DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 26-6
DROPS Design: Mynstur nr cm-003-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
KJÓLL:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
250-300-350-400-450 gr litur nr 16, gallabuxnablár

HÁRBAND:
Stærð: 2/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Höfuðmál: 48/50 - 50/52 - 52/53 - 54/55 cm
Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
50 gr í allar stærðir litur nr 16, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: BOGALAGA (hvít), NR 521: 2 stk í allar stærðir (fyrir kjól).
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Takið 1 l óprjónaða, prjónið 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á vinstri öxl. Fellið af með því að prjóna aðra og þriðju l frá miðju að framan, sláið síðan uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist 2 og 4 cm.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
---------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.
Fitjið upp 192-192-224-224-256 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið A.1. Prjónið síðan A.2 (= 6-6-7-7-8 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig – byrjið 1 l á undan l í umf: * A.3 (= 3 l ), 29 l sléttprjón *, endurtakið frá *-* 6-6-7-7-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm fækkið um 1 l fyrir hvert A.3 – LESIÐ ÚRTAKA (6-6-7-7-8 l færri). Endurtakið úrtöku til skiptis á undan og á eftir A.3 með 1-1½-1½-2-2 cm millibili alls 12-10-12-10-12 sinnum = 120-132-140-154-160 l. Haldið áfram í sléttprjóni og A.3 þar til stykkið mælist 27-29-32-35-37 cm. Prjónið nú A.1 yfir allar l, í fyrstu umf í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður til 124-132-140-148-160 l. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, en í byrjun umf og 1 eftir 62-66-70-74-80 l = hliðar.
Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l. Þegar stykkið mælist 34-37-41-45-49 cm fellið af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (= 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki) og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 56-60-64-68-74 l. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun hverrar umf þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 2-2-1-1-2 sinnum = 48-52-58-62-66 l. Þegar stykkið mælist 38-42-47-52-57 cm setjið fyrstu 22-24-27-29-31 l (frá réttu) á þráð fyrir hægri öxl (prjónið þær fyrst) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

VINSTRI ÖXL:
= 26-28-31-33-35 l. Haldið áfram í sléttprjóni, en fyrstu 4 l á prjóni (við miðju) eru prjónaðar í garðaprjón. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 44-48-53-58-63 cm setjið fyrstu 4 l á þráð (prjónið þær fyrst), fellið síðan af næstu 10-11-12-13-13 l fyrir hálsmáli. Í næstu umf er fækkað um 1 l við hálsmál = 11-12-14-15-17 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-50-55-60-65 cm.

HÆGRI ÖXL:
Setjið til baka þær 22-24-27-29-31 l af þræði á prjóninn og fitjið upp 4 nýjar l í lok fyrstu umf frá réttu = 26-28-31-33-35 l. Prjónið síðan eins og vinstri öxl, ekki er fellt af fyrir hnappagötum.

FRAMSTYKKI:
= 56-60-64-68-74 l. Fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á bakstykki = 48-52-58-62-66 l. Þegar stykkið mælist 41-45-50-55-60 cm setjið miðju 18-20-22-24-24 l á þráð fyrir hálsmál, hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í hverri umf við háls: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 11-12-14-15-17 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-50-55-60-65 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-42-44-46-48 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið A.1 yfir allar l, prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 6-3½-3-3-3 cm millibili 2-4-6-7-8 sinnum til viðbótar = 46-52-58-62-66 l. Þegar stykkið mælist 20-23-26-29-32 cm fellið af 6 l við miðju undir ermi fyrir ermakúpu. Prjónið ermi fram og til baka JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fækkið um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 24-27-30-33-36 cm. Fækkið um 3 l í hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 25-28-31-34-37 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Leggið þær 4 l sem fitjaðar voru uppá vinstra bakstykki undir þær 4 l frá hægra bakstykki og saumið þær saman.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 72 til 88 l (meðtaldar l af bandi) í kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
---------------------------------------------------------

HÁRBAND:
Fitjið upp 15 l á prjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan A.4 yfir allar l. Haldið áfram með A.4 þar til stykkið mælist 41-42-43-44 cm (strekkið aðeins á stykkinu þegar mælt er), prjónið 2 umf garðaprjón, fellið af. Saumið saman affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn með lykkjuspori.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (115)

country flag Maria wrote:

Pourquoi des aiguilles doubles pointes ?

23.04.2024 - 18:23

DROPS Design answered:

Bonjour Maria, on utilise les aiguilles doubles pointes pour tricoter les manches; si vous êtes plus à l'aide sur aiguille circulaire, vous pouvez utiliser la technique du magic loop, cf vidéo. Bon tricot!

