik kom dan op 16 l.

03.09.2013 - 15:34

DROPS Design answered:

Hoi Agnes. Je hebt 1 v in de tweede l van de nld gehaakt = 1 l ter vervanging van de eerste v (Zie ook Haak Info) + 1 v = 2 v. Vervolgens haak je 1 v in de volgende 13 l = 15 v op de toer.

04.09.2013 - 10:45