Í vísbendingu #8 ætlum við að hekla 7 nýjar umferðir – njóttu, því þegar við erum búin með þær þá förum við aftur í vísbendingu 1!
Ertu með einhverjar spurningar? Neðst á síðunni þá finnur þú dálk þar sem þú getur lagt inn spurningar eða athugasemdir.
RENDUR:
Klippt er frá eftir hverja umferð, ef næsta umferð er ekki með sama lit. Endar í hliðum eru festir í lokin.
48.UMFERÐ: gallabuxnablár (litur i)
49.UMFERÐ: vínrauður (litur j)
50.UMFERÐ: gallabuxnablár (litur i)
51.-54.UMFERÐ: púður (litur a)
MYNSTUR:
Nú ætlum við að hekla eftir mynsturteikningu A.6a, A.6b, A.7a og A.7b. Mynsturteikningar A.6a og A.7a sýna hvernig umferðin byrjar. ATH: Byrjun á umferð er teiknuð yfir hverja aðra í sömu mynsturteikningu sem við heklum til skiptis frá hægri og vinstri hlið á sjali en ekki yfir hverja aðra.
LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu lykkjuna í umferð með fyrsta lit, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið bandið í gegnum síðustu lykkju með nýja litnum, eftir þetta er næsta umferð hekluð.
Ef þú ert vön/vanur þá getur þú lesið stuttu útskýringuna og fylgt eftir mynsturteikningunni hér að neðan, en ef þig vantar frekari aðstoð við að byrja, þá getur þú lesið það sem stendur fyrir neðan í þessari vísbendingu.
Umferð 48, 49, 53 og 54 eru heklaðar frá réttu. Byrjið umferð 49 með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá fyrri umferð og byrjið umferð 54 með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð.
= | 1 loftlykkja | |
= | 3 loftlykkjur | |
= | 4 loftlykkjur | |
= | 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga | |
= | 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga. ATH: Í 50. umferð er heklað um hálfastuðla frá 48. umferð | |
= | 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga | |
= | Í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja | |
= | Í byrjun á umferð eru heklaðar 2 loftlykkjur | |
= | Í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur | |
= | Í byrjun á umferð eru heklaðar 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 tvíbrugðnum stuðli í síðustu lykkju í umferð | |
= | 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga | |
= | Í umferð með ör er aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Aukið út um 2 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um 2 loftlykkjuboga á undan hverju prjónamerki og aukið út um 2 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um hvern af 2 loftlykkjubogum á eftir hverju prjónamerki | |
= | byrjið hér |
Hér er nánari útskýring á hvernig þú byrjar á vísbendingu #8. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu.
Heklið 48. umferð í A.6a og A.6b frá réttu, klippið frá og heklið 49. umferð frá réttu, þannig að 48. umferð og 49. umferð verði báðar heklaðar frá réttu. Byrjið 49. umferð með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá fyrri umferð. Þegar 49. umferð hefur verið hekluð til loka eru 68 sólfjaðrir (= 34 mynstureiningar A.6b) í umferð. Stykkið mælist ca 69 cm frá byrjun og niður mitt í sjali.
Heklið nú A.7b (A.7a sýnir hvernig hver umferð byrjar og er hekluð sem viðbót við A.7b).
50. umferð er hekluð frá röngu þannig: Leggið 49. umferð (umferð með vínrauðum sólfjöðrum – litur j) niður þannig að rétta liggi að réttu og heklið um 48. umferð (gallabuxnablár – litur i) frá bakhlið á sjali þannig: (4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta/næsta hálfa stuðul) heklið svona meðfram öllu sjalinu og endið með 1 fastalykkju um síðasta hálfa stuðulinn í umferð = 136 loftlykkjubogar. Munið LITASKIPTI!
Heklið umferð 51 þannig:
Ör 13 (51.umferð): Aukið út um 3 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um 2 loftlykkjuboga á undan hverju prjónamerki og aukið út um 2 lykkjur (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) um hvern og einn af 2 loftlykkjubogum á eftir hverju prjónamerki (= 48 loftlykkjubogar fleiri) = 252 loftlykkjur + 252 stuðlar í umferð.
Þegar 52. og 53. umferð hefur verið hekluð til loka, klippið frá og 54. umferð er hekluð frá réttu, þannig að 53. umferð og 54. umferð verði báðar heklaðar frá réttu. Byrjið 54. umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð. Munið LITASKIPTI!
Nú erum við tilbúin með vísbendingu #8 og þegar allar 54 umferðirnar í sjali hafa verið heklaðar mælist stykkið ca 73 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Á myndinni sérðu hvernig umferðirnar í þessari vísbendingu líta út þegar þær eru tilbúnar. Nú getur þig farið að hlakka til síðustu vísbendingarinnar – hún kemur í næstu viku!
Ekki gleyma að sýna okkur myndirnar þínar í dropsalong gallery!
Ana wrote:
Row 52: Jump 2 arcs (holes) the whole row. total: 84 "|---/ ". Fila 52: saltar 2 arcos (huecos) toda la fila.
23.06.2018 - 16:16