24.04.2024 - 08:15

country flag Masson wrote:

Je fais la robe pour 5-7 ans tout va bien jusqu'aux épaules je ne comprends pas comment procéder épaule gauche épaule droite ? Merci de m'aider.

18.11.2023 - 11:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Masson, dans le dos, on a une fente avec des boutons; on va ainsi devoir diviser le dos en 2 parties et les terminer séparément pour créer cette fente. Quand l'ouvrage mesure 47 cm (en taille 5/6 ans), tricotez les 27 premières mailles sur l'endroit et mettez-les en attente (épaule droite quand on porte la robe); tricotez maintenant les 31 mailles restantes avec 4 mailles point mousse en début de rang sur l'endroit/fin de rag sur l'envers pour la bordure de boutonnage du dos. Terminez le côté gauche du dos puis reprenez les mailles en attente pour tricoter le côté droit du dos. Bon tricot!

20.11.2023 - 09:52

country flag Maria Cini wrote:

Hi i'm knitting size 6-7 year old. When i mark the sides am i doing something wrong if one side has pattern A3 and the other side not? Thanks

16.10.2023 - 16:49

country flag Maria wrote:

Hi. I'm knitting size 6-7 years. When I mark the sides am i doing something wrong if one side has pattern A3 and the other side not?

16.10.2023 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Maria, A.3 is worked all the round with 29 sts stocking stitch between each A.3 so that there are 7 repeats of A.3 in the round in both size 5/6 years and 7/8 years. Can this help or do I misunderstand your question?

17.10.2023 - 09:05

country flag Dale wrote:

Would you please clarify the decrease for sleeve cap in a row by row description? Is the decrease 2 sts at each end of every row, or 1 st each end of every row? Also, how do you complete the decrease ... bind off or combine stitches? Thank you.

23.07.2023 - 14:37

DROPS Design answered:

Dear Dale, first you cast off 2 sts in each side, that is, 2 stitches at the beginning of each row, both from the right side and the wrong side. When the piece measures 24-27-30-33-36 cm cast off 3 stitches in each side as before (once on each side) and then cast off the remaining stitches. You bind off these stitches one by one, instead of decreasing them together. Happy knitting!

23.07.2023 - 20:04

country flag Brenda wrote:

I have a question about "repeat dec alternately before every A3 every 1 cm (for size 2). I have completed only 6 decrease rows (not the 12 as the pattern instructs) and I'm going to have fewer than 120 stitches. Would you please clarify how to perform these decreases?

11.07.2023 - 23:08

DROPS Design answered:

Hi Brenda, You decrease alternately 1 stitch before A.3 (the first set of decreases) and after A.3 (the second set of decreases), with 6 stitches decreased on each decrease-round a total of 12 times = 72 stitches decreased. Starting with 192 stitches, this leaves you with 120 stitches when the decreases are finished. Happy knitting!

12.07.2023 - 07:18

country flag Bernadette Anbergen wrote:

En réalité, les hauteurs dans le descriptifs sont à multiplier environ par 1,3. Je ne demande pas de réponse, mais ce serait bien de corriger les hauteurs de tricot dans le descriptif. En attendant, j'ai défait mon travail et je dois recommencer. Bien à vous

29.04.2023 - 23:48

country flag Lyn Carroll wrote:

Could you send me pictures of where the buttons go and the "then place the 4 sts from right back piece behind the 4 sts on the left back piece and fasten with small stitches?"

04.05.2022 - 21:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Caroll, take the piece from the right side, back piece towards you; slip the 4 sts cast on on the right shoulder on back piece inside piece (towards back side) and sew the cast on edge of these 4 sts along the first 4 sts in garter stitch on left shoulder. Sew the buttons on the left side of back piece facing the buttonholes. Happy assemby!

05.05.2022 - 09:04

country flag IDA POLONI wrote:

Would you consider supplying this pattern for sizes 12 - 14

16.03.2022 - 03:20

DROPS Design answered:

Dear Ida, we don't make personalized patterns. If you have the same gauge as in the pattern, you could adjust the number of stitches/cm for a larger size by following the sequence of the previous sizes. Happy knitting!

20.03.2022 - 19:05

country flag Sheila Kroetsch wrote:

I am confused by the Front piece instructions. "And finish each shoulder sepearately" Am I binding off starting the next row after putting the middle stitches on the stitch holder? Do I bind off 2 stiches once and 1 stich twice in all or do I repet that sequence until I have reached the appropriate number of stitches?

21.01.2022 - 21:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Krotsch, you will cast off for neck at the beginning of every row starting from neck (towards the sts on the thread), ie at the beginning of a WS row (left shoulder)/RS row (right shoulder) 2 sts 1 time then 1 stitch 2 times. Happy knitting!

24.01.2022 - 08:25